Átök við borg­ara Lög­reglan lendir reglu­lega í átökum við borg­ara og stundum brjóta lög­reglu­menn af sér. Fer­ill­inn fyrir kvart­anir liggur hins vegar í gegnum lög­regl­una sjálfa. Á með­fylgj­andi mynd má sjá aðgerðir lög­reglu við útburð á hópi fólks af heim­ili í ágúst 2011. 99% beiðna um hler­anir eru sam­þykktar. Mynd: PressPhotos

Hver ver okkur fyrir brotum lögreglunnar?

Þegar borg­ari telur að lög­regla hafi brotið gegn sér er það lög­reglan sjálf sem tekur við kvört­unum og lög­reglu­þjónar sem rann­saka brotið. For­svars­menn lög­regl­unnar bregð­ast oft illa við þegar lög­reglan er staðin að lög­broti. Á einum ára­tug bár­ust rík­is­sak­sókn­ara alls 302 kærur vegna starfa lög­reglu­manna.

Lög­reglan gengur hart fram gegn frið­helgi einka­lífs ungs fólks á Íslandi sam­kvæmt for­manni Snar­rót­ar­innar, sam­taka um borg­ara­leg rétt­indi. Hafa yfir­menn lög­reglu ásamt inn­an­ríkis­ráð­herra sætt ítrek­uðum ákúrum vegna með­ferðar per­sónu­legra upp­lýs­inga und­an­farin miss­eri. Auknar heim­ildir lög­regl­unnar til per­sónunjósna með eða án gruns um glæpi eru nú aftur í umræðu eftir útgáfu hættu­mats rík­is­lög­reglu­stjóra í lok febr­úar.

Útistöður ungs fólks við lögreglu

Síðustu mán­uði hefur Snar­rótin safnað reynslu­sögum af við­skiptum almenn­ings og lög­reglu og hafa hátt í hund­rað sögur borist. Að mati Péturs Þor­steins­sonar, for­manns sam­tak­anna, notar lög­regla stríðið gegn fíkni­efnum til að grafa undan borg­ara­legum rétt­indum.
„Í íslensku stjórn­ar­skránni eru býsna ströng ákvæði um frið­helgi einka­lífs og það eru gerðar form­legar kröfur um hvenær má, til dæmis, gera hús­leit,“ segir hann í sam­tali við Stundina. „Þessar reglur hefur lög­reglan getað þanið út. Þær und­an­þágu­heim­ildir sem vissu­lega eru til staðar í stjórnar­skránni túlkar hún svo vítt að ákvæði mann­rétt­inda­kafla stjórn­ar­skrár­innar eru að mati Snar­rót­ar­innar í stór­hættu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár