Verðbólgan 9,3 prósent og sýnir lítil merki þess að vera að hjaðna

Verð­bólga jókst milli mán­aða þótt tólf mán­aða verð­bólga hafi dreg­ist saman um 0,1 pró­sentu­stig. Matur og hús­næði hækk­aði en flug­far­gjöld lækk­uðu á móti. Því hafa urðu aðstæður lands­manna til að fara til útlanda, til dæmis til Tene, betri í síð­asta mán­uði.

Íslendingar hafa farið í hrönnum í sólarfrí til Tenerife í haust. Flugfargjöld lækkuðu síðastliðinn mánuð sem ætti síður að draga úr áhuga á slíkum ferðum.
Íslend­ingar hafa farið í hrönnum í sól­ar­frí til Tenerife í haust. Flug­far­gjöld lækk­uðu síð­ast­lið­inn mánuð sem ætti síður að draga úr áhuga á slíkum ferðum. Mynd: Pexels

Vísitala neyslu­verðs hækk­aði um 0,29 pró­sent milli mán­aða. Tólf mán­aða verð­bólga mælist nú 9,3 pró­sent en hún mæld­ist 9,4 pró­sent í síð­asta mán­uði. Því eru litlar breyt­ingar á stöðu hennar milli mán­aða. Tólf mán­aða verð­bólga var 5,7 pró­sent í jan­úar, fór hæst í 9,9 pró­sent í sumar en hefur verið á þeim slóðum sem hún er nú síð­ustu mán­uði.

Samkvæmt til­kynn­ingu Hagstofu Íslands voru helstu ástæður þess að vísi­talan hækk­aði á milli októ­ber og nóv­em­ber þær að verð á mat­vörum hækk­aði um 0,8 pró­sent og kostn­aður vegna búsetu í eigin hús­næði (reiknuð húsa­leiga) hækk­aði um eitt pró­sent. Á móti tog­aði að verð á flug­far­gjöldum til útlanda lækk­aði skarpt, um 8,9 pró­sent milli mán­aða. Sú lækkun er athygl­is­verð í ljósi þess að seðla­banka­stjóri hefur nefnt ferða­gleði lands­manna, sér­stak­lega þeirra sem fara í haust­frí til Tenerife, sem eina helstu ástæðu þess að nauð­syn­legt hefur þótt að hækka stýri­vexti.

Stýrivextir hækkaðir tíu sinnum í röð

Seðla­banki Íslands hækk­aði stýri­vexti sína í síð­ustu viku upp í sex pró­sent. Þetta var í tíunda sinn í röð sem Seðla­bank­inn hækk­aði vexti, en þeir voru 0,75 pró­sent í maí í fyrra. Fyrir vikið eru íbúða­lána­vextir hærri en þeir hafa verið í tólf ár, eða frá árinu 2010, skömmu eftir banka­hrunið þegar enn var verið að end­­ur­reisa föllnu bank­ana og íslenskt atvinn­u­líf.

[adspot]Í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar sagði að verð­bólga hafi auk­ist á ný í októ­ber og mælst 9,4 pró­sent, verð­hækk­anir væru á breiðum grunni og und­ir­liggj­andi verð­bólga hefði áfram auk­ist. Gert er ráð fyrir því að verð­bólgan verði 9,4 pró­sent að með­al­tali núna á síð­asta árs­fjórð­ungi.

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri lét svo hafa eftir sér í kjöl­far ákvörð­un­ar­innar að mikil aukn­ing í einka­neyslu væri að koma niður á gengi krón­unnar. Það auki inn­flutta verð­bólgu. „Þegar þjóðin er að fara á Tene, það kost­ar gjald­eyri,“ sagði Ásgeir og bætti svo við að Seðla­bank­inn gæti„ ekki fjár­magnað Tene-ferðir úr forð­anum.“

Mikil áhrif á kjaraviðræður

Ákvörðun um stýri­vaxta­hækkun hafði mikil og nei­kvæð áhrif á yfir­stand­andi kjara­við­ræður. hún leiddi meðal ann­ars til þess að VR, stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins, sleit við­ræðum í síð­ustu viku og að nú sé reynt að ná skamm­tíma­samn­ingum, sem gilda út næsta ár, í stað þess að semja til lengri tíma.

[links]Til­gangur þess er að skapa betri aðstæður til samn­ings­gerðar þegar verð­bólgan hefur hjaðnað, en spár Seðla­bank­ans gera ráð fyrir því að hún verði komin niður í 4,5 pró­sent á síð­asta árs­fjórð­ungi næsta árs.

Hún verður þó enn langt fram mark­miði Seðla­bank­ans, sem er 2,5 pró­sent verð­bólga.

Stýri­vaxta­hækk­anir og verð­bólga hafa allskyns áhrif á dag­legt líf fólks. Verð á nær öllum nauð­synja­vörum hækkar vegna verð­bólg­unnar og afborg­anir af íbúða­lánum stór­aukast hjá mörgum sam­hliða vaxta­hækk­unum.

Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að greiðslu­byrði óverð­tryggðs íbúða­láns með breyti­legum vöxtum upp á 50 millj­ónir króna sé nú um 311.500 krón­ur, sam­kvæmt grein­ingu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar. Í maí í fyrra, áður en stýri­vaxta­hækkun Seðla­banka Íslands hóf­st, var greiðslu­byrði láns að sömu upp­hæð 188.500 krón­ur. Hún hefur því hækkað um 123 þús­und krónur á mán­uði eða tæp­lega 1,5 millj­ónir króna á ári. Greiðslu­byrðin hefur auk­ist um 65 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðalög

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár