Meintir nauðgarar báðir farnir úr landi?

Annar mann­anna, sem grun­aður er um að hafa nauðgað tveimur konum í íbúð í Hlíðum í síð­asta mán­uði, var staddur á Kefla­vík­ur­flug­velli í morgun með bjór. Mynd af hinum mann­inum á Kefla­vík­ur­flug­velli er dreift á sam­fé­lags­miðlum. Ekki var talin þörf á að krefj­ast gæslu­varð­halds yfir mönn­unum.

Meintir nauðgarar báðir farnir úr landi?

Nöfn mann­anna tveggja sem grun­aðir eru um að hafa nauðgað tveimur konum í íbúð í Hlíðum ganga nú manna á milli á sam­fé­lags­miðlum. Bent hefur verið á að annar þeirra hafi verið staddur á Kefla­vík­ur­flug­velli í morgun, sam­kvæmt eigin skrán­ingu á Twitter. Samkvæmt nýj­ustu skrán­ingu virð­ist hann vera kom­inn til Noregs.

Stundin greindi frá því í morgun að ekki var talin þörf á að krefj­ast gæslu­varð­halds yfir tveimur mönnum sem taldir eru hafa nauðgað tveimur konum með hrotta­fengnum hætti í íbúð í Hlíðum í síð­asta mán­uði. Samkvæmt frétt Frétta­blaðs­ins var íbúðin búin tækjum sem menn­irnir eru sak­aðir um að hafa notað við nauðg­an­irnar, svo sem svipum, reipi og keðjum. 

„Það var ekki talin þörf á rann­sókn­ar­gæslu“

„Þeir voru í haldi í tæpan sól­ar­hring og það lágu fyrir öll gögn. Það var ekki talin þörf á rann­sókn­ar­gæslu,“ sagði Árni Þór Sig­munds­son, yfir­maður á kyn­ferð­is­brota­deild Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, í sam­tali við Stundina. Þá sagði hann það ekki þjóna almanna­hags­munum að úrskurða menn­ina í gæslu­varð­hald.

Ekki mínir almannahagsmunir
Ekki mínir almanna­hags­munir Ákvörðun lög­regl­unnar hefur verið mót­mælt harð­lega á sam­fé­lags­miðlum í dag, meðal ann­ars með þess­ari mynd frá Þórdísi Elvu Þor­valds­dóttur, þar sem segir að á meðan meintir nauð­garar gangi lausir sé verið að dæma konur í gæslu­varð­hald heima hjá sér.

Mikil reiði hefur gripið um sig á meðal fólks í kjöl­far þeirrar ákvörð­unar að krefj­ast ekki gæslu­varð­halds yfir mönn­unum, eins og má meðal ann­ars sjá á Facebook-síðu lög­regl­unnar þar sem fjöl­margir hafa tekið þátt í umræðum og látið skoð­anir sínar í ljós. Þá hefur myllu­merkið #almanna­hags­munir verið notað í umræðum um málið á Twitter. 

Þar segir meðal ann­ars: „Þetta er algjör­lega hræði­legt. Ég er ekki þol­andi en mér er samt flök­urt eftir þennan lestur. Svimar af reiði og við­bjóð.“

Ekki náð­ist í Sigríði Björk Guð­jóns­dóttur, lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, né Árna Þór Sig­munds­son, yfir­lög­reglu­þjón hjá kyn­ferð­is­brota­deild lög­regl­unnar, við vinnslu frétt­ar­innar. 

Uppfært kl. 14.05. 

Talið er að hinn aðil­inn hafi einnig farið úr landi í morgun. Á sam­fé­lags­miðlum gengur mynd sem var tekin á Kefla­vík­ur­flug­velli í morgun. Samkvæmt því eru báðir hinna grun­uðu farnir úr landi, en það hefur ekki feng­ist stað­fest. 

Rétt fyrir hádegi gaf lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu það út að þeir sem að rann­sókn­inni stæðu myndu fara aftur yfir málið í hádeg­inu og skoða hvort mis­tök hafi verið gerð. RÚV greindi frá þessu, en sam­kvæmt heim­ildum þeirra taldi lög­reglan ólík­legt að dóm­stólar sam­þykktu gæslu­varð­halds­kröfu yfir mönn­unum.

Enn hefur ekki náðst í lög­regl­una. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár