Hávaði er hættulegur heilsunni

Í nýrri skýrslu frá Evr­ópu­deild Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar, WHO, kemur fram að millj­ónir Evr­ópu­búa búa við hávaða sem getur haft alvar­leg áhrif á heilsu þeirra. Í Danmörku einni býr á aðra milljón við slíkar aðstæður.

Þekktur íslenskur rit­höf­undur sem fyrir nokkrum ára­tugum fór til New York undrað­ist hávað­ann í borg­inni. Vissi þó ekki almenni­lega hvaðan hann kom, lýsti honum í blaða­við­tali sem ein­hvers konar hvin, eða þyt. Sagði að sér hefði verið sagt að þetta væri nútím­inn í stór­borgum ,,Mér þótti þetta hvim­leitt“ sagði rit­höf­und­ur­inn ,,ekki vanur þessu að heiman“. Á heim­leið­inni kom hann við í Kaup­manna­höfn ,,þar var líka hávaði en þó minni en í New York.“

Í dag er hávað­inn ekki ( og var ekki heldur í þá daga) bund­inn við New York og Kaup­manna­höfn. Hann hefur hins­vegar auk­ist og er hreint ekki bund­inn við stór­borgir. Þá lýs­ingu rit­höf­und­ar­ins að hávað­inn sé hvim­leiður geta margir tekið undir. En honum fylgir fleira.

Hvað köllum við hávaða?

Hávaðinn í sam­fé­lag­inu er til­tölu­lega nýtil­kom­inn. Áður fyrr var það einkum veðrið sem heyrð­ist í, að minnsta kosti á norð­læg­ari slóðum. Íslend­ingar þekkja orðið hávað­arok, þar er þó fremur lýs­ing á hvass­viðri en beinum hávaða ,,það hvín og syngur“ segir fólk. Þótt rign­ing bylji á þökum og götum, og lemji á gluggum, talar eng­inn um hávaða, þótt hann sé umtals­verður. Það heitir úrhelli eða helli­rign­ing ,,eins og hellt úr fötu“ er dæmi­gerð lýs­ing á rign­ing­unni. Slæmu veðri er lýst sem brjál­uðu jafn­vel snar­brjál­uðu eða kol­brjál­uðu, vit­lausu, band­vit­lausu eða snældu­vit­lausu, aldrei sem hávaða. Hávaði er sem sé eitt­hvað annað en veðrið.

Hvað veldur þessum hávaða?

Danska útvarpið, DR, hefur und­an­farið, í tengslum við skýrsl­una, fjallað tals­vert um hávaða. Hvað valdi honum og hvaða áhrif hann hafi, fyrir utan að ,,vera hvim­leiður“ eins og íslenski rit­höf­und­ur­inn orð­aði það. Frétta­menn DR spurðu stóran hóp fólks hvort hávaði ylli óþæg­indum. Nær allir svör­uðu ját­andi. ,,Hvernig óþæg­indum“ var spurt, hægt var að nefna fleira en eitt. Svörin voru mis­mun­andi. Margir sögðu hávaða ,,að utan“ valda svefn­leysi, aðrir sögðu hávaða í versl­unum óþægi­legan, tón­list hjá nágrönnum var líka nefnd, skrölt í járn­braut­ar­lestum, dynur frá flug­vélum, og ýmis­legt fleira. Eitt atriði skar sig úr og allir nefndu: hávaða frá bíla­um­ferð. Þessi svör komu frétta­mönnum DR ekki á óvart. Þau voru nefni­lega í sama dúr og í mörgum öðrum löndum þar sem sams­konar kann­anir hafa verið gerðar. Bíla­um­ferð er helsti, og mesti, hávaða­vald­ur­inn.

Hvers vegna er þessi hávaði frá bílunum?

Þar kemur fleira en eitt til. Bílum hefur á allra síð­ustu árum fjölgað gríð­ar­lega og í mörgum borgum ríkir sann­kallað umferð­ar­öng­þveiti. Götur anna ekki síauk­inni umferð, sem jafn­framt verður sífellt hrað­ari. Víða eru margra hæða hús með­fram til­tölu­lega þröngum, en miklum, umferð­ar­götum. Hávaðinn frá bíl­unum kast­ast, ef svo má að orði kom­ast, milli hús­anna. Íbúarnir mega búa við þennan hávaða allan lið­langan dag­inn og jafn­vel líka á nótt­unni. Um ára­bil hafa verið gerðar til­raunir með margs konar slit­lag, yfir­leitt mal­bik, á götum í því skyni að draga úr hávað­anum. Í þeim efnum hefur mikið áunn­ist en dugir ekki til. En hvað með raf­magns­bíl­ana sem nú fjölgar ört, heyr­ist ekki miklu minna í þeim? Vélar raf­magns­bíla eru hljóð­lát­ari en hávað­inn frá umferð­inni stafar ekki nema að litlu leyti frá bíl­vél­unum, það er fyrst og fremst hljóðið frá mal­bik­inu og dekkj­unum sem kallar fram ,,veg­hljóðið“.

Heilsuspillandi

Skýrsla Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar, sem nefnd var í upp­hafi pistils­ins, er byggð á ára­löngum rann­sóknum fjöl­margra sér­fræð­inga í mörgum Evr­ópu­löndum. Zsuzsanna Jakab, fram­kvæmda­stjóri Evr­ópu­deildar stofn­un­ar­innar, sagði þegar skýrslan var kynnt, að hávaða­mengun sé alvar­legt vanda­mál í Evrópu. Ekki ein­ungis óþæg­inda­vanda­mál, heldur einnig, og það sé mun alvar­legra, heil­brigð­is­vanda­mál. Göran Pers­hagen pró­fessor við Karol­inska sjúkra­húsið í Stokk­hólmi, og einn skýrslu­höf­unda, sagði í við­tali við DR að nið­ur­stöð­urnar sem þar birt­ust séu alvar­leg áminn­ing til stjórn­valda í löndum Evrópu. Í skýrsl­unni kemur fram að hávaði veldur, og ýtir undir, margs konar sjúk­dóma. Tíðni hjarta­sjúk­dóma er mun hærri hjá þeim sem búa við hávaða­mengun, langtum fleiri glíma við háan blóð­þrýst­ing, syk­ur­sýki og stress, svo fátt eitt sé nefnt.

Hávaðamörk

Í flestum löndum gilda ákveðnar reglur varð­andi hávaða frá umferð, oft kall­aðar hávaða­mörk. Þessar reglur eru mis­mun­andi eftir löndum, og land­svæðum. Danir, og margar aðrar þjóðir hafa lengi miðað við 58 decibel (mælt með sér­stökum aðferðum) sem hámark í íbúða­hverfum. Höfundar skýrsl­unnar mæla með að miðað verði við 53 decibel, en stofn­unin hefur ekki áður gefið út slíkar leið­bein­ingar.

Fimmti hver Dani í áhættuhópi vegna hávaða

Ráð­gjaf­ar­stofan Rambøll hefur und­an­farið unnið að hávaða­mæl­ingum í borgum og bæjum í Danmörku. Allan Jensen sem stjórnað hefur verk­efn­inu sagði í við­tali við DR að nið­ur­stöð­urnar séu mjög alvar­legar. Rúmlega ein milljón Dana búi við hávaða sem er yfir 58 decibelum, langtum fleiri en áður var talið. Allan Jensen sagði enn­fremur að víða, til dæmis í Kaup­manna­höfn, væri land­rými af skornum skammti og það hefði í för með sér að byggt væri mjög nálægt umferð­ar­götum. ,,Þetta er mjög alvar­legt mál, sem ekki er bundið við Danmörku. Stjórn­völd verða að bregð­ast við.“

Jakob Ellemann Jensen umhverf­is­mála­ráð­herra Dan­merkur sagði í við­tali við DR að Danska Umhverf­is­stofn­unin væri að yfir­fara skýrsl­una frá Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni og beðið væri eftir Rambøll skýrsl­unni. Meira gæti hann ekki sagt að svo stöddu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár