Mynd: Marco Evaristti

Blóðrauðir hverir, úlfaldar og ísjakar

Marco Evaristti, sem hellti rauðum mat­ar­lit í Strokk, seg­ist vera nátt­úr­vernd­ar­sinni. Hann mál­aði dýr og nátt­úru í Sahara, á Mont Blanc, Græn­landi og Noregi.

Marco Evaristti, lista­mað­ur­inn sem hellti rauðum mat­ar­lit í Strokk á Geys­is­svæð­inu í Haukadal á föstu­dag hefur komið víða við á ferli sínum. Grænland, Mont Blanc, Sahara, Noregur og nú Ísland – allt eru þetta staðir þar sem hann hefur fram­kvæmt svip­aða gjörn­inga undir nafn­inu „Pink State“.

Sjálfur lítur hann svo á að um list sé að ræða og kallar verkið, hver­inn sem gaus bleiku, the 5th Pink State, The Rauður Thermal Project. Á heima­síðu sinni talar hann um að feg­urð nátt­úr­unnar sé alltaf jafn yfir­þyrm­andi. Hann geri lista­verk á og í nátt­úr­unni sem end­ist aðeins jafn lengi og lit­ur­inn sjálfur. Vill hann meina að mannúð, nátt­úru­vernd og bætur á umhverf­inu séu meg­in­þemu þess­ara gjörn­inga.

Þemað varð til árið 2004, þegar hann fór til Græn­lands með það að marki að mála ísjaka rauðan. Sama ár hafði Ill­ulissat ís-fjörð­ur­inn í Disco Bay fló­anum á Vestur Græn­landi verið settur á heimsminja­skrá UNESCO. Fjörð­ur­inn er 56 kíló­metra langur og fullur af risa­stórum borg­arísjökum úr einum afkasta­mesta skrið­jökli á norð­ur­hveli, Sermeq Kujalleq. Fjörð­ur­inn hafði einnig verið í umræð­unni vegna loft­lags­breyt­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár