Getur loksins andað að sér ferska loftinu án sársauka og ótta

Gerður Ósk Hjalta­dóttir og vin­kona hennar, Sólveig Björns­dóttir, stofna Facebook-hóp­inn „Verum besta útgáfan af okkur sjálfum“. Hug­myndin er að fólk geti skipst þar á ráðum svo því líði betur and­lega og lík­am­lega.

Gerður Ósk Hjaltadóttir
Gerður Ósk Hjalta­dóttir Hefur verið veik frá ung­lings­ár­unum og vill miðla reynslu og hjálpa. Mynd: Ester Guðbjörnsdóttir

Gerður Ósk Hjalta­dóttir hefur lifað við erfið veik­indi frá ung­lings­ár­unum. Hún missti húð á höndum og fótum við álag vegna sjálfsof­næmis, en er núna komin á betri stað og byrjuð að hjálpa öðrum með því að stofna hóp á Facebook til að deila góðum ráðum um betrun.

„Vinkonu minni, Sólveigu Björns­dóttur, datt í hug að stofna svona hóp en sjálfa hefur mig lengi langað til að gera eitt­hvað þar sem konur og karlar geta deilt sögum af sjálfum sér – hvað hjálpar við­kom­andi, hvernig hægt er að styrkja hvert annað án þess að vera að dæma og fundið ráð,“ segir Gerður Ósk Hjalta­dóttir.

„Mark­miðið er að geta hjálpað. Fólk á að geta farið inn á þessa síðu og fundið ein­hvern vett­vang til að deila reynslu sinni, hjálpað hvað öðru og leið­beint þannig að við getum verið besta útgáfan af okkur sjálfum. Það er aðal­fók­us­inn – hvaða leið sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár