Jóhannes Kr. Kristjánsson blaðamaður segir að nýlegt fjölmiðlafyrirtæki hans, Reykjavík Media ehf., hafi beint spurningum til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um skattaskjólasfélagið Wintris Inc. fyrir skömmu. Blaðamaðurinn vinnur nú að fréttum um Wintris Inc. í samvinnu við alþjóðleg samtök rannsóknarblaðamanna sem heita ICIJ, The International Consortium of Investigative Journalists, og þýska dagblaðið Sūddeutsche Zeitung. „Minn miðill, Reykjavík Media, kemur að þessu máli ásamt ICIJ og Süddestuche Zeitung. Þessar fréttir munu birtast á næstu vikum,“ segir Jóhannes Kr.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir