Fótboltamaður ljáir svöngum börnum rödd

Tillaga fót­bolta­manns­ins Marcus Rashford um mat­ar­stuðn­ing til fátækra barna í öllum skóla­fr­íum fram að næstu páskum var felld í breska þing­inu í gær. Fót­bolta­mað­ur­inn náði ekki að beygja for­sæt­is­ráð­herr­ann, eins og hann gerði í sumar.

Marcus Rashford er framherji Manchester United og enska landsliðsins og baráttumaður fyrir því að börn þurfi ekki að fara svöng að sofa.
Marcus Rashford er fram­herji Manchester United og enska lands­liðs­ins og bar­áttu­maður fyrir því að börn þurfi ekki að fara svöng að sofa. Mynd: EPA

Vikan er búin að vera við­burða­rík hjá enska knatt­spyrnu­kapp­anum Marcus Rashford. Á þriðju­dags­kvöld skor­aði fram­herj­inn ungi sig­ur­mark Manchester United gegn PSG í Meist­ara­deild­inni og í gær fylgd­ist hann með atkvæða­greiðslu í breska þing­inu sem byggði á bar­áttu hans fyrir því að yfir­völd tryggi skóla­börnum úr fátækum fjöl­skyldum mat í öllum skóla­fr­íum fram til næstu páska.

Sú atkvæða­greiðsla fór þó ekki jafn vel og leik­ur­inn. Tillagan, sem Verka­manna­flokk­ur­inn hafði tekið upp á sína arma, var felld í neðri mál­stof­unni í Westminster með 322 atkvæðum gegn 261. Rík­is­stjórn Boris Johnson lét Rashford ekki beygja sig á ný, eins og hún gerði í sumar.

Þá varð bar­átta Rashford, sem er 22 ára gam­all, til þess að breska stjórnin ákvað að tryggja skóla­börnum úr fátækum fjöl­skyldum mat­ar­út­tekt­ar­miða yfir sum­ar­mán­uð­ina, núna á þessum tímum þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn og efna­hags­leg áhrif hans ógna lífs­af­komu margra Breta.

En svarið núna er nei. Boris verður ekki beygður og rík­is­stjórn hans seg­ist telja sig vera að gera nóg til þess að koma í veg fyrir að bresk börn líði mat­ar­skort eftir öðrum leiðum.

[adspot]

Rashford er yngstur fimm systk­ina og hefur reynt það á eigin skinni að vera svangt barn. Það er ástæðan fyrir því að hann beitir sér fyrir þessu mál­efni. Hann stofn­aði sam­tökin Child Food Poverty Taskforce í þeim til­gangi í haust og fékk nokkur stór­fyr­ir­tæki á breskum smá­sölu­mark­aði með sér í lið. Fyrr í þessum mán­uði fékk hann við­ur­kenn­ingu frá Elísa­betu Eng­lands­drottn­ingu, MBE-orðu bresku krún­unnar, fyrir þessa bar­áttu sína í þágu barna.

Í gær­dag, áður en atkvæða­greiðslan fór fram, stóð Rashford í orða­skaki við þing­menn Íhalds­flokks­ins á Twitter. Þeir sögðu meðal ann­ars að til­lögur um rík­is­greiddar mál­tíðir í skóla­fr­íum yrðu til þess að fólk yrði háð slíkri rík­is­að­stoð við að fæða börn sín og kostn­að­ur­inn yrði svo mik­ill að hann væri til þess fall­inn að „skemma gjald­mið­il­inn“ og stefna efna­hag lands­ins í voða, eins og Steve Baker þing­maður og fyrr­ver­andi Brexit-ráð­herra Íhalds­flokks­ins sagði við fót­bolta­mann­inn. Einnig var fót­bolta­mað­ur­inn ungi sak­aður um dygða­skreyt­ingu.

„Þessi börn eru framtíð þessa lands“

Þegar nið­ur­staðan á þing­inu lá fyrir var Rashford ekki skemmt og tjáði sig um von­brigði sín í löngu máli á Twitter. Hann sagði þetta mál ekki eiga að snú­ast um póli­tík, heldur um mannúð, og bauð Johnson for­sæt­is­ráð­herra til fundar við sam­tökin.

„Ég hef ekki menntun stjórn­mála­manns, margir á Twitter hafa gert það ljóst í dag, en ég er með félags­lega menntun eftir að hafa upp­lifað þetta og eftir að hafa varið tíma með fjöl­skyld­unum og börn­unum sem finna mest fyrir þessu. Þessi börn skipta máli. Þessi börn eru fram­tíð þessa lands. Þau eru ekki bara ein­hver töl­fræði. Svo lengi sem þau hafa ekki rödd, þá munu þau hafa mína. Ég lofa ykkur því,“ skrif­aði Rashford.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár