Flestar safnanir tilkynntar of seint

Sema Erla er fyrir dómi vegna ákæru um að hafa ekki tilkynnt fjár­söfnun fyrirfram. Sýslu­maður stað­festir að flestar safnanir eru tilkynntar of seint.

Fyrir dómi
Fyrir dómi Sema Erla Serdaroglu í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag. Hún svarar þar til saka vegna ákæru um að hafa til­kynnt fjár­söfnun sam­tak­anna Solaris of seint. Mynd: Golli
Upplestur fyrir áskrifendur 04:27 · Gervigreind les með rödd Nonna.

Aðeins sex af 13 fjár­söfnunum sem tilkynntar hafa verið til embættis Sýslu­mannsins á Suður­landi síðustu fimm árin voru tilkynntar á réttum tíma, áður en söfnun hæfist.

Ákært hefur verið fyrir eitt tilfelli og fór Sema Erla Serdaroglu, forsvars­kona samtak­anna Solaris sem söfnuðu í það skipti fyrir björgun palestínskra fjöl­skyldna með íslenskt dvalar­leyfi frá Gasa­svæðinu, fyrir Héraðsdóm Reykja­víkur í dag til að svara til saka vegna of seinnar tilkynningar. Solaris safnaði rúmlega 93 milljónum króna frá febrúar 2024 til að bjarga hátt í 200 manns frá Gaza, en söfnunin var aðeins tilkynnt til sýslu­manns í september sama ár, samhliða ítarlegu uppgjöri.

„Það hafa 13 opinberar fjár­safnanir verið tilkynntar til embættisins á síðustu fimm árum,“ segir Anna Lilja Ragnars­dóttir, settur sýslu­maður á Suður­landi, í svari til Heimildarinnar. „Sjö tilkynningar bárust eftir að söfnun hófst.“

Samkvæmt svarinu er embættinu „ekki kunnugt“ um að ákært hafi verið í öðrum tilfellum fyrir …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Afsakar það lögbrot ef einhverjir aðrir hafa komist undan réttvísinni?
    Gætu þeir sem eru teknir fyrir hraðakstur kannski borið því fyrir sig?
    -3
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Þegar það er orðið ólöglegt að safna og gera það sem til þarf til þess að bjarga fólki í bráðum lífsháska, þá er orðið eitthvað mikið að, þá snúast lög ekki lengur um réttlæti heldur vald, og eru orðin kúgunartæki . Þessvegna eru kannski bitrir valdsæknir pungar svona uppteknir af því hvernig hægt sé að nota laga hártoganir til að hefna sín á þeim sem telja þá ekki jafn mikið afbragð eins og þeir halda sig sjálfir.
    1
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Það er ekki ólöglegt að safna fé í þágu málstaðar heldur eru sérstök lög um hvernig á að gera það sem eiga að stuðla að því að söfnunarféð sé af lögmætum uppruna en ekki illa fengið og söfnunin notuð til að fela uppruna þess og söfnunarfénu sé raunverulega varið til hins yfirlýsta málstaðar en ekki notað til fjármögnunar hryðjuverka eða stungið í eigin vasa. Peningaþvætti, fjármögnun hryðjuverka og fjársvik eru nefnilega allt refsiverð afbrot og brot á lögum sem eru sett til að hindra slíkt getur verið það líka.
      -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Mest lesið undanfarið ár