Grundartangi: Paradís þungaiðnaðarins

Í starfs­leyfum Norð­ur­áls kemur skýrt fram að fyr­ir­tækið sér sjálft um vöktun og rann­sóknir á umhverf­is­á­hrifum sínum, og leggur til hvernig sú vinna fer fram. Afleið­ing þess, að hags­muna­að­ilar vakti sig sjálfir, virð­ist vera að stór hluti þeirra áhrifa sem álverið hefur á umhverfi sitt, koma aldrei fram í skýrslum þeirra. Norðurál sýnir svo einnig mik­inn metnað í því að gera sem minnst úr þeim áhrifum, sem þó sjást. Ekki er að undra, þegar svo gríð­ar­legir hags­munir fel­ast í því að allt líti sem best út á papp­írum. En rétt er þó, eins og þau benda sjálf á, að farið er eftir lögum í einu og öllu. En við hvern er þá að sakast? Liggur ábyrgðin hjá iðju­ver­unum sjálfum? Hjá Umhverfis- og Skipu­lags­stofnun? Er reglu­verkið ekki nógu stíft? Og hvers vegna fær nátt­úran aldrei að njóta vafans í stað iðn­að­ar­ins?

Í norð­an­verðum Hval­firði, inn í miðju land­bún­að­ar­svæði, stendur iðn­að­ar­svæðið á Grund­ar­tanga. Á svæð­inu, sem áður var eitt gjöf­ulasta land­bún­að­ar­svæði lands­ins, var árið 1979, eftir mik­inn barn­ing, reist járn­blendi­verk­smiðja. 1998 var svo álverið á Grund­ar­tanga gang­sett, með 60.000 tonna árs­fram­leiðslu að leið­ar­ljósi. Álverið hefur svo verið stækkað fimm sinnum síðan þá, og fram­leiðir nú 300.000 tonn árlega. Stendur nú til að stækka aftur, upp í 360.000 tonn, og úrskurð­aði Skipu­lags­stofnun að ekki þyrfti að fara fram nýtt umhverf­is­mat. Ástæðan fyrir því er sögð vera sú að þrátt fyrir aukna fram­leiðslu muni mengun samt ekki aukast.

Mengandi þungaiðnaður tældur til landsins

Iðn­að­ar­ráðu­neytið og Lands­virkjun, gáfu út frægan bæk­ling árið 1995, sem ber heitið „LOWEST ENERGY PRICES!!“ Þar er biðlað til fyr­ir­tækja í þunga­iðn­aði að hefja starf­semi á Íslandi. Hér sé ódýrasta, hraustasta og dug­leg­asta vinnu­afl í heimi. Hrein­asta loftið og vatnið, sem og ofboðs­legt magn af raf­magni á útsölu­verði. Einnig er sér­stak­lega tekið fram að afstaða til umhverf­is­mála sé mjög afslöppuð. Að hér sé t.d. mjög lítið af hinu svo­kall­aða „red tape“, sem er hug­tak notað til að lýsa reglu­gerðum og lögum sem m.a. geta tafið gang­setn­ingu á meng­andi iðn­aði. Þremur árum eftir útgáfu bæk­lings­ins var álverið á Grund­ar­tanga gang­sett, með 900 millj­óna stofn­kostn­aði sem kom frá Banda­ríska fyr­ir­tæk­inu CVC.

Söluræða á ensku, umhverfisvörn á íslensku

Á íslensku heima­síðu Faxa­flóa­hafna, eig­anda svæð­is­ins á Grund­ar­tanga, má á for­síð­unni nálg­ast umhverf­is­stefnu fyr­ir­tæk­is­ins. Þar er farið fögrum orðum um hug­sjónir þess, að fara eftir öllum lögum og reglu­gerðum, draga úr nei­kvæðum umhverf­is­á­hrifum, efla umhverf­is­vit­und, og síð­ast en ekki síst 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár