Sviðsett kynn­ing? Hafi er umræða um það hvor flokk­ur­inn sé stóri sig­ur­veg­ari gær­dags­ins, Fram­sókn­ar­flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, eða Sjálf­stæð­is­flokkur Bjarna Bene­dikts­sonar. Mynd: Pressphotos

Farsæl lausn með gjaldeyrishöft: Var kynningin pólitísk leiksýning?

Áherslur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar um kynn­ing­una á losun gjald­eyr­is­haft­anna og gjald­heimtu af kröfu­höfum föllnu bank­anna þriggja voru aðrar en komu fram í kynn­ing­unni í Hörpu í gær. Framsókn kynnti lengi vel aðra leið, átaka­meiri leið og jafn­vel gjald­þrota­leið, en þessa samn­inga­leið sem orðin er ofan á á meðan Bjarni Bene­dikts­son var alltaf tals­maður hennar. Samn­ingar við kröfu­haf­ana eru lengra komnir en skilja mátti á for­sæt­is­ráð­herra í gær. Hafin er umræða í sam­fé­lag­inu um hvor for­mað­ur­inn hafi unnið í gær.

„Mér skilst að yfir­lýs­ing­arnar hafi komið í kjöl­far þess að menn hafi séð að þetta væri raun­veru­lega að ger­ast, skatt­ur­inn kæmi raun­veru­lega,“ sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra í Íslandi í dag í gær. 

Kynning á losun gjald­eyr­is­haft­anna fór fram í Hörpu í gær og voru kynntar tvær leiðir sem mögu­legar væru til að heim­ila kröfu­höfum föllnu bank­anna Glitnis, Lands­bank­ans og Kaup­þings að leysa eignir sínar út úr búunum og fyrir rík­is­valdið að sækja fé til þeirra. Eignir þess­ara þrota­búa eru lyk­il­at­riði við losun hafta þar sem ekki er hægt að losa höftin án sam­komu­lags við þau þar sem útflæði þess­ara eigna þeirra gæti orsakað verð­fall íslensku krón­unnar. Skilyrði fyrir losun gjald­eyr­is­hafta er því að koma í veg fyrir að of snöggt útflæði þess­ara eigna og með því að tryggja að hluti eigna þeirra verði eftir á Íslandi.

Stöðugleikaframlag og stöðugleikaskattur?

Í kynn­ing­unni var ann­ars vegar rætt um stöð­ug­leika­skatt sem Sig­mundur Davíð vís­aði til og svo hins vegar stöð­ug­leika­fram­lag. Munurinn á þessu tvennu er að stöð­ug­leika­fram­lagið er sam­komu­lags­at­riði - fram­lag er ekki gjald­taka - á meðan skatta­á­lagn­ing er gjald­taka. Stöð­ug­leika­skatt­ur­inn mun nema 39 pró­sentum ef þrota­búin fall­ast ekki á að greiða stöð­ug­leika­fram­lagið.

Kynn­ingin snérist í aðal­at­riðum um að þrota­búin eiga um 900 millj­arða krónu­eignir sem ráð­gert er að þau gefi eftir til rík­is­ins  að hluta gegn því að fá að greiða sér út erlendar eignir þrota­bú­anna sem einnig eru læstar inni í fjár­magns­höft­unum.

Flestir sem tjáð sig um kynn­ing­una hingað til hafa lýst yfir ánægju með hana almennt séð þar sem fjár­magns­höftin eru eitt stærsta vanda­mál íslensks sam­fé­lags í dag. Enginn vill halda fjár­magns­höft­unum. 

Afleiðingar fyrir almenning

Einnig var kynnt að líf­eyr­is­sjóð­irnir fái ákveðnar heim­ildir til að fjár­festa erlendis næstu fjögur árin, fyrir sam­tals 10 millj­arða á ári, en við­ræður um þetta hafi staðið yfir á milli Seðla­banka Íslands og líf­eyr­is­sjóð­anna um skeið. 

Hvað varðar áhrif los­unar haft­anna fyrir almenn­ing þá felst í henni að almenn­ingur getur nú bráð­lega keypt gjald­eyri í bönkum án þess að þurfa að sýna flug­far­seðla, að öll gjald­eyr­is­við­skipti við útlönd verða ein­fald­ari - til að mynda flutn­ingar á pen­ingum á milli landa, og að Íslend­ingar sem vilja kaupa sér fast­eignir erlendis munu ekki þurfa und­an­þágu frá gjald­eyr­is­höft­unum frá Seðla­banka Íslands, svo fátt eitt sé nefnt. 

„Menn sjái þá tæki­færi í því að klára málin hraðar og verða við þessum stöð­ug­leika­skil­yrðum.“

Söguleg stund
Söguleg stund Leiðin sem Bjarni Bene­dikts­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son kynntu í gær var í sam­ræmi við vilja ann­arra flokka og kröfu­hafa.

Hvenær bárust viljayfirlýsingar?

Með orðum sínum, sem vísað er til í upp­hafi grein­ar­innar, vís­aði for­sæt­is­ráð­herra til þess að kröfu­hafar föllnu bank­anna hefðu sent frá sér vilja­yf­ir­lýs­ingar um sam­starf við rík­is­stjórn­ina sem feli í sér greiðslu á stöð­ug­leika­fram­lagi sem nemur um 39 pró­sent eigna þrota­bú­anna.

Orð for­sæt­is­ráð­herra mátti skilja sem svo að kröfu­hafar bank­anna hafi áttað sig á því að þeir yrðu að borga upp­hæð sem sam­tals gæti numið um 500 millj­örðum króna, vilj­ugir eða óvilj­ugir. Sig­mundur Davíð tók fram í við­tal­inu að vilja­yf­ir­lýs­ing­arnar hafi átt að hafa borist frá þrota­bú­unum í gær, sama dag og kynn­ingin fór fram. 

Sig­mundur Davíð útskýrði vilja kröfu­haf­anna með eft­ir­far­andi hætti í við­tal­inu: „Menn sjái þá tæki­færi í því að klára málin hraðar og verða við þessum stöð­ug­leika­skil­yrðum. Það hefur ýmsa kosti fyrir þessa aðila en getur líka gert það fyrir Ísland, þó hinn kost­ur­inn sé mjög góður líka. Ef þetta endar þannig að menn klára þetta ekki og stöð­ug­leika­skatt­ur­inn fellur, þá er það mjög góð nið­ur­staða líka.“

„Stærstu kröfu­hafar í slita­búin hafa lýst því yfir að þeir vilji ganga að stöð­ug­leika­skil­yrðum sem sett hafa verið fram.“

Búið að semja

Á kynn­ing­unni í Hörpu í gær kom hins vegar fram að búið væri, þá þegar, að semja við kröfu­haf­ana um að fara leið stöð­ug­leika­fram­lags­ins en ekki leið stöð­ug­leika­skatts­ins. Í þessu felst að ekki kemur til þess að kröfu­haf­arnir greiði stöð­ug­leika­skatt­inn frekar en stöð­ug­leika­fram­lagið. Á einni glærunni sagði: „Stærstu kröfu­hafar í slita­búin hafa lýst því yfir að þeir vilji ganga að stöð­ug­leika­skil­yrðum sem sett hafa verið fram.“

Stöð­ug­leika­skatt­ur­inn verður því ein­ungis settur á ef kröfu­haf­arnir ganga á bak orða sinna um að fara samn­inga­leið­ina. Eins og segir á sömu glæru: „Stöð­ug­leika­skatt­ur­inn er nauð­vörn almenn­ings gagn­vart kröfu­höfum slita­búa föllnu fjár­mála­stofn­an­ana.“

Upp­lýs­ing­arnar í orðum Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og þær upp­lýs­ingar sem voru í glæru­kynn­ing­unni í Hörpu eru því ekki alveg þær sömu að því leyt­inu til að for­sæt­is­ráð­herra tal­aði eins og kynn­ingin á úrræð­unum hafi leitt til þess að kröfu­haf­arnir hafi brugð­ist við á meðan kom fram í kynn­ing­unni að búið væri að kom­ast að ein­hvers konar upp­hafs­sam­komu­lagi við kröfu­haf­anna. 

Í til­kynn­ingu á vef Glitnis kemur sömu­leiðis fram að við­ræður við rík­is­valdið á Íslandi hafi staðið yfir og að þær við­ræður hafi snú­ist um hvernig þrotabú bank­ans gæti fengið und­an­þágu frá gjald­eyr­is­hafta­lög­unum til að leysa eignir sínar út úr búinu: „Slita­stjór­inn bendir á að þessum við­ræðum hafi lokið með sam­þykkt skil­mála að mögu­legri und­an­þágu og kynnti íslenska rík­is­stjórnin þessar hug­myndir í dag.“ 

Í Frétta­blað­inu í dag kemur fram að samn­ingar við kröfu­haf­anna „séu komnir mjög langt og kröfu­hafar muni velja leið stöð­ug­leika­skil­yrð­anna“.

Hver er skýringin á misræminu?

Áhersl­urnar í kynn­ing­unni og áhersl­urnar í orðum Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar eru því nokkuð aðrar. Í kynn­ing­unni kom skýrt að ein­hvers konar sam­komu­lag við kröfu­haf­anna lægi fyrir en Sig­mundur Davíð tal­aði eins og þeir væru svo hræddir við stöð­ug­leika­skatt­inn sem búið væri að kynna til sög­unnar sem mögu­leika að þeir ætl­uðu sér að ganga samn­inga­leið­ina. 

Skýr­ingin á mis­ræm­inu kann að vera að nú þegar er hafin bar­átta á milli stjórn­ar­flokk­anna um hvor þeirrra beri ábyrgð og eigi að fá meira klapp á bakið fyrir að ná þess­ari lend­ingu gagn­vart þrota­búum föllnu bank­anna.

Fram­sókn­ar­flokkur Sig­mundar Davíðs var aldrei sér­stak­lega hrif­inn af samn­inga­leið­inni við kröfu­hafa því þeir vildu fara aðrar leiðir. Nú hefur þessi leið hins vegar orðið ofan á.

„Það mætti líkja þessu við það að hræ­gamm­ur­inn er í skóg­inum, við erum með hagla­byssu, treystum við okkur til að fara að ná í hann eða treystum við ein­hverjum öðrum til þess.“

Samninga- og átakaleiðin

Með haglabyssu í hrægammaveiðum
Með hagla­byssu í hrægamma­veiðum Frosti Sig­ur­jóns­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, mælti fyrir því að sýna kröfu­höfum hörku.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn vildi beita kröfu­haf­ana hörðu, að minnsta kosti töl­uðu full­trúar flokks­ins þannig, og má rifja upp ummæli um hrægamma og byssur fyrir síð­ustu kosn­ingar. Frosti Sig­ur­jóns­son, núver­andi þing­maður flokks­ins, sagði til dæmis: „En þetta ræðst svo­lítið af við­brögðum og samn­ings­vilja þess­ara kröfu­hafa. […] Það mætti líkja þessu við það að hræ­gamm­ur­inn er í skóg­inum, við erum með hagla­byssu, treystum við okkur til að fara að ná í hann eða treystum við ein­hverjum öðrum til þess. Ég skal segja þér hvaða veiði­aðferðir við getum notað.“ 

Samn­inga­leiðin var hins vegar leiðin sem fyrri rík­is­stjórn vildi fara og sömu­leiðis hefur Bjarni Bene­dikts­son aldrei talað með þessum hætti um afnám gjald­eyr­is­haft­anna og vanda­málin sem stafa af krónu­eignum þrota­bú­anna. Bjarni var auk þess mjög gagn­rýn­inn á mál­flutn­ing Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir síð­ustu kosn­ingar, á þeim for­sendum að ekki lægi fyrir hvernig ætti að ná í nokkur hund­ruð millj­ónir fyrir íslensk heim­ili, og sagði meðal ann­ars: „En munum við græða í leið­inni 200 eða 300 millj­arða eða hvað það er sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er að lofa. Það er fugl í skógi; hann er ekki í hendi. […] Ég tók eftir því að mér fannst Sig­mundur ­Davíð alls ekki svara því hvernig þetta ætti að ger­ast. Þessu er enn ósvarað af Fram­sókn­ar­flokks­ins hálfu. Að lofa því fyr­ir­fram að þarna verði til 200 millj­arðar fyrir heim­ilin, það finnst mér ein­fald­lega vera óábyrgur mál­flutn­ingur.“

Það er líka merki­legt að Bjarni Bene­dikts­son staldr­aði ekki eins mikið við stöð­ug­leika­skatt­inn í fjöl­miðlum í gær þegar hann ræddi um þessa lausn á mál­efnum þrota­bú­anna. Í við­tali við RÚV sagði hann: „Í beinu stöð­ug­leika­fram­lagi og ásamt með banka­skatt­inum sem við höfum áður kynnt til sög­unnar erum við örugg­lega að tala um 500 millj­arða en síðan koma því til við­bótar ýmsar ráð­staf­anir sem tengj­ast fjár­fest­ingum í land­inu, fram­leng­ingu skulda­bind­ingu, fram­leng­ingu lána og annað þess háttar. Aðal­at­riðið er að þessi leið eyðir vanda­mál­inu, alveg eins og skatt­ur­inn bara með aðeins öðrum hætti.“

Svo virð­ist því að sú leið hafi orðið ofan á sem allir aðrir stjórn­mála­flokk­arnir heldur en Framsókn töl­uðu um. Enda hefur slík samn­inga­leið í för með sér mesta sátt og minnsta mögu­leik­ann á óvæntum, skað­legum afleið­ingum.

Bjarni Benediktsson
Bjarni Bene­dikts­son Leið for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins virð­ist hafa orðið ofan á.

Hvor „vann“?

Hafin er umræða í sam­fé­lag­inu um hvor flokk­ur­inn hafi unnið í gær: Framsókn eða Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og eru ólíkar skoð­anir uppi um það. Túlkun vara­for­manns Vinstri grænna, Björns Vals Gísla­sonar, á þessu mis­ræmi í áherslum á stö­ug­leika­skatt og stöð­ug­leika­fram­lag var að fram­sókn hefði „lúffað“ fyrir sjálf­stæð­is­mönnum; samn­inga­leið Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi orðið ofan á. 

Jónas Krist­jáns­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri, tekur í sama streng og segir: „Bjarni Bene­dikts­son hafði betur í stjórn­inni. Gjald­þrota­leið Sig­mundar Davíðs var hafnað.“ 

„Gær­dag­ur­inn var sig­ur­dagur fyrir Fram­sókn­ar­menn og Sigmund Davíð sér­stak­lega“

Guð­mundur Andri Thorsson rit­höf­undur er á því að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi unnið sigur í gær. Á Facebook segir hann: „Gær­dag­ur­inn var sig­ur­dagur fyrir Fram­sókn­ar­menn og Sigmund Davíð sér­stak­lega - þó að allir aðrir kunni að eiga heið­ur­inn af leið­inni sem farin var á end­anum. Nú er að vita hvernig úr þessu öllu spil­ast og hvort íslenskir umsvifa­menn hafa öðl­ast þroska til að starfa í hafta­lausu umhverfi.“

Losun haft­anna er góð fyrir alla íbúa Íslands og er það kannski á end­anum stærsta fréttin í gær.

Möguleiki dómsstólaleiðarinnar

Kröfu­haf­arnir gætu svo vissu­lega farið þá leið að fá úr því skorið hvort slíkur stöð­ug­leika­skattur stand­ist lög með því að höfða dóms­mál. Slíkt tekur hins vegar langan tíma og kemur þá í veg fyrir að kröfu­hafar geti inn­leyst eignir sínar í þrota­bú­unum og verður að telj­ast ólík­legt að þeir vilji fara þá leið. Slita­stjórn Glitnis gaf hins vegar út áður­nefnda yfir­lýs­ingu þess efnis í gær að verið væri að skoða stöð­ug­leika­skatt­inn og þá vænt­an­lega lög­mæti hans.  

Ekkert bendir til ann­ars að en allir aðilar í mál­inu, rík­is­valdið og þrota­búin, velji samn­inga­leið­ina frekar en átaka­leið­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Gjaldeyrishöft

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár