10 atriði sem þú vissir ekki um mosa

Ágústa Helga­dóttir líf­fræð­ingur hefur ástríðu fyrir mosa og útskýrir hvað er svona merki­legt við þessar sér­stæðu plöntur.

10 atriði sem þú vissir ekki um mosa

Heilluð af mosa
Heilluð af mosa Hér er Ágústa með sprota af svona líka fínum sop­mosa.

Það eru fáir sem skilja ástríðu mína á mosum og finnst mörgum það skondið að ég sé yfir höfuð að rann­saka þessar smáu líf­verur. Síðan ég var krakki hef ég haft mik­inn áhuga á plöntum en það var ekki fyrr en ég sat í grasa­fræði­tíma í líf­fræði við Háskóla Íslands sem áhugi minn á mosum kvikn­aði. Þessar líf­verur voru svo frá­brugnar öllum hinum. Upp frá þessu hef ég haft mjög gaman af því að ræða um og sýna fólki þessar fal­legu plöntur sem eiga oft til að gleym­ast.

1Mosar eru alls staðar

Mosa er að finna í nán­ast öllum vist­kerfum jarðar og hafa þeir tekið þátt í mótun og þróun þeirra í að minnsta kosti 450 milljón ár. Í dag eru til meira en 20.000 mosa­teg­undir sem flokk­ast í þrjár fylk­ingar, það er bauk­mosa (Bryophyta 14.000 teg.), sopp­mosa (Marchantiophyta 6.000 teg.) og horn­mosa (Anthocerotophyta 300 teg.).

2600 tegundir á Íslandi

Á Íslandi vaxa sam­tals um 600 teg­undir, bauk­mosar eru algeng­astir (460 teg.) og því næst sopp­mosar (139 teg.). Aðeins ein teg­und horn­mosa vex á Íslandi, það er hvera­hníf­ill (Phaeoceros carolinianus) sem er stað­bund­inn við jarð­hita.

3Hafa hvorki rætur né æðakerfi

Mosar eru smá­vaxnar plöntur og mjúkir við­komu því þá skortir lignín, efni sem styrkir frumu­veggi æðplantna (jafnar, byrkn­ingar, ber­fræv­ingar og blóm­plöntur) og gerir þeim kleift að vaxa upp­rétt.
Mosar hafa hvorki rætur né flutn­ings­kerfi líkt og æðplöntur (sáld- og við­ar­vef) til að taka upp nær­ingu og vatn úr jarð­veg­inum. Þess í stað hafa þeir þróað með sér svo­kall­aða ræt­linga, sem þeir nota til að festa sig við yfir­borð.

Mosavöndur
Mosa­vöndur

Öll upp­taka vatns og nær­ing­ar­efna fer í gegnum blöð mos­ans. Því fylgir raka­stig í vefjum mos­ans raka umhverf­is­ins. Þetta hefur mót­andi áhrif á stærð mos­ans þar sem það er hag­stæð­ara að vera lítil planta til að halda í vatns­magnið innan plönt­unnar.

4Mosar geta ekki geymt orku

Sól­ar­ljós og hita­stig eru ásamt raka mik­il­vægar umhverf­is­breytur fyrir ljóstil­lífun mosa til að fram­leiða orku.  Mosar geta ekki geymt ork­una 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár