Ísland tekur þátt í ferðabanni Evrópusambandsins

Íslensk stjórn­völd hafa ákveðið að taka þátt í ferða­bann­inu sem Evr­ópu­sam­bandið til­kynnti um í vik­unni og mun ná yfir öll Schengen-ríkin.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Ísland mun taka þátt í ferða­banni ásamt öðrum Schengen ríkjum. Bannið mun ekki hafa bein áhrif á vöru­flutn­inga held­ur á þetta ein­ung­is við um ferða­menn utan Schengen sem verður þá ekki leng­ur heim­ilt að koma til lands­ins.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra greinir frá þessu í stöðu­upp­færslu á Facebook. Þar segir hún að komum ferða­manna væri að mestu sjálf­hætt vegna veirunnar.

„Þrátt fyr­ir að ferða­bann hafi ekki verið of­ar­lega hjá okk­ar sér­fræð­ing­um sem ár­ang­urs­rík aðferð gegn út­breiðslu kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins þá hef­ur verið biðlað til okk­ar að taka þátt í lok­un landa­mæra ESB- og Schengen-ríkj­anna og við eig­um óhægt um vik að skor­ast und­an því.“

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins mælt­ist til þess á mánu­dag öll ríki Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB), sem og nágranna­lönd sem standa utan þess, myndu banna öll „ónauð­syn­leg ferða­lög“ til Evr­ópu og setja á 30 daga ferða­bann sem næði í raun til alls heims­ins. Ein­ungis Evr­ópu­búar fengju þá að ferð­ast til Evr­ópu, nema í und­an­tekn­ing­ar­til­fell­um.

[adspot]Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórn­ar­inn­ar, sagði á blaða­manna­fundi vegna þessa að því minni sem ferða­lög væru, því betur væri hægt að halda útbreiðslu COVID-19 í skefj­um.

Áslaug Arna segir í stöðu­upp­færsl­unni að alþjóð­legt og svæðis­bundið sam­starf ríkja sé mik­il­vægt í bar­átt­unni við veiruna og að Íslandi þurfi á sam­starfi ESB- og EES-ríkj­anna að halda. Á grund­velli þess og mati á stjórn­valda á hags­mun­um þá hafi verið ákveðið að taka þátt í aðgerðum Schengen-ríkj­anna og loka hér ytri landa­mær­um. „Við höfum ít­rekað bent á okk­ar sér­stöðu inn­an svæðis­ins síð­ustu daga. Við erum eyja langt frá öðrum lönd­um og við eig­um meira und­ir flug­sam­göng­um og við höf­um því beðið um að sér­stakt til­lit verði tekið til okk­ar þegar við sjá­um fyr­ir að við vilj­um fara aflétta þess­ari lok­un.“

Tutt­ugu og tvö ríki ESB eru í Schen­gen-­sam­starf­inu, auk Íslands, Nor­egs, Sviss og Liect­en­stein. Bret­land og Írland eru ekki hluti af Schen­gen-­svæð­inu og ekki heldur Króa­tía, Búlgar­ía, Kýpur né Rúm­en­í­a.

Þegar höfðu mörg ríki innan Schengen lokað landa­mærum áður en að til­kynn­ingin barst á mánu­dag, þar af tíu ríki innan ESB.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár