Virkum smitum fækkar milli daga í fyrsta sinn

Fimmtíu og þrjú ný COVID-19 smit hafa verið stað­fest hér. Samkvæmt nýj­ustu tölum á vefnum Covid.is batn­aði fleirum af sjúk­dómnum í gær en greindust og er það í fyrsta skipti frá því að far­ald­ur­inn hófst hér á landi sem það ger­ist.

Fjörutíu og fimm manns eru innilggjandi á sjúkrahúsi vegna COVID-19 sýkingar.
Fjörutíu og fimm manns eru innil­ggj­andi á sjúkra­húsi vegna COVID-19 sýk­ingar. Mynd: Landspítali/Þorkell Þorkelsson

Stað­fest smit af kór­ónu­veirunni eru orðin 1.417 hér á landi. Í gær voru þau 1.364 og hefur þeim því fjölgað um 53 á einum sól­ar­hring. Í dag eru 5.275 manns í sótt­kví og hefur þeim fækkað tölu­vert frá því í gær, er fjöld­inn var um 6.300. Alls hafa 11.679 manns lokið sótt­kví.

Í dag eru ein­stak­lingar með virk COVID-19 smit 1.017 tals­ins, en í gær voru þeir 1.046. Þetta er í fyrsta sinn frá því að fyrsta smitið greind­ist hér á landi í lok febr­úar sem fjöldi virkra smita lækkar á milli daga, þ.e. að fleiri batni en grein­ast með ný stað­fest smit. Alls er 396 manns batnað.

Íslensk erfða­grein­ing hefur aldrei greint fleiri smit á einum degi í skimunum sínum en gert var í gær, eða 20 tals­ins af alls 1.062 sýnum, sem þýðir að rétt innan við 2 pró­sent sýn­anna reynd­ust jákvæð.

33 ný smit greindust í þeim 383 sýnum sem tekin voru á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala. Alls hafa 23.640 ­sýni nú verið tekin hér á landi frá upp­hafi far­ald­urs­ins.

[adspot]

Nú liggja 45 ­sjúk­lingar á sjúkra­húsi vegna COVID-19 sjúk­dóms­ins, þar af tólf á gjör­gæslu, sam­kvæmt því sem fram kemur á vefnum covid.­is. 

Af þeim sem ­greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru fjögur lát­in.

Búast við toppi virkra smita í þessari viku

Í spálík­an­i ­vís­inda­manna á vef Háskóla Íslands, sem síð­ast var upp­fært í fyrra­dag, kemur að á með­an far­ald­ur­inn gengur yfir er gert ráð fyrir því að rúm­lega 1.800 manns á Ísland­i verði greind með COVID-19 í þess­ari bylgju far­ald­urs­ins, en talan gæti náð nær 2.500 manns sam­kvæmt svart­sýnni spá.

Gert er ráð ­fyrir að fjöldi greindra ein­stak­linga með virkan sjúk­dóm nái hámarki í fyrst­u viku apríl og verði senni­lega um 1.200 manns, en gæti viku seinna náð 1.700 ­manns sam­kvæmt svart­sýnni spá.

Þá er gert ráð ­fyrir að á meðan að far­ald­ur­inn gangi yfir muni 120 manns þarfn­ast inn­lagnar á sjúkra­hús, en gæti náð hátt í 180 manns.

Mesta álag á heil­brigð­is­þjón­ustu vegna sjúkra­hús­inn­lagna verður fyrir miðjan apríl en þá er ­gert ráð fyrir að um það bil 60 ein­stak­lingar geti verið inniliggj­andi á sama ­tíma, en svart­sýnni spá er 90 ein­stak­ling­ar.

Gert er ráð ­fyrir því að á tíma far­ald­urs­ins muni um 26 ein­stak­lingar veikj­ast alvar­lega, þ.e. þurfa inn­lögn á gjör­gæslu, á tíma­bil­inu en svart­sýnni spá er 40 ein­stak­ling­ar.

Mesta álag á gjör­gæslu­deildir gæti orðið í annarri viku apr­íl, en þá er búist við því að 10 ­manns liggi þar inni á sama tíma, en sam­kvæmt svart­sýnni spá gætu það verið 18 ­manns.

Smá­vægi­leg hliðrun ald­urs­dreif­ingar í átt að fleiri greindum smitum meðal ein­stak­linga ­yfir sex­tugt myndi auka álag á heil­brigð­is­þjón­ustu tals­vert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár