Mynd: Magnus Kristoffer Lysen

Mótmælir þöggun í kjölfar læknamistaka

Auðbjörg Reyn­is­dóttir missti son sinn vegna mis­taka á bráða­mót­töku barna. Hún vill opna umræð­una um mis­tök í heil­brigð­is­kerf­inu og þöggun Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins á erf­iðum málum. Auðbjörg berst fyrir stofnun umboðs­manns sjúk­linga og gagn­sæi í rann­sóknum á mis­tökum. Enginn tals­maður sjúk­linga er í starfs­hópi um alvar­leg atvik í heil­brigð­is­þjón­ustu.

Lækn­ir­inn slökkti á önd­un­ar­vél­inni og tók túbuna úr kok­inu. Mér létti rosa­lega þegar ég sá að dreng­ur­inn minn and­aði sjálfur. Ég mátti búast við nokkrum mín­útum eða klukku­stundum sem hann gæti lifað án vél­ar­innar. Daginn áður sögðu lækn­arnir okkur að það væri engin heila­starf­semi og ekk­ert hægt að gera.“

Þannig byrjar Auðbjörg Reyn­is­dóttir sögu Jóels, sonar síns, en hann lést í kjöl­far mis­taka, ein­ungis fjórtán mán­aða gam­all. Á hádegi þann 22. febr­úar 2001 fór Auðbjörg með Jóel á bráða­mót­töku barna en hann hafði verið veikur um nótt­ina og kastað upp. „Átta vikum fyrir tím­ann var hann tek­inn með keis­ara­skurði því höf­uðið stækk­aði of hratt. Viku­gam­all fékk hann ventil vegna vatns­höf­uðs. Þessi vent­ill hafði stífl­ast tvisvar einmitt með þessum ein­kennum. Hann hafði einnig fengið iðra­kveisur og bak­flæði, líka með þessum ein­kennum,“ segir Auðbjörg. Lækn­arnir sem tóku á móti þeim á bráða­mót­tök­unni þekktu sögu Jóels en ákváðu engu að síður að um iðra­kveisu væri að ræða og gáfu honum vökva í æð. „Ég hlakk­aði til að sjá hann hress­ast, yfir­leitt tók það hálf­tíma. Svo komu hjúkr­un­ar­fræð­ingar til að gera mæl­ingar; blóð­þrýst­ingur, mettun og fleira. Ég sagði að mér finnd­ist hann ekki vera að hress­ast. Alveg í and­stöðu við það sem ég átti von á. Þær komu aftur, mér fannst honum versna en ekki batna. Ég hringdi bjöll­unni og sagð­ist vera að missa sam­band við hann, sem er mjög alvar­legt ein­kenni. En það gerð­ist ekk­ert. Þær bara mældu og fóru,“ segir Auðbjörg.

Fannst enginn hlusta

Um þrjúleytið seg­ist Auðbjörg hafa verið orðin veru­lega svöng, enda hafði hún ekki borðað frá því dag­inn áður. „Þannig að ég ákvað að skreppa í sjopp­una og fá mér sam­loku og skildi hann eftir hjá hjúkr­un­ar­fræð­ing­unum inni á vakt­inni. Þegar ég kom til baka staldr­aði ég við í dyr­unum og þetta atvik líður mér aldrei úr minni. Strák­ur­inn lá í vagn­inum bak við hjúkr­un­ar­fræð­ing­inn sem sat við tölv­una og spil­aði Tetris. Það var greini­lega ekki mikið að gera. En áfram komu þær og mældu og áfram kvart­aði ég og ekk­ert gerð­ist.“

Það var ekki fyrr en um hálf sex­leytið að kvöldi sem tekin var són­ar­mynd af höfði Jóels. „Vá, hvað ég hlakk­aði til að hitta lækni sem myndi örugg­lega sjá strax að hann var orð­inn alveg rænu­laus þegar þarna var komið. En nei, lækn­ir­inn var í sömu leiðslu og hjúkr­un­ar­fræð­ing­arnir. Hann var algjör­lega einn með sínu tæki, leit hvorki á mig né strák­inn. Sagði bara: „Settu hann þarna“. Eins og ég væri að koma með ein­hvern rusla­poka. Hann þagði bara, fram­kvæmdi sína rann­sókn, horfði á skjá­inn og sagði ekk­ert þangað til hann sagði: „Þið megið fara aftur inn“. Aftur kom hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn til að mæla og ég benti henni á að öndun hans væri orðin skrítin. Hvasst sog­hljóð heyrð­ist í stráknum. Hún fór. Ég heyrði óm, það voru ein­hverjir að tala saman frammi á gangi. Ég sá að strák­ur­inn blán­aði og var hættur að anda. Ég kall­aði: „Hann er hættur að anda!“ Þá fyllist stofan af fólki. Ég heyrði að nið­ur­stöður úr sónar voru að ventill­inn var stíflaður sem þýddi að vökva­gjöfin var ban­eitruð. Skurð­lækn­ir­inn kom og tók hann í aðgerð. Það þurfti ekki að svæfa hann því hann var kom­inn í það djúpt kóma. Ég heyrði lækn­inn segja: „Af hverju var ekki kallað á mig fyrr?““

Reiðin tók öll völd

Eftir aðgerð­ina var Jóel fluttur á gjör­gæslu, þar sem hann var um nótt­ina. „Ég svaf ekk­ert. Ég hug­leiddi aftur og aftur hvað hafði gerst og end­ur­tók orð lækn­is­ins í huga mér aftur og aftur. Klukkan sex um morg­un­inn fór ég fram til Jóels og sá að hann var far­inn. Ég bara gerði mér grein fyrir því. Hann var ekki þarna lengur. Önd­un­ar­vélin gekk, en hann var ekki þarna. Ég var orðin veru­lega óró­leg og gekk um gólf gjör­sam­lega frið­laus. Svo komu lækn­arnir. Þeir vildu að ég sett­ist niður til að ræða málin. Það gat ég bara ekki gert. Það var úti­lokað. Ég spurði þá beint: „Fór eitt­hvað úrskeiðis í gær?“ Þeir litu hvor á annan og sögðu ekk­ert. Meira þurfti ég ekki að heyra. Ég tromp­að­ist á staðnum. Reiðin tók gjör­sam­lega völd. Ég rauk út og skellti eins fast og ég gat svo gamli spít­al­inn nötr­aði. Ég rauk niður í kjall­ara gjör­sam­lega buguð. Öskraði og skalf. En ein­hvern veg­inn staulað­ist ég upp aftur.“

„Ég tromp­að­ist á staðnum. Reiðin tók gjör­sam­lega völd. Ég rauk út og skellti eins fast og ég gat svo gamli spít­al­inn nötr­aði.“

Jóel var settur í heila­línu­rit sem sýndi nán­ast enga virkni, þó hjartað slægi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár