Flótti lántakenda frá lífeyrissjóðunum og verðtryggðum lánum heldur áfram

Íslend­ingar eru farnir að sýna það í verki að þeir eru afar með­vit­aðir um kjör hús­næð­is­lána. Lægri stýri­vextir og aukin verð­bólga hafa leitt til þess að þús­undir hafa fært sig úr verð­tryggðum lánum í óverð­tryggð, og frá líf­eyr­is­sjóðum til banka.

Sjóðs­fé­lagar líf­eyr­is­sjóða hafa greitt upp lán hjá þeim fyrir tíu millj­arða króna umfram það sem sjóð­irnir lán­uðu út á tveimur mán­uðum. Í júlí námu upp­greiðslur líf­eyr­is­sjóðs­lána 5,1 millj­arði króna umfram ný lán og í ágúst var sú upp­hæð tæp­lega 4,9 millj­arðar króna.

Flóttinn er mestur úr verð­tryggðum lánum sjóð­anna. Alls voru greidd upp 3,8 millj­arðar króna af slíkum umfram ný útlán í júlí og tæp­lega fimm millj­arðar króna í ágúst. Heild­ar­fjöldi útlána líf­eyr­is­sjóða til sjóðs­fé­laga hefur dreg­ist saman um 2.225 tals­ins frá því í lok maí, þegar hann náði hámarki í 41.276 útlánum.

Þetta má lesa út úr nýjum hag­tölum frá Seðla­banka Íslands um ný útlán líf­eyr­is­sjóða til heim­ila lands­ins, sem birtar voru í gær­morgun.

Síðustu tveir mán­uð­irnir sem töl­urnar ná yfir, júlí og ágúst 2020, eru einu mán­uð­irnir síðan í byrjun árs 2009 þar sem upp­greiðslur líf­eyr­is­sjóðs­lána eru meiri en nýjar lán­tökur. Sam­an­tektir Seðla­banka Íslands ná ekki lengur aftur en til þess tíma, þ.e. jan­úar 2009.

Frá sjóðum til banka

Þessir við­skipta­vinir eru í unn­vörpum að færa sig í við­skipti til inn­láns­stofn­ana, að uppi­stöðu við­skipta­bank­anna þriggja: Lands­bank­ans, Íslands­banka og Arion banka. Þær hafa bætt við sig 144,1 millj­arði króna í nýjum útlánum til heim­ila með veði í fast­eign á breyti­legum vöxtum að frá­dregnum upp­greiðslum og umfram­greiðslum á fjög­urra mán­aða tíma­bili, frá byrjun maí og út ágúst.

[adspot]Ástæðan blasir við. Bank­arnir hafa hríð­lækkað husnæð­is­lána­vexti sína á síð­ustu mán­uðum sam­hliða því að stýri­vextir voru lækk­aðir niður í eitt pró­sent og ýmsar álögur á þá, eins og banka­skattur, var lækk­aður.

Samhliða hefur verð­bólga hækkað nokkuð skarpt, með til­heyr­andi áhrifum á verð­tryggð lán. Í lok apríl var hún 2,2 pró­sent og undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans. Nú er hún 3,5 pró­sent og einu pró­sentu­stigi yfir því.

Úr verðtryggðu í óverðtryggt

Í slíku árferði eru óverð­tryggð lán mun vin­sælli en verð­tryggð, sér­stak­lega þegar vextir eru skap­legir. Og það hafa þeir verið und­an­farið. Lands­bank­inn og Íslands­banki bjóða nú báðir 3,5 pró­sent breyti­lega óverð­tryggða vexti á hús­næð­is­lánum upp að 70 pró­sent veð­setn­ingu og á sam­bæri­legum lánum hjá Arion banka eru vext­irnir 3,54 pró­sent.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa hins vegar tekið þann pól í hæð­ina að keppa ekki við bank­ana um kjör á óverð­tryggðum lánum, heldur að ein­blína á að bjóða upp á bestu kjörin á verð­tryggðum lánum. Þar sker líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Birta sig úr, en hann býður 1,07 pró­sent breyti­lega verð­tryggða vexti upp að 65 pró­sent veð­setn­ingu. Fimm aðrir líf­eyr­is­sjóðir bjóða upp á slíka verð­tryggða vexti undir tveimur pró­sentum.

Varaseðlabankastjóri lýsti yfir áhyggjum

Rann­veig Sig­­urð­­ar­dótt­ir, vara­­seðla­­banka­­stjóri pen­inga­­mála í Seðla­­banka Íslands, lýsti yfir áhyggjur af þess­ari þróun á blaða­­manna­fundi sem hald­inn var í lok ágúst. „Það sem maður hefur áhyggjur af, bæði út frá pen­inga­­stefn­unni og fjár­­­mála­­stöð­ug­­leika, er að heim­ilin séu að skuld­­setja sig of mikið á breyt­i­­legum vöxt­­um. Von­andi verðum við ekki með svona lága vexti til fram­­tíð­­ar. Það er kannski það sem maður hefur mestar áhyggjur af í dag varð­andi mið­l­un­ina til heim­ila,“ sagði Rannveig þar.

Ásgeir Jóns­­son seðla­­banka­­stjóri sagði á sama fundi að það hefði gengið mjög vel að miðla vaxta­­lækk­­unum bank­ans til heim­ila. Við­brögð þeirra við hvata til frek­­ari lán­­töku á skap­­legri kjörum hefði verið meiri en bank­inn átti von á. Það ýti undir einka­­neyslu. „Það hefur verið framar von­­um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár