Lífskjör ráðast af stöðu fólks á fasteignamarkaði

Ungt fólk þarf að búa sig undir að dvelja lengur í for­eldra­húsum vegna aðstæðna í efna­hags­líf­inu. Um 15 pró­sent karla búa enn þar þegar þeir eru 30 ára gamlir. Fólk sem þurfti að nota sér­eign­ar­sparnað til að láta enda ná saman í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum var látið borga skatta af þeirri nýt­ingu.

„Lífs­kjör fólks á Íslandi ráð­ast nú mjög á stöðu þess á fast­eigna­mark­aði. Hvenær fólk kom inn á fast­eigna­mark­að­inn og á hvaða aldri þú ert.“ Þetta sagði Ásgeir Jóns­son, seðla­banka­stjóri og for­maður pen­inga­stefnu­nefnd­ar, á upp­lýs­inga­fundi nefnd­ar­innar í júní í fyrra sem hald­inn var vegna ákvörð­unar hennar að hækka stýri­vexti upp í 4,75 pró­sent. Þeir höfðu þá ekki verið hærri í fimm ár. Sú ákvörðun var tekin til að reyna að ná verð­bólgu, sem þá var 7,6 pró­sent, nið­ur. Síðan þá hafa vext­irnir verið hækk­aðir í 7,5 pró­sent og verð­bólgan er samt tæp­lega tíu pró­sent. 

Ásgeir sagði á þessum fundi að það gætu orðið tals­verð auðs­á­hrif af hækkun fast­eigna­verðs, sér­stak­lega ef fólk færi að taka út fjár­magn vegna hækk­un­ar­innar til að nota í ann­að. 

Fyrr í sama mán­uði hafði fjár­­­mála­­stöð­ug­­leika­­nefnd …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Ótrúleg öfugmæli í raun óhræsis áróður gróðapungana

    Þegar „bankastjóri Arion banka segir að samkeppni á íbúðalánamarkaði eigi að tryggja viðskiptavinum góð kjör þegar vextir fjölmargra lána verða endurskoðaðir á næstu mánuðum. Áhrif vaxtahækkana á íbúðalán séu enn takmörkuð“.

    Það vita nær allir að þessu er algjörlega öfugt farið. Allar götur frá því á tíma Davíðs Oddssonar á ráðherrastóli þegar hann ofurseldi markaðnum möguleika láglauna-fólks til að eignast eigið húsnæði. Með því að leggja niður félagslega húsnæðislánakerfið.

    Þetta gerðu gömlu valdaflokkarnir sameiginlega þá sem framhald af lögunum frá því maí 1983. Þegar fengu frelsi til ákveða sína vexti og uppálagt að öll lán til launafólks yrðu verðtryggð. Það sem hélt niðri vöxtum þá var að helstu bankar voru í ríkiseigu.

    En eftir að gömlu valdaflokkarnir nánast gáfu sínum vildarvinum bankanna tvo eftir hrun Útvegsbankans var fjandinn laus. Vextir og gríðarlegur kostnaður var nú lagður á launafólk sem ekki gat varið hendur sínar.

    Það hefur lengi verið ljóst að markaðslögmálin geta ekki borið ábyrgð á húsnæðis-málum venjulegs launafólks.

    Það er bara fullkomlega eðlilegt að sá hluti húsnæðislána launafólks til að koma yfir sig nauðþurftarhúsnæði sé félagslegur.

    Það getur ekki verið eðlilegur þjóðfélagslegur kostur að launafólk verði allt gert að eignarlausum leiguliðum.

    Er hafa það hlutverk að kaupa íbúðir fyrir leigufélög og greiða allt í topp en síðan að sitja uppi með þá staðreynd.

    Að íbúðin sem það greiddi alltaf leigu af varð að eign annarra.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár