Formenn flokk­anna allir í lyk­il­stöðu Óttar Proppé, Bjartri fram­tíð, Sigurður Ingi Jóhanns­son, Fram­sókn­ar­flokki, Benedikt Jóhann­es­son, Viðreisn, Bjarni Bene­dikts­son, Sjálf­stæð­is­flokki, Birgitta Jóns­dóttir, Pírötum, Oddný Harð­ar­dóttir, Sam­fylk­ingu og Katrín Jak­obs­dóttir, vinstri grænum. Mynd: Pressphotos

Ný ríkisstjórn kemur á óvart

Myndar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn rík­is­stjórn með Vinstri grænum? Kemur Björt fram­tíð til bjargar?

Líklegt er að ein­hver for­manna stjórn­mála­flokk­anna sem náðu kjöri til Alþingis þurfi að breyta afstöðu sinni til sam­starfs með Sjálf­stæð­is­flokknum eftir Alþing­is­kosn­ingar 2016.

Allir þrír stærstu sig­ur­veg­arar kosn­ing­anna, sem bættu við sig 17 þing­mönnum í kosn­ing­unum, hafa lýst yfir and­stöðu við að vinna með stærsta flokknum, Sjálf­stæð­is­flokknum. Viðreisn hefur ekki hafnað því að vinna með Sjálf­stæð­is­flokknum einum og sér, en hafnað því að vinna með Sjálf­stæð­is­flokknum að við­bættum Fram­sókn­ar­flokknum.

Píratar hafa hafnað því afdrátt­ar­laust að vinna með Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki vegna „spill­ingar“ og svika á lof­orðum, sam­kvæmt til­kynn­ingu á blaða­manna­fundi fyrir kosn­ingar. Smári McCarthy sagði í morgun að verið væri að „verð­launa Sjálf­stæð­is­flokk­inn fyrir aðkomu að spill­ingu“. Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, ítrek­aði í umræðum flokks­for­manna á Stöð 2 í hádeg­inu að vinna með Sjálf­stæð­is­flokknum.

Þá hefur for­maður Við­reisnar hafnað því að vinna með flokk­unum tveimur í einu og Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, sagð­ist ekki ætla í stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum.

„Við höfum ekki séð slíkt sam­starf fyrir okkur,“ sagði Katrín á Stöð 2 í hádeg­inu, um mögu­lega stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Viðreisn.

Þá eru eftir nokkrir mögu­leikar sem eru erf­iðir mál­efna­lega séð.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er í lyk­il­stöðu eftir Alþing­is­kosn­n­g­arnar með 21 þing­mann af 63 á Alþingi, miðað við stöð­una í nótt. Næstir koma vinstri grænir með 10 þing­menn, Píratar með 10 þing­menn, Viðreisn með 7, Framsókn með 8,  Björt fram­tíð með 4 og Sam­fylk­ing með 3.

Horft til hægriBjarni Bene­dikts­son er í lyk­il­stöðu og erfitt að mynda rík­is­stjórn án hans, þótt tveir af þremur stærstu flokk­unum hafi úti­lokað hann fyr­ir­fram.

Gefur Viðreisn eftir fyrir völdin?

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn getur myndað 36 manna rík­is­stjórn með Fram­sókn­ar­flokknum og Viðreisn. Hins vegar hefur Benedikt Jóhann­es­son sagt að hann myndi ekki rík­is­stjórn með frá­far­andi rík­is­stjórn­ar­flokkum. „Það verður ekki slík rík­is­stjórn. Það verður ekki rík­is­stjórn Fram­sókn­ar, Sjálf­stæð­is­flokks, og Við­reisnar eftir kosn­ing­ar,“ sagði Benedikt í Harma­geddon á X-inu 977 18. októ­ber.

„Það verður ekki rík­is­stjórn Fram­sókn­ar, Sjálf­stæð­is­flokks, og Við­reisnar eftir kosn­ing­ar“

Þá eru nokkur stefnu­mál í veg­inum fyrir slíku sam­starfi. Viðreisn vill upp­boðs­leið­ina í kvóta, en hinir flokk­arnir tveir eru and­snúnir. Þá falla hug­myndir Við­reisnar um mynt­ráð eða mögu­lega aðild að Evr­ópu­sam­band­inu ekki að hug­myndum hinna flokk­anna í gjald­mið­ils­málum. Loks leggur Viðreisn áherslu á inn­leið­ingu sam­keppni í land­bún­að­ar­málum, sem gengur í ber­högg við hina flokk­ana tvo. Að öðru leyti gæti skatta­stefna flokk­anna fallið vel saman.

Hins vegar mælir fylg­is­hrun Fram­sókn­ar­flokk­inn gegn því að flokk­ur­inn verði í rík­is­stjórn. Þá hefur Benedikt end­ur­tekið yfir­lýs­ingu sína eftir kosn­ingar, um að hann fari ekki í stjórn með frá­far­andi rík­is­stjórn­ar­flokkum.

Vinstri grænir með Sjálfstæðisflokki

Hug­mynda­fræði­legur sam­hljómur gæti verið mik­ill í breiðri rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Vinstri grænna, hugs­an­lega með Fram­sókn­ar­flokknum án ráð­herra­stóls fyrir Sigmund Davíð Gunn­laugs­son.

Flokk­arnir eiga sam­leið í gjald­miðla­málum, þar sem allir vilja halda krón­unni. Enginn þeirra vill ganga í Evr­ópu­sam­bandið. Þeir eru allir íhalds­samir í land­bún­að­ar­málum og styðja rík­is­styrki. Loks eru bæði Fram­sóknar- og Sjálf­stæð­is­flokkur and­vígir upp­boðs­leið­inni í sjáv­ar­út­vegi, en Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður VG, hefur haldið öllu opnu í þeim efnum. Þá hefur Katrín verið sátt við tak­mark­aðar end­ur­bætur á stjórn­ar­skránni sam­hliða Fram­sóknar- og Sjálf­stæð­is­flokki.

Hins vegar lét Katrín þau orð falla viku fyrir kosn­ingar að hún vildi ekki rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum, eftir að Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, hafði ýjað að því að slíkt sam­starf væri á teikni­borð­inu. Sú afstaða Katrínar var í sam­ræmi við ályktun VG.

„Nei, mín afstaða er í sam­ræmi við þá stefnu sem mín hreyf­ing hefur tekið og sam­þykkti meira að segja í ályktun fyrr á þessu ári um að við sjáum fyrir okkur að ef stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir fái til þess umboð eigi þeir að mynda hér rík­is­stjórn að loknum kosn­ingum.“

Því mætti túlka afstöðu Katrínar þannig að stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir hefðu ekki fengið umboð til að mynda rík­is­stjórn og þess vegna hafi þurft að leita ann­arra leiða.

„Hins vegar er það óhugs­andi við núver­andi kring­um­stæður ...“

Svandís Svav­ars­dóttir, odd­viti VG í Reykja­vík suður, tók hins vegar dýpra í árinni en Katrín þegar hún úti­lok­aði sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum.

„Vera kann að sam­starf af þessu tagi hafi ein­hvern tíma verið á dag­skrá hér fyrr á árum. Hins vegar er það óhugs­andi við núver­andi kring­um­stæður eftir aðdrag­anda kosn­ing­anna, upp­ljóstr­an­irnar úr Panama-skjöl­unum og við­brögð for­ystu­manna stjórn­ar­flokk­anna. Þetta hljóta allir að sjá.“

Líklegt er að þessir flokkar nái saman um upp­bygg­ingu inn­viða, með því svig­rúmi sem er til staðar í rík­is­fjár­málum, þótt stefna þeirra í skatta­málum gæti stang­ast á.

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, frá­far­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði í kosn­inga­sjón­varpi RÚV í nótt að það væri „ekki óspenn­andi“ ef Katrín Jak­obs­dóttir færi til sam­starfs með Bjarna. „Það er ljóst að vinstri grænir verða við borðið,“ sagði Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, odd­viti VG í suð­vest­ur­kjör­dæmi, í nótt. Þá sagði Katrín í nótt að kom­inn væri tími á meiri fjöl­breytni.

Líklegra væri að VG vildi vinna með Viðreisn, ásamt Sjálf­stæð­is­flokknum, eða Bjartri fram­tíð, heldur en Fram­sókn­ar­flokknum. Bæði Bjartrar fram­tíðar og Vinstri grænna, Björt Ólafs­dóttir og Svandís Svav­ars­dóttur, töl­uðu gegn mögu­legu sam­starfi með Fram­sókn­ar­flokknum í þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í morgun.

Katrín Jak­obs­dóttir hefur hins vegar end­ur­tekið and­stöðu sína við rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Hún seg­ist hafa viljað stjórn þeirra sem hafa haft minni­hluta á Alþingi. „En það virð­ist ekki í spil­un­um. Við höf­um líka sagt að við telj­um nán­ast enga mál­efna­lega sam­leið með okk­ur og Sjálf­stæð­is­mönn­um og það hef­ur ekk­ert breyst í því. Eins og ég er búin að segja, þetta eru þeir flokk­ar sem standa lengst frá hvor öðrum í ís­lensk­um stjórn­mál­um. Við sjá­um ekki fyr­ir okk­ur slíkt sam­starf,“ sagði hún í sam­tali við Mbl.is.

Sam­fylk­ingin hrundiOddný Harð­ar­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, seg­ist vera hætt að leita að útskýr­ingum á hruni Sam­fylk­ing­ar­innar, eftir verstu útkomu jafn­að­ar­manna í hund­rað ár.

Björt framtíð í breiðri stjórn

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gæti lík­lega myndað rík­is­stjórn með Vinstri grænum og Bjartri fram­tíð, án þess að síð­ast­nefndi flokk­ur­inn þyrfti form­lega að brjóta kosn­inga­lof­orð.

Bæði land­bún­aðar- og sjáv­ar­út­vegs­stefna Bjartrar fram­tíðar er nægi­lega opin og óljós til þess að bjóða upp á ólík­legt sam­starf, þrátt fyrir að flokk­ur­inn sé hlynnt­ari breyt­ingum en hinir tveir.

Þó svo að Björt fram­tíð leggi áherslu á breyt­ingu á stjórn­ar­skránni er orða­lagið nægi­lega opið til þess að sam­þykkja þær tak­mörk­uðu breyt­ingar sem þegar hafa verið lagðar til í stjórn­laga­nefnd Alþingis, meðal ann­ars að und­ir­lagi Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins: „Björt fram­tíð leggur þunga áherslu á að breyt­ingar verði gerðar á stjórn­ar­skrá Íslands í sam­ræmi við vilja þjóð­ar­innar, eins og hann birt­ist í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um stjórn­ar­skrár­breyt­ingar haustið 2012.“

Stefna Bjartrar fram­tíðar er hins vegar ekki afdrátt­ar­laus. Fyr­ir­sjá­an­legur árekstur væri í Evr­ópu­sam­bands­mál­inu, en sneiða mætti hjá honum með því að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um hvort ganga ætti í Evr­ópu­sam­bandið, eins og frá­far­andi rík­is­stjórn­ar­flokkar höfðu þegar lofað fyrir síð­ustu Alþing­is­kosn­ingar 2013: „Björt fram­tíð leggur áherslu á að landa góðum samn­ingi við ESB sem þjóðin getur eftir upp­lýsta umræðu, sam­þykkt í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Þá opn­ast leið til gjald­mið­ils­sam­starfs við Evrópska seðla­bank­ann (ERM II), sem strax getur aukið stöð­ug­leika. Svo getum við tekið upp evru þegar skil­yrði skap­ast til þess. Það er auð­vitað ekki töfra­lausn en þó að öllum lík­indum sig­ur­strang­leg­asta leiðin í átt að efna­hags­legum stöð­ug­leika ...Björt fram­tíð vill að Ísland vinni Eurovision.“

Ný „Viðreisnarstjórn“ með Bjartri framtíð

Hins vegar hægt að mynda tæpa rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar. Slík rík­is­stjórn væri tæp, með aðeins 32 þing­menn gegn 31 þing­manni stjórn­ar­and­stöðu, með sama meiri­hluta og Nýsköp­un­ar­stjórnin 1944 til 1947 og Við­reisn­ar­stjórnin 1963 til 1971, sem sam­sett var af hægri og vinstri flokki, Sjálf­stæðis- og Aþýðu­flokki. Allir flokk­arnir þrír eru í kringum miðju eða hægra megin við hana í efna­hags­legu til­liti. Helsti ágrein­ing­ur­inn gæti legið í sjáv­ar­út­vegs­málum, þar sem Viðreisn hafði talað fyrir upp­boði á afla­heim­ildum, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn staðið harður gegn því. Þá falla stefnur Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar ágæt­lega saman. Í þeirri rík­is­stjórn hefur eng­inn úti­lokað sam­starf við annan, ólíkt flestum öðrum mögu­legum rík­is­stjórn­ar­sam­störfum. 

Óttar Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, virt­ist opinn fyrir öllu í umræðum for­manna á Stöð 2 í hádeg­inu. „Mál­efna­lega hafa þessir flokkar verið ansi langt í sundur. En það er ekki ástæða til að úti­loka neitt fyr­ir­fram,“ sagði Óttar Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar.

Loks væri fimm flokka stjórn Pírata, VG, Við­reisnar, Bjartrar fram­tíðar og Sam­fylk­ing­ar­innar mögu­leg, með 35 þing­menn, en fimm flokka rík­is­stjórn hefur aldrei verið við völd hér á landi.

Eftir kosn­ing­arnar 1987 mynd­aði hins vegar Stein­grímur Her­manns­son breiða rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks, Alþýðu­flokks, Alþýðu­banda­lags og svo Borg­ara­flokks, með stuðn­ingi Samtaka um jafn­rétti og félags­hyggju og lýsti hann eftir á mik­illi ánægju með þá rík­is­stjórn.

Viðreisn lýsir hins vegar efa­semdum með fimm flokka rík­is­stjórn. „Þá værum við að ganga inn í Pírata­banda­lagið. Ég held að það væri á skjön við úrslit kosn­ing­anna,“ sagði Benedikt Jóhann­es­son á Stöð 2 í hádeg­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár