Bifreiðaframleiðandinn Volvo borgar engan fyrirtækjaskatt í Svíþjóð og hefur ekki gert síðan árið 2010. Í fyra hagnaðist fyrirtækið um 1.5 milljarð sænskra króna, tæplega 24 milljarða króna, en greiddi þrátt fyrir það enga fyrirtækjaskatta í Svíþjóð. Dagblaðið Dagens Nyheter greinir frá þessu í dag. Volvo var selt til kínverska fyrirtækisins Geely árið 2010 og miðast skoðun Dagens Nyheter við tímabilið frá þeim kaupum og til dagsins í dag.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir