Hannaði límmiða fyrir verðandi nauðgara

Ósk Gunn­laugs­dóttir hefur hannað lím­miða og umb­un­ar­spjöld fyrir verð­andi nauð­gara. Hún segir lím­mið­ana ekki til höf­uðs glasa­lím­miðum Þórunnar Antoníu, heldur við­bót í flóru lím­miða sem eiga að koma í veg fyrir nauðg­anir.

Hannaði límmiða fyrir verðandi nauðgara
Hannaði umb­un­ar­kerfi fyrir verð­andi nauð­gara Ósk Gunn­laugs­dóttir velti því fyrir sér hvernig lím­miðar gætu spornað við kyn­ferð­is­of­beldi og þetta var útkoman. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Þetta virkar vel, ég get stað­fest það sem móðir,“ segir Ósk Gunn­laugs­dóttir, en hún hefur hannað lím­miðaum­b­un­ar­kerfi fyrir verð­andi nauð­gara. Hug­myndin er að verð­andi nauð­gari umbuni sér með einum lím­miða í hvert sinn sem hann nauðgar ekki. Þegar hann hefur safnað sex lím­miðum á hann að launa sjálfum sér með verð­launum. 

Uppátæki Óskar má flokka sem við­brögð við sér­stökum lím­miðum sem eiga að koma í veg fyrir að við­kom­andi verði byrlað nauðg­un­ar­lyfjum, en Þórunn Antonía, söng­kona og kynn­ingar- og mark­aðs­stjóri tón­list­ar­há­tíð­ar­innar Secret Solstice, lét útbúa lím­mið­ana. Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti er vernd­ari verk­efn­is­ins og tekur þátt í að vekja athygli á því. Þórunn sagði frá því í við­tali við Vísi að hug­myndin hefði kviknað út frá sorg og van­mátt­ar­kennd stúlku sem er henni far kær og var byrlað lyf á skemmti­stað og nauðgað. Einnig seg­ist Þórunn hafa fylgst með máli Birnu Brjáns­dóttur og hafa upp­lifað að Birnu hefði verið byrluð ólyfjan.

Vara við hættulegri markaðssetningu

Lím­mið­arnir hafa vakið ansi hörð við­brögð en á meðal þeirra sem gagn­rýnir verk­efnið er Hildur Sverr­is­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. „Konur eiga að geta skemmt sér án lím­miða yfir glas­inu sínu. Það má heldur ekki verða konu „að kenna“ ef henni eru byrluð lyf því hún hafði ekki lím­miða á drykknum,“ sagði Hildur. 

Þá hefur pist­ill Hildar Lilli­endahl Vigg­ós­dóttur um verk­efnið vakið tals­verða athygli. „Mark­aðs­setn­ing á tækjum og tólum sem eru hugsuð til þess að konur geti varið sig fyrir kyn­ferð­is­of­beldi er hættu­leg. Fram­boðið eitt og sér á slíkum vörum er skað­legt kon­um. Þegar mark­að­ur­inn er orð­inn fullur af ísmol­um, prik­um, naglalökkum og lím­miðum sem konur „mega“ nota og „geta“ not­að, þá er orðið mjög stutt í að við förum að spyrja spurn­ing­ar­inn­ar: „af hverju not­aði hún það ekki?““ skrifar Hildur meðal ann­ars.

Vill beina athyglinni í rétta átt

Ósk seg­ist í kjöl­farið hafa velt því fyrir sér hvernig lím­miðar gætu forðað kyn­ferð­is­of­beldi og fannst rétta leiðin að ráð­ast að rót vand­ans sem liggi hjá ger­end­unum. „Þetta er við­bót við glasa­lím­mið­ana,“ segir hún. „Þetta er ekki til höf­uðs þeim, en ef við ætlum að nota lím­miða til að upp­ræta kyn­ferð­is­of­beldi þá er þetta mín leið. Mér finnst hún í það minnsta bein­ast að réttum aðilum, ger­endum en ekki brota­þolum.“ Ósk seg­ist því sam­mála gagn­rýn­inni sem verk­efnið fékk á sig í gær. Þó svo að ásetn­ing­ur­inn hafi eflaust verið góður, þá sé verk­efnið van­hugsað og bein­ist í ranga átt, segir Ósk. 

„Þol­and­inn á ekki að koma í veg fyrir að sér sé nauðgað, heldur ættum við að beina orkunni í að stöðva ger­and­ann. Þegar hann hefur tekið ákvörðun um að nauðga þá skiptir engu máli að Sigga sé með lím­miða fyrir glas­inu, því Gunna er ekki með lím­miða. Hún er heldur ekki á Secret Solstice, heldur að skemmta sér á Húrra og þar er eng­inn með lím­miða.“ 

Svarar gagnrýnisröddum

Þórunn Antonía svar­aði gagn­rýn­inni sem verk­efnið hefur fengið á Facebook-hópnum „Góða systir“ fyrr í dag. Hún seg­ist fagna umræð­unni og að það hafi verið mark­miðið að skapa hita, rök­ræður og gagn­rýni, en það hafi auð­vitað ekki verið mark­miðið að varpa ábyrgð­inni á konur. 

„Ég tek leigu­bíl heim á kvöldin þegar það eru fullir dóm­greind­ar­skertir ein­stak­lingar á ferð. Ég legg ekki tösk­una mína frá mér á skemmti­stað því það er lík­legra að henni verði stolið. Það er nefni­lega þannig að það er til fólk sem stelur. 

Ég ætti ekki að þurfa að passa stöðugt upp á tösk­una, en ég tek ábyrgð á því öryggi sem ég get veitt sjálfri mér því heim­ur­inn er ekki búinn til úr bleikum syk­ur­púða þar sem við getum öll verið blind­full og eng­inn nýtir það ástand sem þú ert í.

Afhverju er alltaf verið að verja það að allir geti bara djammað og verið áhyggju­lausir meðan maður drekkur drykk sem skerðir dóm­greind. Skert dóm­greind sem verður kannski frekar til þess að nauð­garar nauðgi eða að fólk komi sér í hættu­legri aðstæður en ella. Ræðum það, sköpum öryggi og sam­stöðu,“ skrifar Þórunn Antonía meðal ann­ars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár