VR skorar á stjórnvöld að tryggja launagreiðslur almenns launafólks

Stjórn VR hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna áhrifa og afleið­inga COVID-19.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn VR skorar á stjórn­völd að hefja taf­ar­laust vinnu við að bregð­ast við mögu­legum áhrifum nið­ur­sveifl­unnar á fjár­hag heim­il­anna og tryggja að sömu mis­tökin og gerð voru eftir hrun end­ur­taki sig ekki.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem VR sendi frá sér í dag.

Þá fagnar stjórn VR því að stjórn­völd grípi til mót­væg­is­að­gerða vegna COVID-19 veirunnar en gerir alvar­legar athuga­semdir við það að hvergi sé að finna mót­væg­is­að­gerðir fyrir félags­menn þeirra og heim­ilin. VR skorar á stjórn­völd að tryggja launa­greiðslur almenns launa­fólks, til að mynda með tíma­bundnum aðgerðum frá Atvinnu­leys­is­trygg­ing­ar­sjóði.

„Ein stærstu hag­stjórn­ar­mis­tökin eftir banka­hrunið 2008 var að veita ekki venju­legu fólki raun­veru­legan sveigj­an­leika til að takast á við greiðslu­fall vegna atvinnu­missis eða stökk­breyt­ingu lána. Aðgerð­ar­leysi og þjónkun stjórn­valda við fjár­mála­kerfið end­aði með skelfi­legum afleið­ingum sem fólk er jafn­vel að berj­ast við enn í dag, tæpum tólf árum seinna. Nú gæti svo farið að nið­ur­sveiflan sem COVID- 19 veiran gæti haft í för með sér væri atvinnu­leysi á borð við það sem hér varð eftir hrun, ef verstu spár ganga eftir. Hlýtur sú spurn­ing að vakna hvort stjórn­völd ætli enn og aftur að slá skjald­borg um fyr­ir­tækin og fjár­mála­kerfið en skilja fólkið í land­inu eftir óvarið. Tryggja verður hús­næð­is­ör­yggi almenn­ings t.d. með fryst­ingu afborg­ana hús­næð­is­lána og sér­stökum aðgerðum fyrir fólk á leigu­mark­aði,“ segir í til­kynn­ingu VR.

Einnig skorar VR á Seðla­bank­ann að standa við sitt lög­bundna hlut­verk að halda verð­bólgu lágri. „Gengi krón­unnar hefur verið að veikj­ast sem að óbreyttu mun leiða af sér verð­bólgu og því skorar VR á Seðla­bank­ann að nýta ríf­legan gjald­eyr­is­forða til að halda gengi íslensku krón­unnar stöð­ugu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár