Sérstök upp­lifun Unnur lýsir upp­lifun sinni á því að ganga fram fyrir panel og lýsa rann­sókn­ar­verk­efn­inu. Í þessum panel voru þrjár konur og átján karlar, flestir vel yfir miðjum aldri. Hún fékk engin við­brögð og vissi ekk­ert hvernig hún hafði staðið sig. Tölvu­póst­ur­inn í byrjun þessa mán­aðar, með upp­lýs­ingum um að hún hefði fengið styrk upp á 240 millj­ónir, kom því þægi­lega á óvart. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ísland er ekki sjálfbært þegar kemur að fjármögnun vísinda

Unnur Anna Valdi­mars­dóttir pró­fessor land­aði nýverið 240 millj­óna króna styrk sem gerir henni kleift að leggja upp í umfangs­mikla leit að áfallastreitu­gen­inu. Þessi kraft­mikla kona er ekki bara vís­inda­maður með brjál­aðar hug­myndir heldur líka móðir fim­leika­stelpu, eig­in­kona einnar af fót­bolta­hetjum Íslend­inga, búkona og sveita­stúlka á sumrum, sem hefur varið stórum hluta lífs­ins við nám og vís­inda­störf í útlöndum en er smátt og smátt að skjóta rótum í vest­urbæ Reykja­víkur.

Þegar Unnur Anna Valdi­mars­dóttir, pró­fessor í far­alds­fræði við lækna­deild Háskóla Íslands, mætti til vinnu að morgni snemma í des­em­ber, eftir sína dag­legu ferð í Vest­ur­bæj­ar­laug, beið hennar happ­drætt­is­vinn­ingur í tölvu­póst­hólf­inu frá Evrópska rann­sókn­ar­ráð­inu. Þar var henni óskað til ham­ingju með að hafa verið veittur 2 millj­óna evra styrkur, jafn­virði 240 millj­óna króna, til áfram­hald­andi rann­sókna á erfðum heilsu­fars í kjöl­far áfalla. Styrk­ur­inn er sá hæsti sem ráðið veitir og kemur til með að ýta all­hressi­lega undir rann­sókna­starf sem á sér enga hlið­stæðu ann­ars staðar í heim­inum, eða eins og Unnur orðar það sjálf: „Þetta breytir öllu fyrir okkur!“

Leið eins og gellunni í Flashdance

Flestir leið­andi vís­inda­menn í Evrópu sækja um styrk til Evrópska rann­sókna­ráðs­ins. Snemma á þessu ári bár­ust ráð­inu um 2.300 umsóknir frá vís­inda­mönnum frá öllu Evrópska efna­hags­svæð­inu. Allar umsókn­irnar sem ber­ast fóru í gegnum umfangs­mikið mat og í kjöl­far þess voru um 600 vís­inda­menn boð­aðir til frek­ari við­tala í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Unnur var þeirra á meðal. Hún er þaul­vön því að kynna nið­ur­stöður rann­sókna sinna og að tala frammi fyrir fjölda fólks. Þrátt fyrir það seg­ist hún aldrei hafa verið eins stressuð eins og þegar hún var komin til Brussel, stóð frammi fyrir 20 manna dóm­nefnd og kynnti rann­sóknir sínar og fyr­ir­ætl­anir. „Mér leið eins og gell­unni í Flashdance. Af 20 manns í panel voru lík­lega þrjár konur, allir hinir voru karl­menn og flestir komnir vel yfir miðjan aldur.

„Ég hef varið dokt­ors­rit­gerð og gert ýmis­legt sem reynir á en ég held ég hafi aldrei verið eins stressuð.“

Það var ekki mikil gleði í salnum, sem var í hárri og grárri  bygg­ingu í Brussel. Það var móða á glugg­unum, enda lík­lega búið að taka við­tal við tíu manns á undan mér þennan dag. Þegar ég var að ganga inn mætti ég dönskum vís­inda­manni sem muldr­aði á leið­inni út: „Þetta er búið, þetta er búið!“ Ég gekk inn með þetta í eyr­unum og hitti þennan stóra panel sem var ekki bein­línis í stuði. Þar var ég með stutta 10 mín­útna kynn­ingu og svo grilluð í 20 mín­útur. Ég hef varið dokt­ors­rit­gerð og gert ýmis­legt sem reynir á en ég held ég hafi aldrei verið eins stressuð. Þetta voru svo rosa­lega krefj­andi og skrýtnar aðstæður. Ég fékk ekk­ert „feedback“ og hafði enga til­finn­ingu fyrir því hvernig ég stóð mig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár