Mynd: Pressphotos / Geirix

Sveinn Andri og ungu stúlkurnar

Lög­mað­ur­inn Sveinn Andri Sveins­son hefur gengið fram fyrir skjöldu fyrir hönd þeirra sem eru kærðir fyrir kyn­ferð­is­brot. Hann hefur á köflum fært bar­átt­una úr vörn í sókn gegn þolendum. Sjálfur hefur hann per­sónu­lega reynslu af ásök­unum um tæl­ingu. Stundin ræddi við ungar stúlkur sem hafa reynslu af sam­skiptum við Svein Andra og birtir brot úr sam­skiptum hans við ólög­ráða stúlku.

„Hann tekur af okkur skýrslu og seg­ist ætla að vera í bandi. En það var eins og hann vildi ekki taka af okkur skýrslu, því hann sagði að hann væri búinn að kaupa fullt af Breezer, með svona og svona bragði, og hann ætti vodka og gin,“ segir Theodóra Sif Theo­dórs­dóttir um fyrsta fund sinn með Sveini Andra Sveins­syni lög­manni.

Theódóra er ein þeirra ungu stúlkna sem Stundin ræddi við um sam­skipti hennar við Svein. Hún leit­aði til hans til að gæta réttar síns þegar hún varð fyrir lík­ams­árás 19 ára gömul. Sveinn er 52 ára. Theódóra var ekki ólög­ráða á þeim tíma, en öðru máli gegnir um aðrar stúlkur.

Leitaði til Sveins
Leitaði til Sveins Theodóra Sif Theo­dórs­dóttir leit­aði til Sveins Andra í kjöl­far lík­ams­árásar. Hún fann sér nýjan lög­mann eftir stöðugan straum Facebook-skila­boða frá Sveini.

Sveinn Andri kaus að tjá sig ekk­ert um sín mál­efni þegar Stundin leit­aði við­bragða hans. 

Sextán ára ólétt

Sveinn Andri hefur und­an­farin ár verið ötull í opin­berri bar­áttu gegn umræðu um kyn­ferð­is­brot. Hann hefur gengið lengra en aðrir lög­menn í að verja skjól­stæð­inga sína sem eru ákærðir fyrir kyn­ferð­is­brot. Sjálfur hefur Sveinn verið kærður fyrir tæl­ingu en slíkt brot varðar allt að fjög­urra ára fang­els­is­vist. Rebekka Rós­in­berg lagði fram kæru gagn­vart Sveini fyrir tæl­ingu gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Hún taldi að hann hefði not­fært sér yfir­burða­stöðu til að ná sínu fram. Máli hennar var vísað frá af ákæru­sviði lög­regl­unnar þar sem það þótti ekki lík­legt til sak­fell­ingar vegna skorts á sönn­un­ar­gögnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“

Mest lesið undanfarið ár