Illugi boðar þingsályktunartillögu um framtíð RÚV í vor

Mennta­mála­ráð­herra er sann­færður um að ólíkt fyr­ir­komu­lag verði á Rík­is­út­varp­inu eftir fimm ár. Hann vill að útvarps­gjaldið hald­ist óbreytt en seg­ist efins um fyr­ir­bærið ohf.

Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, hyggst setja á fót stýri­hóp í ráðu­neyt­inu um hlut­verk og fram­tíð Rík­is­út­varps­ins sem muni skila þings­á­lykt­un­ar­til­lögu næst­kom­andi vor. „Þannig gæf­ist Alþingi tæki­færi til að ræða um fram­tíð Rík­is­út­varps­ins og fram­tíð þeirra verk­efna sem Rík­is­út­varp­inu er ætlað að sinna. Á grund­velli slíkrar umræðu gætum við haldið áfram, hvort sem það leiðir til breyt­inga á þjón­ustu­samn­ingi, breyt­inga á lögum eða ann­ars,“ sagði Illugi meðal ann­ars á kynn­ing­ar­fundi um skýrslu nefndar Eyþórs Arnalds um starf­semi og rekstur RÚV fyrr í dag.  

Ólíkt fyrirkomulag eftir fimm ár

Illugi sér fyrir sér að stýri­hóp­ur­inn muni skoða hlut­verk og fyr­ir­komu­lag Rík­is­út­varps­ins á næstu fimm árum. „Hvernig sinnum við best þeim verk­efnum og þeim skyldum og náum best þeim mark­miðum sem eru sett hvað varðar almanna­út­varpið sem snúa að menn­ingu þjóð­ar­innar, sögu hennar, vís­indum og lýð­ræð­is­legum vett­vangi. Ég hafði þá hugsað mér að efna til vinn­unnar þannig að það væri til dæmis hægt að leggja fram á þingi seint í vor þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem tæki á þessum málum,“ segir Illugi í sam­tali við Stundina. „Ég get illa séð það fyrir mér að eftir fimm ár, í ljósi allra þeirra tækni­breyt­inga sem hafa orðið og í ljósi alls þess aðgengis sem almenn­ingur hefur nú af skemmti­efni, afþrey­ing­ar­efni, fræðslu­efni, menn­ing­ar­efni úr svo mörgum ólíkum áttum, að við verðum enn með sama fyr­ir­komu­lag eftir fimm ár. Mér finnst erfitt að sjá það fyrir mér.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár