Mynd: Vera Pálsdóttir

Nágrannabörn Íslendinga kynntust nýrri lífsreynslu

Næstu nágrannar Íslend­inga í þorpum á Austur-Græn­landi búa við veru­leika sem er langt frá íslenskum hvers­dags­leika. Hrafn Jök­uls­son segir frá heim­sókn græn­lenskra barna til Íslands.

Mið­viku­dag­inn 29. ágúst kl. 17.52 lenti vél Flug­fé­lags Íslands á Reykja­vík­ur­flug­velli, eftir tveggja stunda flug frá Kulusuk á Græn­landi. Á sumrin má tala um loft­brú milli Reykja­víkur og Kulusuk, þangað þyrp­ast erlendir túristar í dags­ferðir til að drepa niður fæti á stærstu eyju heims­ins og rölta um litla þorpið þar sem íbúar eru innan við 300. 

En ferða­lang­arnir sem voru að koma frá Kulusuk þennan mið­viku­dag voru ekki þraut­reyndir túristar með gull­kort: Þetta voru 22 börn og fimm kenn­arar frá örlitlu þorp­unum á Ammassalik-svæð­inu: Kulusuk, Sermiligaaq, Tiniteqilaq, Kuummi­iut og Isortoq. Daginn áður höfðu þrjú börn og einn kenn­ari komið með vél Nor­landair frá Ittoqqortoormiit til Akur­eyrar og þaðan til Reykja­víkur.

Þetta voru sund­börnin okkar árið 2016. Ellefti árgangur 11 ára barna frá litlu þorp­unum á aust­ur­strönd­inni, kom­inn í tveggja vikna heim­sókn til að læra sund, kynn­ast íslensku sam­fé­lagi og gera ótal­margt skemmti­legt. Enda skein eft­ir­vænt­ing og spenna úr aug­unum þegar þau röð­uðu sér upp til mynda­töku á Reykja­vík­ur­flug­velli, lang­flest að komu úr sinni fyrstu ferð með flug­vél, næstum öll komin til útlanda í fyrsta sinn. 

Svo nálægt og samt svo fjarlægt

Í hugum margra Íslend­inga er Grænland fjar­lægur og fram­andi heimur. Ég þekki ýmsa sem ferð­ast hafa um flestar heims­ins koppa­grundir, en aldrei til Græn­lands komið. Og þó er þetta okkar næsti nágranni: Frá Straum­nesi að Nansen-höfða eru 320 kíl­metrar. Bein loft­lína milli Reykja­víkur og Egils­staða er 375 kíló­metrar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár