Ráðherra mann­rétt­inda­mála Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra hefur nýlega við­ur­kennt að hún þekki ekki vel til þegar kemur að mál­efnum skjól­stæð­inga ráðu­neytis hennar; útlend­inga, hæl­is­leit­enda og flótta­fólks.

Innanríkisráðuneytið samþykkir að banna sjálfboðaliðum að heimsækja flóttafólk

Samkvæmt nýlegum heim­sókn­ar­reglum Útlend­inga­stofn­unar mega hvorki sjálf­boða­liðar né fjöl­miðla­fólk heim­sækja flótta­fólk á heim­ilum þeirra. Inn­an­rík­is­ráðu­neytið gerir engar athuga­semdir við regl­urnar og segir þær mik­il­vægan lið í þeirri stefnu að hafa mannúð að leið­ar­ljósi í mál­efnum útlend­inga.

Inn­an­rík­isáðu­neytið telur ekki að nýlegar heim­sókn­ar­reglur Útlend­inga­stofn­unar tak­marki aðgengi flótta­fólks að fjöl­miðlum eða til sam­skipta við sam­fé­lagið almennt. Þvert á móti telur ráðu­neytið að með því að meina fjöl­miðla­fólki og sjálf­boða­liðum að heim­sækja hæl­is­leit­endur sé verið að stuðla að því að koma mann­úð­lega fram við skjól­stæð­inga stofn­un­ar­innar. Þetta kemur fram í svari Þorleifs Ósk­ars­sonar, sér­fræð­ings hjá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, við skrif­legri fyr­ir­spurn Stund­ar­innar.

Regl­urnar kveða meðal ann­ars á um blátt bann við heim­sóknum sjálf­boða­liða og fjöl­miðla­fólks á heim­ili hæl­is­leit­enda. Útlend­inga­stofnun hefur gefið það út að þetta sé gert til þess „að vernda frið­helgi einka­lífs“ flótta­fólks. Inn­an­rík­is­ráðu­neytið gerir engar athuga­semdir við þennan rök­stuðn­ing Útlend­ingstofn­unar en við­ur­kennir að hafa hvorki yfir­farið starfs­reglur né verk­lag stofn­un­ar­innar í mál­inu.

Strangar heimsóknarreglur
Strangar heim­sókn­ar­reglur Kristín Völ­und­ar­dóttir er for­stjóri Útlend­inga­stofn­unar en stofn­unin hefur sett á fót strangar heim­sókn­ar­reglur sem meina sjálf­boða­liðum og fjöl­miðla­fólki að heim­sækja flótta­fólk á heim­ilum sínum.

Talar um mikilvæg mannúðarsjónarmið

Líkt og Stundin greindi frá hér, leggur Útlend­inga­stofnun blátt bann við því að hæl­is­leit­endur, sem hýstir eru í hús­næði undir for­ræði stofn­un­ar­innar, veiti fjöl­miðla­fólki við­töl á heim­ilum sínum. Þá hefur sjálf­boða­liðum einnig verið mein­aður aðgangur að þeim heim­ilum hæl­is­leit­enda sem eru undir for­ræði Útlend­inga­stofn­unar. Þessar reglur voru settar til þess „að vernda frið­helgi einka­lífs“ hæl­is­leit­enda, að því er fram kom í svari Þór­hildar Óskar Hagalín, upp­lýs­inga­full­trúa Útlend­inga­stofn­unar, við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar, sem birt hefur verið á vef Útlend­inga­stofn­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlabann Útlendingastofnunar

FréttirFjölmiðlabann Útlendingastofnunar

Íslenska ríkið má ekki banna heim­sóknir til flótta­fólks

Útlend­inga­stofnun lagði árið 2016 blátt bann við heim­sóknum fjöl­miðla­manna á heim­ili flótta­fólks og hæl­is­leit­enda. Inn­an­rík­is­ráðu­neytið lagði blessun sína yfir verk­lagið og sagði það stuðla að mannúð. Ung­verska ríkið hlaut nýlega dóm fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu vegna sam­bæri­legrar fjöl­miðla­tálm­unar.

9 mín. lestur

FréttirFjölmiðlabann Útlendingastofnunar

Banna hæl­is­leit­endum að tala við fjöl­miðla til að „vernda frið­helgi einka­lífs þeirra“

Útlend­inga­stofnun leggur blátt bann við við­tölum fjöl­miðla­fólks við flótta­fólk á heim­ilum þeirra. Regl­urnar eiga sér ekki stoð í almennum lögum en upp­lýs­inga­full­trúi stofn­un­ar­innar vísar í ákvæði stjórn­ar­skrár­innar um frið­helgi einka­lífs og heim­ilis máli sínu til stuðn­ings. Hann þver­tekur fyrir að með þessu sé vegið að tján­ing­ar­frelsi íbúa. Verk­efna­stjóri hæl­is­sviðs hjá Útlend­inga­stofnun líkir við­tali þátta­stjórn­enda Hæpsins við hæl­is­leit­endur Arn­ar­holti við hús­brot.

Mest lesið undanfarið ár