Mynd: Kristinn Magnússon

Lítil húsgögn fyrir litla íbúð

Lína Birgitta Camilla Sig­urð­ar­dóttir og Sverrir Bergmann búa í lít­illi stíl­hreinni íbúð í Kópa­vog­inum. Á síð­ustu vikum og mán­uðum hafa staðið yfir miklar fram­kvæmdir og breyt­ingar á heim­il­inu en Lína Birgitta hreins­aði nán­ast allt út úr íbúð­inni þegar hún flutti inn.­

Lína Birgitta Camilla Sig­urð­ar­dóttir er til­tölu­lega nýflutt inn til kærastans, útvarps­manns­ins og söngv­ar­ans Sverris Berg­manns, en hún var ekki lengi að setja svip sinn á heim­ilið. „Hann keypti íbúð­ina í fyrra og þegar ég flutti inn í haust ákváðum við að gera hana alla upp. Parketið sem var á gólfum var app­el­sínugult þannig að það fyrsta sem við gerðum var að skipta því út. Það var svo ljótt að ég vildi að ég ætti brot til þess að sýna þér. Við mál­uðum einnig alla glugga- og hurða­karma hvíta en þeir voru áður við­ar­lit­aðir. Það var hálf­gerður sum­ar­bú­staða­fíl­ingur hérna inni.“

Auk þess að skipta um parket og mála við­ar­lista hafa Lína Birgitta og Sverrir málað bað­her­bergið hvítt og sett upp skápa í for­stof­unni. Breyt­ing­arnar standa hins vegar enn yfir en Lína seg­ist von­ast til að þeim verði lokið fyrir jól. Lína lýsir sínum stíl sem stíl­hreinum og mínímal­ískum. „Ég vil hafa lítið af dóti og helst allt hvítt,“ segir hún og tekur fram að Sverrir sé ekki með 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár