Sagan á bakvið lands­liðs­mennina

Íslenska karla­lands­liðið í knatt­spyrnu er sam­sett af leik­mönnum sem hafa þurft að yfir­stíga margt áður en þeir mynd­uðu sam­eig­in­lega eitt eft­ir­tekt­ar­verð­asta lands­lið heims­ins. Sölvi Tryggva­son tók saman sögu ein­stak­ling­anna sem fram­köll­uðu íslenska eld­gosið í Frakk­landi.

Ísland féll úr leik á Evrópu­mót­inu í knatt­spyrnu í fimmta síð­asta leik móts­ins, átta liða úrslitum gegn einu sterkasta liði heims á þeirra eigin heima­velli. Fyrir aðeins örfáum árum hefðu ekki einu sinni allra mestu fót­bolta-pollýönnur látið sig dreyma um brot af þeim árangri sem íslenska lands­liðið hefur nú náð, hvað þá þetta. Á tveimur árum hefur liðið unnið Holland, England, Tékkland, Aust­ur­ríki og Tyrkland í alvöru móts­leikjum þar sem allt er undir. Sé haft í huga að knatt­spyrna er stærsta og vin­sælasta íþróttin í öllum þessum löndum, sem telja allt frá tug­földum upp í nærri tvö hund­ruð faldan fólks­fjölda Íslands, er ljóst hversu fárán­legum árangri liðið okkar hefur náð. 

Þegar und­ir­rit­aður réð­ist í það verk­efni að fylgja lands­lið­inu eftir í gegnum und­ankeppni EM töldu flestir nær úti­lokað að Ísland færi áfram. Rið­ill­inn var enda gríð­ar­lega sterkur og á papp­ír­unum voru þrjú lið­anna mun sterk­ari. 

Ég man nákvæm­lega hvenær ég átt­aði mig á því að eitt­hvað virki­lega sér­stakt væri í vændum. Eftir sig­ur­leiki gegn Tyrkjum og Lettum haustið 2014 var komið að leik gegn sterkasta liði rið­ils­ins, Hollandi, sem hafði nýlega lent í þriðja sæti á HM í Brasilíu. Þegar ég mætti á hótel liðs­ins þremur dögum fyrir leik­inn til að taka upp fyrsta liðs­fund­inn gekk í flasið á mér einn af sjúkra­þjálf­urum liðs­ins og sagði umsvifa­laust: „Við erum að fara að vinna þennan leik!“ Korteri síðar sat ég inni á fund­inum, þar sem ítrekað var farið yfir hvernig ætti að ná í þrjú stig. Allir leik­menn og allir starfs­menn trúðu því inn að beini að sigur væri í vændum. Það er nákvæm­lega þetta hug­ar­far sem hefur skilað lið­inu þangað sem það er. Ísland vann leik­inn örugg­lega, 2-0, og eft­ir­leik­inn þekkja allir. Ísland er ef til vill ekki nema númer 40–50 á heims­list­anum ef horft er á getu ein­stakra leik­manna, en þegar kemur að hug­ar­fari, bar­átt­u­gleði, sam­vinnu og lið­sanda erum við í fyrsta sæti.

Hér á eftir fer sam­an­tekt um leik­menn­ina sem spil­uðu á loka­móti EM fyrir Íslands hönd. Hún byggir að hluta til á við­tölum sem tekin voru við leik­menn íslenska lands­liðs­ins við gerð heim­ild­ar­mynd­ar­innar „Jök­ull­inn logar“. 

Ljóst er að Heimis Hall­gríms­sonar bíður erfitt verk­efni í haust, þegar lands­liðið hefur leik í und­ankeppni fyrir HM í Rúss­landi árið 2018. Eins og í und­ankeppni EM verður Ísland í gíf­ur­lega sterkum riðli með Króatíu, Tyrk­landi, Úkraínu, Finn­landi og Kosovo. Ekki aðeins verður erfitt að halda við þeim stór­kost­lega árangri sem náðst hefur á síð­ustu tveimur árum, heldur verða einnig við­brigði að Lars Lagerback sé hættur. En Heimir hefur sýnt það og sannað að hann er starf­inu full­kom­lega vax­inn. Leikmenn íslenska liðs­ins eru hvergi nærri saddir og alla langar að spila aftur á stærsta sviði knatt­spyrn­unnar. Ísland er búið að kom­ast á EM og sýna þar og sanna að við getum staðið uppi í hár­inu á hverjum sem er. Draum­ur­inn um að kom­ast á loka­keppni heims­meist­ara­móts hefur enn ekki ræst, en ljóst er að nú er tím­inn til að láta það ger­ast. Kjarninn í lið­inu er á besta aldri og atburða­rás und­an­far­inna vikna mun hvetja alla til dáða þegar kemur að næstu orr­ustu, haustið 2016.

Þessi grein birt­ist fyrst í 26. blaði Stund­ar­innar, sem kom út í júlí á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár