Vigdís: „Allir feður og allir bræður vita að dætur þeirra og systur eru jafnklárar og þeir“

Vigdís bað æsk­una um að standa vörð um þau mann­rétt­indi, nátt­úru og íslenska tungu. Fríða Rós Valdi­mars­dóttir sagði kröfur kvenna eru þagg­aðar niður líkt og ofbeldi sem konur eru beittar hefur verið þaggað niður í gegnum tíð­ina.

Vigdís: „Allir feður og allir bræður vita að dætur þeirra og systur eru jafnklárar og þeir“

„Frelsið, jafn­réttið og lýð­ræðið er ekki sjálf­gefið,“ sagði frú Vigdís Finn­boga­dóttir, í ávarpi sem hún flutti af svölum Alþingis í til­efni 100 ára afmælis kosn­inga­réttar kvenna í dag.

Þar tal­aði hún til æsk­unnar og ítrek­aði mik­il­vægi þess að gæta nátt­úru lands­ins og íslenskrar tungu, þar sem hvor­ugt yrði end­ur­heimt ef það væri einu sinni glatað. „Einstök víð­erni á hálendi Íslands vinn­ast ekki aftur ef þau hafa einu sinni spillst.“

Vigdís ræddi einnig um jafn­rétt­is­bar­átt­una og sagði að þar væri verk óunnið. Þótt jafn­rétti hafi náðst með lögum vanti enn tals­vert upp á að jafn­rétti ríki í raun. „Allir feður og allir bræður vita að dætur þeirra og systur eru jafn­klárar og þeir en þeir verða að hafa hug­fast að það á ekki aðeins við um þeirra eigin dætur og systur.“

Ræðu Vigdísar er hægt að lesa í heild sinni hér að neðan. 

Í framtíðinni leynast ekki aðeins loforð 

„Það er gaman að vera til þegar fagnað er og minnst sögu­legra atburða á Íslandi. Að þessu sinni er það 100 ára afmæli kosn­inga­réttar og kjör­gengi kvenna – og hvers vegna erum við að fagna sjálf­stæðri hugsun kvenna og jafn­ræði til að velja hvernig eigi að stýra sjálfu þjóð­fé­lag­inu? Jú, það er af því að frelsið, jafn­réttið og lýð­ræðið er ekki sjálf­gefið. Það skynjum við vel í dag­legum fréttum frá öðrum heims­hlutum. Svo afar fátt af því sem okkur finnst sjálf­sagt í dag­legu lífi hefur komið inn í sam­fé­lag okkar eins og regn af himnum ofan heldur áunn­ist með óþreyt­andi elju og fram­sýni þeirra sem á undan okkur komu.

„Jú, það er af því að frelsið, jafn­réttið og lýð­ræðið er ekki sjálf­gefið.“

Þessi dagur 19. júní þegar konur fengu kosn­inga­rétt á Íslandi fyrir 100 árum er minn­ing­ar­dagur okkar allra, karla sem kvenna, yngri sem eldri, tákn­rænn fyrir þjóð­ar­hag. Hann mun standa sem fyr­ir­mynd í hugum ótal þjóða úti í heimi þegar af honum frétt­ist um heims­byggð­ina. Fyr­ir­mynd um jafn­rétti kvenna og karla til að kjósa sér þjóð­fé­lags­skipan og lands­stjórn. Þessi hund­rað ára minn­ing­ar­dagur kosn­ing­ar­réttar kvenna á Íslandi mun vissu­lega frétt­ast víða í opnum heimi sam­tíð­ar­innar.

Vörð­urnar á veg­ferð íslenskra kvenna í hund­rað ár eru ótal margar. Þær fel­ast í marg­vís­legum rétt­indum sem náðst hafa. Körlum og konum eru tryggð sömu mann­rétt­indi í stjórn­ar­skrá og í lögum. Bæði kyn hafa sömu mögu­leika og tæki­færi til að leita sér mennt­unar – og konur hafa svo sann­ar­lega nýtt sér það vel.

Enn eru þó mörg verk­efni sem blasa við. Það hefur til dæmis tekið nær alla þessa marg­nefndu öld að ná því að um 40 pró­sent þing­manna eru nú konur. Allt fram á 9. ára­tug­inn eða í rúm sex­tíu ár voru aldrei fleiri en tvær til þrjár konur á þingi, svo furðu­legt sem það nú kann að hljóma. Konur höfðu engu að síður öðl­ast sjálfs­traust og beittu sér í marg­vís­legum félags­málum, stofn­uðu lestr­ar­fé­lög út um allt land og áttu meðal ann­ars frum­kvæði að bæði bygg­ingu Land­spít­al­ans og Hvíta­bands­spít­al­ans á Skóla­vörðu­stíg. En þær létu sér nægja að sitja í ótryggum sætum á fram­boðs­listum stjórn­mála­flokk­anna, vera þar skemmti­legar og hjálpa körlunum að kom­ast inn á þing.

Þótt svo eigi að heita að jafn­rétti kynja á Íslandi hafi náðst með lögum vitum við að tals­vert vantar upp á að jafn­rétti ríki í raun.

Enn er langt í land að konur hafi sömu laun og karlar, þrátt fyrir þá stað­reynd að lög sem áttu að tryggja sömu laun fyrir sömu vinnu hafi verið í gildi í meira en fjóra ára­tugi. Einnig virð­ast sam­skipti kynj­anna ekki alltaf vera eins og við best óskum, sem birt­ist meðal ann­ars í ofbeldi, ekki aðeins lík­am­legu heldur einnig and­legu ofbeldi, svo ekki sé nú minnst á ofsóknir á net­inu sem við fréttum að fær­ist í vöxt. Við sem höfum svo lengi stært okkur af því að vera frið­söm þjóð.

„Enn er langt í land að konur hafi sömu laun og karlar, þrátt fyrir þá stað­reynd að lög sem áttu að tryggja sömu laun fyrir sömu vinnu hafi verið í gildi í meira en fjóra ára­tugi.“

Á þessum hátíðs­degi, sem er jafn­rétt­is­dagur okkar allra, þykir mér sér­stak­lega vænt um að fá að beina orðum mínum til ykkar unga fólk, kyn­slóð­ar­innar sem takið við stjórn og mótun sam­fé­lags­ins á næstu árum og ára­tugum. Ég sé ykkur öll inni í fjöld­anum. Ég hef svo mik­inn metnað fyrir ykkur. Fyrir ykkur, hvert ein­asta eitt. Það verður ykkar verk­efni að gera að heil­steyptum veru­leika það sam­fé­lag sem stjórn­ar­skráin okkar kveður á um. Djúpstæð hefðin hefur tafið fram­gang í þeim málum. Það kemur í ykkar hlut að byggja sam­fé­lag þar sem frelsið og mann­rétt­indin sem okkur hafa verið tryggð gilda fyrir alla, konur og karla, unga sem eldri.

Við erum fámenn þjóð í stóru landi og við eigum tvö fágæt en dýr­mæt djásn sem okkur hefur verið falin til verndar – það er nátt­úra Íslands og þjóð­tungan okkar, íslenskan. Enginn getur tekið þessi djásn frá okkur, nema við sjálf. Þess vegna fæ ég aldrei nógu oft hvatt ykkur unga fólkið í land­inu til að gleyma aldrei að varð­veita og vernda þessi djásn sem bæði eru þess eðlis að ef þau eru einu sinni glötuð þá verða þau ekki end­ur­heimt. Einstök víð­erni á hálendi Íslands vinn­ast ekki aftur ef þau hafa einu sinni spillst og ef við leyfum öðrum tungu­málum eða and­vara­leysi að hrifsa af okkur ríki­dæmi íslensk­unnar, bara af því að eitt­hvað annað er í augna­blik­inu snið­ugt þá verður ekki aftur snúið. Þá getur þjóð­tungan glat­ast á fáeinum ára­tugum. Ég vil því á þessum merka afmæl­is­degi grund­vall­ar­mann­rétt­inda biðja ykkur æsku­fólk að gleyma því aldrei að standa vörð um landið og tung­una.

„Á þessum degi þurfum við að heita okkur því að rækta mann­rétt­indi sem lýð­ræðið hefur fært okkur í stjórn­ar­skránni.“

Ég vil líka minna okkur á að frelsið og jöfn­uð­ur­inn sem okkur er tryggður í stjórn­ar­skránni er hvor­ugt sjálf­gefið. Það búa ekki allar þjóðir við það lán að vera tryggð mann­rétt­indi með sama hætti og okkur Íslend­ingum. Á þessum degi þurfum við að heita okkur því að rækta mann­rétt­indi sem lýð­ræðið hefur fært okkur í stjórn­ar­skránni og þau mann­rétt­indi sem lög­gjaf­inn hefur tryggt okkur með marg­vís­legum laga­setn­ingum.

Mér hefur alltaf þótt svo fal­legt og tákn­rænt að orðið kven­rétt­indi rímar við orðið mann­rétt­indi.

Þá er jafn gott að rifja það upp að allir feður og allir bræður vita að dætur þeirra og systur eru jafn­klárar og þeir en þeir verða að hafa hug­fast að það á ekki aðeins við um þeirra eigin dætur og systur. Þetta vissu þeir Hannes Haf­steinn og karl­arnir allir sem sam­þykktu lög um kosn­inga­rétt kvenna fyrir einni öld og þetta vita auð­vitað allir hugs­andi karlar, ekki síður í dag en fyrir 100 árum.

Á þessum degi þegar við minn­umst hund­rað ára afmælis kosn­inga­réttar kvenna er gott og ekki síður afar mik­il­vægt að hlakka til fram­tíð­ar­innar. Að vita að um aldir hafi verið sagt á Íslandi að öll él birti upp um síðir. Að setja okkur að horfa til hennar björtum augum. Svart­sýnin dregur úr okkur þrek, bjart­sýni eykur okkur kjark. Og að vita að í fram­tíð­inni leyn­ast ekki aðeins lof­orð heldur einnig efndir. Annars hefðu konur aldrei fengið kosn­inga­rétt á Íslandi.

Hjart­an­lega til ham­ingju með dag­inn.“

Auk Vigdísar fluttu þau Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis og Fríða Rós Valdi­mars­dóttir, for­maður Kvenn­rétt­inda­fé­lags Íslands, bar­áttu­ræður. „Við erum stödd í miðri bylt­ingu – enn einni sam­fé­lags­bylt­ing­unni sem knúin er af afli kvenna­sam­stöðu,“ sagði Fríða Rós. „Ungar konur hafa risið upp og hrifsað til sín skil­grein­inga­valdið. Þær brjóta af sér hlekki klám­væð­ingar og kúg­andi kynja­kerfis. Þær fara úr að ofan og hafna klám­væð­ingu brjósta sinna.“

Ræðu hennar má einnig lesa í heild sinni hér að neðan. 

Setjum frelsið í augnsýn

„Til ham­ingju með dag­inn! Gleði­legt hátíð­arár!

Í jan­úar leit út fyrir að þetta ár yrði eins og hvert annað hátíð­arár þar sem litið yrði frið­sam­lega yfir sigra og ósigra kvenna­bar­átt­unnar og fagnað með hátíð­legum hætti. Engan óraði fyrir því að um mið­bik árs­ins yrðum við stödd í miðri bylt­ingu. Ungar konur hafa risið upp og hrifsað til sín skil­grein­inga­valdið. Þær brjóta af sér hlekki klám­væð­ingar og kúg­andi kynja­kerfis. Þær fara úr að ofan og hafna klám­væð­ingu brjósta sinna, þær tísta hver í kapp við aðra um hvers­dags­lega kynja­mis­réttið og hund­ruðum saman segja þær áður þagg­aðar sögur af kyn­ferð­is­brotum sem þær hafa orðið fyrir.

Þessar aðgerðir ættu þó ekki að koma á óvart.

Við vitum að þau sem lent hafa í stríði glíma við þung­bærar afleið­ingar þess. Við vitum líka að afleið­ingar kyn­ferð­is­of­beldis eru sam­bæri­legar og hjá fólki sem verið hefur í stríði. Á Íslandi hefur að minnsta kosti ein af hverjum fjórum konum verið beitt kyn­ferð­is­of­beldi. Við þolendur getum sagt frá ofbeld­inu, við getum skilað skömminni en, því miður, getum við ekki skilað afleið­ing­unum.

„Á Íslandi hefur að minnsta kosti ein af hverjum fjórum konum verið beitt kyn­ferð­is­of­beldi.“

Það eru ekki ýkjur að segja að kyn­ferð­is­of­beldi sé stríð gegn konum.

Ég spyr: Erum við sam­fé­lag sem vill gera það sem í okkar valdi stendur til að vinna að friði í þessum mála­flokki? Hversu lengi ætlum við að efla ein­ungis það starf sem tekur á afleið­ingum ofbeldis í stað þess að leggja þyngri áherslu á fyr­ir­byggj­andi aðgerðir?

Ég spyr: Hversu mörg ár í við­bót þarf kvenna­hreyf­ingin að starf­rækja Kvenna­at­hvarfið, Stígamót, Aflið og Dreka­slóð, svo eitt­hvað sé nefnt, áður en komið verður á raun­veru­legum for­vörnum til að útrýma ofbeld­inu?

Í kjara­bar­áttu vetr­ar­ins kjarn­ast ójafnt mat á störfum kynj­anna – það mat blasir við okkur líkt og hvítir sloppar í útfjólu­bláu ljósi. Laga­setn­ingu á hjúkr­un­ar­fræð­inga og aðrar kvenna­stéttir innan heil­brigð­is­kerf­is­ins er ekki hægt að túlka öðru­vísi en svo að vegið sé að hefð­bundnum kvenna­störfum. Vegið að störfum kvenna á Íslandi. Kröfur kvenna eru þagg­aðar niður líkt og ofbeldi sem konur eru beittar hefur verið þaggað niður í gegnum tíð­ina.

Samkvæmt nið­ur­stöðum rann­sóknar sem stjórn­völd kynntu fyrir stuttu kom fram að launa­mun kynj­anna er hægt að leið­rétta með því að vinna gegn kynja­skiptum vinnu­mark­aði. Sem sagt, búið er að greina hver næstu skref þurfa að vera til að leið­rétta launa­mun­inn. Og ég spyr: Hvernig stuðlar laga­setn­ing á verk­fall hjúkr­un­ar­fræð­inga að þeirri leið­rétt­ingu?

„Kröfur kvenna eru þagg­aðar niður líkt og ofbeldi sem konur eru beittar hefur verið þaggað niður í gegnum tíð­ina.“

Í sam­fé­lagi okkar er nú kallað eftir breyt­ingum úr mörgum áttum. Sam­fé­lag­inu er vel hægt að breyta.

Til eru ótal leiðir til að leið­rétta kerf­is­vill­urnar sem við­halda mis­rétti kynj­anna. Við eigum rann­sóknir sem sýna hvernig styrkja megi dóms­kerfið til að gera það hæf­ara til að takast á við kyn­ferð­is­brota­mál. Við höfum þekk­ingu og verk­færi til að eyða launa­mun kynj­anna. Í land­inu er svo sann­ar­lega til staðar sá mannauður sem þarf til að hrinda þess­ari leið­rétt­ingu í fram­kvæmd.

Nú þarf vilja til breyt­inga, póli­tískan og sam­fé­lags­legan vilja.

Kæru áheyr­endur, við erum stödd í miðri bylt­ingu – enn einni sam­fé­lags­bylt­ing­unni sem knúin er af afli kvenna­sam­stöðu. Setjum frelsið í augn­sýn. Ég er spennt að vita hvað ger­ist næst.

Gleði­legt bylt­ing­arár.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár