Mikill samdráttur í íbúðafjárfestingu í ár

Fjár­fest­ingar í upp­bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis hefur dreg­ist saman á síð­ustu mán­uðum, sam­hliða mik­illi verð­hækkun og fækkun íbúða á sölu. Samkvæmt Hagstofu er búist við að íbúða­fjár­fest­ing verði rúm­lega 8 pró­sentum minni í ár heldur en í fyrra.

Íbúðafjárfesting hefur dregist saman á árinu, á sama tíma og verð hefur hækkað og auglýstum íbúðum á sölu hefur fækkað.
Íbúða­fjár­fest­ing hefur dreg­ist saman á árinu, á sama tíma og verð hefur hækkað og aug­lýstum íbúðum á sölu hefur fækkað. Mynd: Anton Brink

Íbúða­fjár­fest­ing hefur dreg­ist tölu­vert saman á síð­ustu mán­uðum, en búist er við því að hún verði 8,4 pró­sentum minni á þessu ári heldur en hún var í fyrra. Þetta kemur fram í þjóð­hags­spá Hagstofu, sem var birt sam­hliða birt­ingu fjár­laga­frum­varps­ins í vik­unni.

Samkvæmt Hagstofu jókst íbúða­fjár­fest­ing veru­lega á árunum 2016 til 2019, sam­hliða mik­illi fjölgun íbúa og ferða­manna. Í fyrra dró svo veru­lega úr þessum vexti og mæld­ist hann 1,2 pró­sent. Vöxt­ur­inn var þá aðal­lega drif­inn áfram af mik­illi aukn­ingu full­gerðra íbúða, en tölu­verður sam­dráttur varð á íbúðum á fyrri bygg­ing­ar­stigum á sama tíma.

Vegna fárra nýrra íbúð­ar­verk­efna árið 2020 eru því mun færri íbúðir í bygg­ingu á seinni bygg­ing­ar­stigum í ár. Þessi þróun hefur leitt til þess að heild­ar­magn íbúða­fjár­fest­ingar hefur dreg­ist saman tölu­vert á síð­ustu mán­uðum, líkt og kemur fram í þjóð­hags­reikn­ingum Hagstofu sem einnig voru birtir í vik­unni.

Þróun íbúða­fjár­fest­ingar má sjá á mynd hér að neðan. Samkvæmt henni er búist við 8,4 pró­senta sam­drætti í ár, eftir sex ár af sam­felldri aukn­ingu. Á næstu árum er þó búist við að fjár­fest­ingin muni halda áfram að aukast, þar sem vís­bend­ingar eru um að íbúðum á fyrri bygg­ing­ar­stigum hafi fjölgað á síð­ustu mán­uðum.

Samkvæmt Þjóðskrá hefur full­búnum íbúðum fjölgað um 2.980 tals­ins það sem af er ári. Ef íbúðum fjölgar á sama hraða út árið má búast við að þeim fjölgi um rúm­lega 3.200 tals­ins í ár, sem er nokkuð minna en fjölg­unin í fyrra, en þó svipuð og á árinu 2019. Tvær af hverjum þremur nýjum íbúðum er á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Hærra verð og færri íbúðir á sölu

Íbúða­verð í októ­ber var 17,1 pró­sentum hærra en í sama mán­uði í fyrra, sam­kvæmt vísi­tölu Þjóð­skrár. Nokkuð af þeirri verð­hækkun átti sér stað í lok síð­asta árs, en það sem af er ári hefur verðið hækkað um rúm tólf pró­sent.

Samhliða verð­hækk­un­unum hefur íbúðum sem eru til sölu á land­inu fækkað. Líkt og kemur fram í síð­ustu mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) hefur fjöldi aug­lýstra eigna minnkað með hverjum mán­uði frá síð­asta vori. Í maí árið 2020 voru tæp­lega fjögur þús­und íbúðir aug­lýstar til sölu, en í októ­ber voru þær aðeins um 1.320.

Mest hefur fækk­unin verið á íbúðum í fjöl­býl­is­húsum á tíma­bil­inu, en hún nam 61 pró­senti á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og 66 pró­sentum á lands­byggð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár