Stjórnarslitin komu eins og „sprengja“ á markaði

Mikill titr­ingur var á fjár­magns­mörk­uðum þegar tíð­indin um stjórn­ar­slit komu fram.

Atburða­rásin á und­an­förnum sól­ar­hring, sem nú hefur leitt til þess að rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar hefur lið­ast i sundur, kom ekki aðeins Bjarna sjálfum í opna skjöldu heldur ekki síður fjár­festum á mark­aði.

Úrvals­vísi­tala kaup­hall­ar­innar hrundi strax í fyrstu við­skiptum í morgun, og end­aði í lok dags, niður um tæp­lega þrjú pró­sent. Það telst mikið á einum við­skipta­degi.

Mest var lækk­unin á hluta­bréfum í fast­eigna­fé­lag­inu Eik, um 5 pró­sent, og HB Granda, um 3,8 pró­sent.

Á skulda­bréfa­mark­aði voru gríð­ar­legar svipt­ingar. Ávöxt­un­ar­krafa rauk upp um allt að 48 punkta, sem leiddi til verð­falls. Sjaldséð er að sjá svo mikla nið­ur­sveiflu, og var greint frá því að vef Við­skipta­blaðs­ins að starfs­fólk á mark­aðnum hefði talað um „slátrun“.

Einn við­mæl­enda Kjarnans á fjár­mála­mark­aði sagði að rík­is­stjórn­ar­slitin hefðu „varpað sprengju“ á mark­að­inn, og sagði að svo virt­ist sem tölu­verðrar óvissu gætti nú á mark­aðnum. Verð­bólgu­horfur, miðað við stöð­una á skulda­bréfa­mark­aði, hefðu snar­versnað á einum degi.

Þá veikt­ist gengi krón­unnar umtals­vert. Mest var veik­ingin gagn­vart pund­inu, eða rúm­lega tvö pró­sent. Það kostar nú 145 krónur. Gengi krón­unnar gagn­vart evru veikt­ist um 1,5 pró­sent og kostar evran nú 126 krónur.

Gengi krón­unnar gagn­vart Banda­ríkja­dal veikt­ist heldur minna, eða um 0,5 pró­sent. Hann kostar nú 106 krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnarkreppa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár