Samfylkingin undir tíu prósentin og hefur ekki mælst minni á kjörtímabilinu

Ný könnun Gallup sýnir að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir sigli nokkuð lygnan sjó og geti haldið áfram sam­starfi að óbreyttu. Einnig er mögu­leiki á Reykja­vík­ur­stjórn. Sós­í­alista­flokk­ur­inn hefur mælst stöðugt inni fimm kann­anir í röð.

Samfylkingin er í vanda samkvæmt nýrri könnun Gallup. Logi Einarsson er formaður flokksins.
Sam­fylk­ingin er í vanda sam­kvæmt nýrri könnun Gallup. Logi Ein­ars­son er for­maður flokks­ins. Mynd: Aðsend

Sam­fylk­ingin mælist nú með 9,9 pró­sent fylgi sam­kvæmt nýj­ustu könnun Gallup og hefur ekki mælst minni á kjör­tíma­bil­inu. Fylgi flokks­ins fellur um 2,5 pró­sentu­stig milli mán­aða og er nú vel undir kjör­fylgi, en Sam­fylk­ingin fékk 12,1 pró­sent atkvæða haustið 2017. Þetta er minnsta fylgi sem Sam­fylk­ingin hefur mælst með frá því í ágúst 2017, skömmu áður en að boðað var til kosn­ingar það ár. Hæst mæld­ist fylgið í jan­úar 2019, þegar 19,1 pró­sent lands­manna sögð­ust ætla að kjósa Sam­fylk­ing­una. Það hefur því helm­ing­ast frá þeim tíma. Sam­fylk­ingin, sem hefur mælst næst stærsti flokkur lands­ins þorra kjör­tíma­bils­ins, mælist nú sá sjötti stærsti. Fylgi flokks­ins hefur hríð­fallið það sem af er ári, eftir að hann kynnti fram­boðs­lista sína fyrir kom­andi kosn­ingar.

Píratar taka þorra þess fylgis til sín en þeir hækka úr ell­efu í 12,9 pró­sent milli mán­aða og eru nú þriðji stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt könnun Gallup. Viðreisn stendur hins vegar í stað og mælist með 10,9 pró­sent fylgi. Þetta er í fyrsta sinn sem Píratar og Viðreisn mæl­ast stærri en Sam­fylk­ingin á kjör­tíma­bil­inu. Sam­an­lagt fylgi þess­ara þriggja stjórn­ar­and­stöðu­flokka er nú 33,7 pró­sent.

[adspot]Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætir lít­il­lega við sig milli mán­aða og er mælist með 24,1 pró­sent fylgi. Hann er áfram sem áður langstærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt könn­unum Gallup.

Vinstri græn standa í stað milli mán­aða og mæl­ast með 14,7 pró­sent fylgi. Það gerir Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn líka en 10,3 pró­sent lands­manna segj­ast styðja hann. sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja mælist 49,1 pró­sent en allir eru að mæl­ast undir kjör­fylgi. Slíkt fylgi myndi þó að óbreyttu duga þeim til að halda áfram stjórn­ar­sam­starfi með 33 þing­menn af 63.

Það er lítið eitt meira fylgi en það stjórn­ar­mynstur sem ræður ríkjum í Reykja­vík­ur­borg – Vinstri græn, Píratar, Viðreisn og Sam­fylk­ing – en þeir mæl­ast sam­an­lagt með 48,6 pró­sent fylgi. Það myndi líka duga fyrir 33 þing­mönnum og þriggja manna meiri­hluta.

Miðflokkurinn fellur en Sósíalistaflokkurinn inni

Mið­flokk­ur­inn er á svip­uðum slóðum og hann hefur verið í könn­unum und­an­farið, með 7,5 pró­sent fylgi. Það er tölu­vert undir kjör­fylgi hans, en flokk­ur­inn fékk 10,9 pró­sent atkvæða 2017.

[adspot]Sós­í­alista­flokk­ur­inn mælist með menn inni, þrjá í þetta skiptið, í fimmtu könnun Gallup í röð. Alls segj­ast 5,4 pró­sent lands­manna ætla að kjósa þann flokk sem býður fram til þings í fyrsta sinn í haust.

Flokkur fólks­ins hefur ein­ungis einu sinni mælst með fimm pró­sent fylgi frá því í lok árs 2018, það var í mars síð­ast­liðnum þegar fylgi flokks­ins mæld­ist slétt fimm pró­sent. Hann stendur nán­ast í stað milli mán­aða og nýtur fylgis 4,2 pró­sent lands­manna.

Að óbreyttu myndu því átta flokkar ná inn á þing. Sós­í­alista­flokkur Íslands myndi taka stað Flokks fólks­ins.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina dalar milli mán­aða og mælist nú 58,7 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár