Meirihluti landsmanna telur Ísland vera á rangri braut

Ný könnun sýnir að mark­tækt fleiri Íslend­ingar telji hlut­ina á Íslandi vera á rangri braut en þeir sem telja þá vera að þró­ast í rétta átt. Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins og launa­háir eru ánægð­astir.

54,3 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu í nýrri könnun MMR sögðu að hlut­irnir á Íslandi séu á rangri braut. Á móti sögðu 45,7 pró­sent að þeir væru að þró­ast í rétta átt. Þeir sem höfðu áhyggjur af spill­ingu í fjár­málum og/eða stjórn­málum, fátækt og/eða félags­legum ójöfn­uði og við­haldi vel­ferð­ar­kerf­is­ins voru lík­legri til að telja hlut­ina á Íslandi almennt séð á rangri braut. Þeir sem höfðu mestar áhyggjur af glæpum og ofbeldi, ofþyngd barna og verð­bólgu reynd­ust lík­legri til að telja hlut­ina á réttri leið.

Athygli vekur að eldra fólk, í ald­urs­hópnum 50-67 ára, er lík­leg­ast til að telja hlut­ina vera á rangri braut. Innan þess hóps töldu 62 pró­sent að svo væri. Yngsti ald­urs­hóp­ur­inn, 18-29 ára, og sá elsti, 68 ára og eldri, voru lík­leg­astir til að telja að hlut­irnir væru hér á réttri leið. Alls sögð­ust 51 pró­sent þeirra sem til­heyra yngsta ald­urs­hópnum að svo væri en 52 pró­sent þeirra sem eru yfir 68 ára.

Afstaðan er einnig mjög mis­mun­andi eftir tekju­hópum og stjórn­mála­skoð­unum. Um tveir af hverjum þremur sem hafa tekjur undir 600 þús­und krónum á mán­uði telja að hlut­irnir hér­lendis séu á rangri braut á meðan að um og yfir helm­ingur þeirra sem eru með hærri tekjur telja að Ísland sé að stefna í rétta átt. Til að mynda telja 56 pró­sent þeirra sem eru með meira en milljón krónur í mán­að­ar­laun að stefnan sé rétt.

Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks og Við­reisnar skera sig úr þegar kemur að afstöðu til þess hvort stefna lands­ins sé rétt. Einungis 18 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks og 20 pró­sent kjós­enda Við­reisnar telja landið vera á rangri braut en um átta af hverjum tíu á meðal þeirra telja að stefnan sé rétt. Athygli vekur að 39 pró­sent kjós­enda Bjartrar fram­tíðar, sem situr í rík­is­stjórn með áður­nefndum flokkum, telja að Ísland sé á rangri braut. Þá vekur líka athygli að meiri­hluti kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins (52 pró­sent) telja að landið sé á réttri braut þrátt fyrir að flokk­ur­inn sé ekki í rík­is­stjórn. Á meðal kjós­enda hinna stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna er sú afstaða mjög skýr að hlut­irnir séu á rangri braut, en 66-79 pró­sent þeirra telja að svo sé.

Munurinn er einnig umtals­verður á milli land­svæða. Íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins eru nokkuð jafnt skiptir í afstöðu sinni til stefnu lands­ins (51 pró­sent telur það á rangri leið en 49 pró­sent á réttri braut) á meðan að rúm­lega sex af hverjum tíu sem búa á lands­byggð­inni telja að hlut­irnir séu að þró­ast á rangri braut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár