Skinney bætist í hóp fyrirtækja sem byggja undir starfsmenn

Hús­næð­is­skortur er víða vanda­mál og eru fyr­ir­tæki nú farin að byggja undir starfs­fólk.

Útgerð­ar­fyr­ir­tækið Skinn­ey Þinga­nes ætl­ar að byggja allt að tólf íbúðir og leigja til starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins. Helm­ing­ur íbúð­anna verður klár í haust og afgang­ur­inn um ára­mót gangi áætlan­ir eft­ir.

Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag, en nokkuð hefur borið á því und­an­farið að fyr­ir­tæki taki ákvarð­anir um að byggja undir starfs­menn sína. IKEA og Bláa Lónið hafa bæði ákveðið að eign­ast hús­næði fyrir starfs­fólk, og bæt­ist nú Skinney í þann hóp.

Í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blað­inu í dag seg­ir að mark­miðið sé að tryggja starfs­mönn­um fyr­ir­tæk­is­ins hús­næði, en horn­firski hús­næð­is­mark­aður­inn hef­ur ekki farið var­hluta af fjölg­un ferða­manna.

Á Höfn hef­ur í nokk­ur ár verið mik­ill skort­ur á hús­næði, bæði til kaups og leigu, að því er segir í Morg­un­blað­inu. „Leigu­miðlan­ir á borð við Airbnb hafa tekið til sín hús­næði í sveit­ar­fé­lag­inu und­ir gist­ingu í ferða­þjón­ustu og erf­ið­lega hef­ur gengið að fá iðn­aðar­menn til starfa, enda nóg af verk­efn­um að hafa við upp­bygg­ingu ferða­þjón­ust­unn­ar, s.s. bygg­ingu hót­ela og gisti­heim­ila, sem hef­ur fjölgað hratt á Horna­firði og í ná­grenni und­an­far­in miss­eri,“ segir í Morg­un­blað­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár