34 smitaðir og nýtt áhættusvæði skilgreint

Staðfest er að 34 Íslend­ingar eru smit­aðir af kór­óna­veirunni. Sótt­varn­ar­læknir ráð­leggur fólki að fara ekki að nauð­synja­lausu til fjög­urra landa og eins svæðis í Aust­ur­ríki.

Sótt­varn­ar­læknir ræður nú frá ónauð­syn­legum ferðum til Kína, Suður-Kóreu, Írans, Ítalíu og skíða­svæð­is­ins Ischgl í Aust­ur­ríki. Skíða­svæðið Ischgl í Aust­ur­ríki hefur þar með bæst í hóp skil­greindra áhættu­svæða vegna COVID-19 veirunnar.

Í gær höfðu 26 Íslend­ingar greinst með veiruna. Þeir höfðu allir verið á ferða­lagi um Ítalíu og Aust­ur­ríki. Í dag hafa svo átta til­felli bæst við og því sam­tals stað­fest smit hjá 34 hér á landi.

Allir þeir sem hafa verið á skíða­svæð­inu Ischgl frá 29. febr­úar eru nú beðnir um að fara í 14 daga sótt­kví og til­kynna það til sinnar heilsu­gæslu. Ef við­kom­andi finnur fyrir flensu­líkum ein­kennum á að hafa sam­band við Lækna­vakt­ina í síma 1700.

„Allir þeir sem verið hafa á svæð­inu frá sama tíma og eru auk þess með ein­kenni eiga að hafa sam­band í síma 1700 og fara eftir leið­bein­ingum þaðan um að fara í sýna­töku. Þeir sem hafa ein­kenni eiga að nota grímur og gæta allrar mögu­legrar smit­var­úðar,“ segir í til­kynn­ingu.

Í frétt RÚV í morgun kom fram að von sé á 74 Íslend­ingum með vél Icelandair frá Veróna á laug­ar­dag. Þeir þurfa allir að fara í tveggja vikna sótt­kví. Mikill við­bún­aður verður vegna vél­ar­innar; flug­freyjur um borð verða mennt­aðir hjúkr­un­ar­fræð­ingar, engin þjón­ustu verður í boði heldur fá far­þegar nesti fyrir flugið.

Tvær áhafnir Icelandair eru í sótt­kví eftir flug heim frá München og Veróna um síð­ast­liðna helgi, átta flug­freyjur og fjórir flug­menn. Þetta kemur fram í frétt mbl.is.

Einkenni veirunnar

Nýja kór­óna­veiran (COVID-19) hagar sér í sumu eins og inflú­ensa, ein­kenni eru svipuð og smit­leiðir áþekkar. Einkenni eru helst hósti, hiti, bein- og vöðva­verkir, þreyta og svo fram­vegis.

[links]Veiran getur valdið alvar­legum veik­indum hjá þeim sem veikir eru fyrir lýsir það sér með sýk­ingum í neðri önd­un­ar­færum og lungna­bólgu, sem koma oft fram sem önd­un­ar­erf­ið­leikar á 4.-8. degi veik­inda.

Útbreiðslan í dag

Tæplega 96 þús­und manns í um sjö­tíu löndum hafa greinst með veiruna. Staðfest dauðs­föll af völdum sýk­ing­ar­innar eru 3.286. Rúmlega 53 þús­und manns hafa náð sér af veik­indum sínum.

Veiran er enn útbreidd­ust í Kína og þar hafa um 3.000 lát­ist af hennar völdum. Á Ítalíu hafa yfir 100 lát­ist og sömu sögu er að segja frá Íran.

Ítölsk stjórn­völd hafa ákveðið að loka öllum skólum, einnig háskólum, frá og með deg­inum í dag. Skól­arnir verða lok­aðir í að minnsta kosti tíu daga.

Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin (WHO) hefur enn ekki lýst yfir heims­far­aldri vegna nýju kór­ónu­veirunnar. Til þess að lýst sé yfir heims­far­aldri þurfa ákveðin við­mið að vera til staðar, m.a. ákveðin útbreiðsla. Fram­kvæmda­stjóri WHO segir að staðan sé stöðugt end­ur­metin.

Nú er reyndar talið að veiran hafi stökk­breyst við upp­haf útbreiðsl­unnar í tvær meg­in­teg­undir. Virðist önnur skæð­ari en hin að því er fram kemur í rann­sókn kín­verskra vís­inda­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðalög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár