Mynd: Kristinn Magnússon

Almar utan kassans: Undarlegt viðtal við Almar Atlason

Líkami lista­manns­ins Almars Atla­sonar er lands­mönnum væg­ast sagt vel kunn­ugur. Á meðan hann eyddi heillri viku innan í kassa í Lista­há­skóla Íslands, sem allri var sjón­varpað á net­inu, log­aði hver ein­asta kaffi­stofa lands­ins í umræðum um kass­ann, inni­hald hans, og það sem þar fór fram. Almar hefur verið í fjöl­miðla­bind­indi síðan verk­inu lauk. Hann fékkst þó, með sem­ingi, til þess að setj­ast niður í eins konar gjörn­inga­við­tal, í miðju bind­ind­inu.

Almar seg­ist hafa feng­ist tölu­vert við fjöl­breytta list­sköpun. Hann hafi mjög gaman af því að búa til tón­list, og mest verið í pönk­inu. „Mér hefur alltaf fund­ist gaman að vera með dóna­skap, þá helst uppá sviði. Ég hef samt aldrei reynt að sjokkera neinn. Bara aldrei. Enda þarf dóna­skapur ekk­ert að vera sjokker­andi. Fólk er búið að vera dóna­legt í alveg mörg þús­und ár án þess að það hafi sjokkerað neinn neitt sér­stak­lega. 

Mér finnst bara gaman að leika mér. Ég vil bara hafa gaman. Svo er ég mikið búinn að vera að mála. Get alveg gleymt mér í því. Ég var með smá gjörn­ing í haust, þar sem ég var með opið mál­verk undir nafn­inu Það er fjör að mála. Þar mátti hver sem er koma og mála með mér, frá 9 til 5, og klukkan fimm hringdi klukkan og ég öskr­aði stopp og þá var mál­verkið til­búið.“

Þegar talið berst að list­sköpun, minn­ist hann á hversu sorg­lega fáir séu að skapa, því sköpun sé það skemmti­leg­asta sem hægt sé að gera. „Mér finnst svo mikið verið að taka það frá fólki, með þessum lista­sölum sem eru svo leið­in­legir, þar sem heyr­ist svaka­lega hátt í skónum manns, hvað þetta á að vera gaman. Það er fjör að búa til hluti, og það er algjör­lega inn­prentað í mann­inn að búa til saman og leika sér saman og dansa saman og mála saman. Þar er fjör og gaman, en svo hættir það að skipta máli um leið og það er til­búið. Þá verður hlut­ur­inn að ein­hverjum object, sem ég hef aldrei skilið almenni­lega. 

Þess vegna er ég svona hrif­inn af pönk­inu, því það snýst fyrst og fremst um eitt­hvað móment. Þar er fjör á meðan það er fjör.“

Ég er bara hirðfífl

Á þessum tíma­punkti í við­tal­inu ræddi blaða­maður við Almar um hverf­ult eðli heims­ins, og að sýn Almars á list­ina væri hugs­an­lega svipuð og búddískra múnka, sem eyða löngum stundum í að búa til sand mandölur: Lista­verk úr marg­litum sandi, sem þeir svo sópa upp um leið og það er til­búið og henda út í sjó.

„Ég hef nú aldrei verið mik­ill munkur í mér. Fyrst og fremst bara partý og fjör. Mér hefur aldrei fund­ist gaman að hug­leiða, en mér finnst mjög gaman að fara í partý. Ég hef líka aldrei komið í það partý þar sem ekki er ein­hvers 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár