Mynd: Kristinn Magnússon

Leiðir okkar mömmu skildi

Mikael Torfason, rit­höf­undur og fyrr­ver­andi rit­stjóri, tekst þessa mán­uð­ina á við for­tíð sína með skrifum á sjálfsævi­sögu­legri bók þar sem hann skoðar sam­band for­eldra sinna, áhrifin sem vera í Vottum Jehóva hafði á líf þeirra og hvernig trú þeirra var nærri orðin til þess að hann fengi ekki lækn­ingu við fæð­ing­argalla.

Þegar ég var að vinna á rit­stjórnum blað­anna og verið var að leita að við­mæl­endum í helg­ar­við­töl var ég vanur að segja þann brand­ara að ég ætti sögur í for­síðu­við­töl fyrir hverja ein­ustu helgi árs­ins,“ segir Mikael hlæj­andi þegar hann er spurður hvað hann, fer­tugur mað­ur­inn, hafi upp­lifað sem hafi fengið hann til að byrja að skrifa sjálfsævi­sögu­lega bók. „Ég hef stundum sagt í gríni að ég hafi upp­lifað meira fyrstu tvær vikur lífs míns en margir upp­lifa alla ævina.“

Þar vísar hann til þess að þegar hann fædd­ist voru þarmar hans að hluta óvirkir og ekki leið á löngu þar til hann var kom­inn með stóma­poka. „Það gekk hins vegar ekki þrauta­laust fyrir sig þar sem pabbi og mamma voru Vottar Jehóva og þar af leið­andi á móti hvers konar inn­gripi í lík­amann. Lækn­ir­inn minn þurfti að berj­ast gegn skoð­unum þeirra til að fá að bjarga lífi mínu.“

Ólst upp hjá föður sínum 

Mikael segir bók­ina vera upp­gjör sitt við for­eldra sína, frekar en sjálfsævi­sögu, enda ljúki henni þegar hann sé fimm ára. „Bókin snýst mest um ást­ar­sögu mömmu og pabba sem hófst þegar þau voru átján og nítján ára og lauk þegar ég var á fimmta ald­ursári. Þetta tíma­bil finnst mér mjög áhuga­vert og auð­vitað hafði það mót­andi áhrif á líf mitt. Trú þeirra gerði það að verkum að ég fékk tak­mark­aða heil­brigð­is­þjón­ustu, þau vildu frekar fórna mínu jarð­neska lífi til að ég gæti öðl­ast eilíft líf en að ganga á móti kreddum trú­fé­lags­ins. Þetta verður mikið drama sem gengur í raun frá þeirra sam­bandi auk þess sem pabbi var orð­inn vaklandi í trúnni og far­inn að drekka of mikið, sem pass­aði auð­vitað ekki inn í lífs­reglur Vottanna. Það er svo sem hægt að vera fylli­bytta í hvaða trú­fé­lagi sem er ef þú iðr­ast og auð­mýkir þig eftir hvert fyll­erí, en það heldur ekki til lengdar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár