Íslandsbanki mun áfram bera ábyrgð á fjártjóni í Borgunarmálinu

Þrátt fyrir að Íslands­banki hafi selt hlut sinn í Borgun í síð­asta mán­uði mun bank­inn áfram bera ábyrgð á að greiða hinum rík­is­bank­anum, Lands­bank­anum, bætur ef Borg­un­ar­málið tap­ast. Matsmenn í mál­inu telja að upp­lýs­ingar hafi vantað í árs­reikn­ing.

Greiðslumiðlunarfyrirtækið Borgun var nýlega selt til erlendra eigenda. Ábyrgð á mögulegum blekkingum fortíðar situr eftir hjá fyrri eigendum.
Greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tækið Borgun var nýlega selt til erlendra eig­enda. Ábyrgð á mögu­legum blekk­ingum for­tíðar situr eftir hjá fyrri eig­endum. Mynd: Pexels.com

Íslands­banki, sem er að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins, mun áfram bera ábyrgð á því að greiða 63,47 pró­sent af því fjár­tjóni sem Lands­bank­inn, einnig að nán­ast öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins, telur sig hafa orðið fyrir vegna sölu á 31,2 pró­sent eign­ar­hlut sínum í Borgun síðla árs 2014, þrátt fyrir að Íslands­banki hafi selt eign­ar­hlut sinn í Borgun 7. júlí síð­ast­lið­inn.

Lands­bank­inn áætlar að fjár­hags­legt tjón sitt af við­skipt­unum, og því að stjórn­endur Borgunar hafi meðal ann­ars leynt upp­lýs­ingum um virði eign­ar­hlutar fyr­ir­tæk­is­ins í Visa Europe, sé rúm­lega 1,9 millj­arður króna. Því gæti rík­is­bank­inn Íslands­banki þurft að greiða rík­is­bank­anum Lands­bank­anum rúm­lega 1,2 millj­arða króna ef dóm­stólar kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu að máls­höfðun Lands­bank­ans sé á rökum reist.

Frá þessu er greint í árs­hluta­upp­gjöri Íslands­banka sem birt var í síð­ustu viku.

Íslands­banki seldi hlut sinn í Borgun til alþjóð­lega greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Salt Pay 7. júlí síð­ast­lið­inn. Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun, sem keypti hlut Lands­bank­ans í við­skipt­unum umdeildu árið 2014, seldi líka sinn 32,4 pró­senta hlut. Stærstu eig­endur þess eru gamla útgerð­ar­fyr­ir­tækið Stál­skip og félagið P126 ehf. (eig­andi er félag í Lúx­em­borg og eig­andi þess er Einar Sveins­son).

[adspot]Kaup­verðið fyrir tæp­lega 96 pró­senta hlut í Borgun var sagt trún­að­ar­mál en Frétta­blaðið greindi frá því viku síðar að það hafi verið sam­tals 27 millj­ónir evra, um 4,3 millj­arðar króna. Það hafði lækkað um átta millj­ónir evra, um 1,3 millj­arða króna, frá því að kaup­samn­ingur var und­ir­rit­aður 11. mars 2020. Helsta ástæða þess að verðið lækk­aði voru áhrif COVID-19 far­ald­urs­ins á starf­semi Borgunar, en fyr­ir­tækið tap­aði alls 635 millj­ónum króna á fyrstu sex mán­uðum yfir­stand­andi árs. Til sam­an­burðar nam tap þess á fyrri hluta árs­ins 2019 132 millj­ónum króna.

Áður en að gengið var frá söl­unni á Borgun var hlutafé í félag­inu lækkað. Sú lækkun fór fram þannig að for­gangs­hluta­bréf í Visa Inc, sem Borgun eign­að­ist árið 2016 við að selja hlut sinn í Visa Europe, voru færð inn í félagið Borgun-VS ehf. Frá­far­andi eig­endur Borgunar eign­uð­ust svo það félag. Virði for­gangs­hluta­bréf­anna er sagt vera rúm­lega 3,1 millj­arður króna í árs­hluta­upp­gjöri Íslands­banka.

Sala síðla árs 2014 dregur áfram dilk á eftir sér

Í árs­hluta­upp­gjör­inu kemur einnig fram að Íslands­banki mun áfram bera ábyrgð á því að greiða 63,47 pró­sent af því fjár­tjóni sem Lands­bank­inn, einnig að nán­ast öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins, telur sig hafa orðið fyrir vegna sölu á 31,2 pró­sent eign­ar­hlut sínum í Borgun síðla árs 2014, þrátt fyrir að Íslands­banki hafi selt eign­ar­hlut sinn í Borgun 7. júlí síð­ast­lið­inn. Því ber rík­is­banki ábyrgð áfram ábyrgð á því að greiða stærstan hluta af mögu­legu fjár­tjóni ann­ars rík­is­banka, þrátt fyrir að eiga ekki lengur Borgun.

Forsaga máls­ins er sú að Lands­bank­inn seldi hlut sinn í Borgun, í nóv­em­ber 2014 til Eign­ar­halds­fé­lags­ins Borg­unar. Kaupin áttu sér þann aðdrag­anda að maður að nafni Magnús Magn­ús­son, með heim­il­is­festi á Möltu, setti sig í sam­band við rík­is­bank­ann og fal­að­ist eftir eign­ar­hlutnum fyrir hönd fjár­festa. Á meðal þeirra sem stóðu að kaup­enda­hópnum voru þáver­andi stjórn­endur Borg­un­ar.

Hópurinn fékk að kaupa 31,2 pró­sent hlut­ Lands­bank­ans á tæp­lega 2,2 millj­arða króna án þess að hann væri settur í opið sölu­ferli. Í fyrstu vörðu stjórn­endur Lands­bank­ans söl­una og það að hlut­ur­inn hafi ekki verið boð­inn út í opnu sölu­ferli. Það breytt­ist þó fljót­lega, sér­stak­lega þegar í ljós kom að á meðal eigna Borg­unar var hlutur í Vísa Europe, sem var keyptur af Visa Inc. skömmu síð­ar. Þessi eign­ar­hlutur var marga millj­arða króna virði en hafði ekki verið metin þannig við söl­una á eign­ar­hlut Lands­bank­ans.

Enn fremur var ekki gerður neinn fyr­ir­vari í kaup­­samn­ingnum um við­­bót­­ar­greiðslur vegna val­réttar Borg­unar vegna mög­u­­legrar sölu Visa Europe til Visa Inc.

Þrír stærstu aðil­arnir sem stóðu að Eign­ar­halds­fé­lag­inu Borgun voru gamla útgerð­ar­fyr­ir­tækið Stál­skip, félagið P126 ehf. (eig­andi er félag í Lúx­em­borg og eig­andi þess er Einar Sveins­son), og félagið Pétur Stef­áns­son ehf. (Í eigu Pét­urs Stef­áns­son­ar). Ein­hver við­skipti hafa síðan verið með hluti í Borgun frá því að Lands­bank­inn seldi sinn hlut.

Hörð gagnrýni Ríkisendurskoðunar

Í nóv­em­ber 2016 birti Rík­­is­end­­ur­­skoð­un skýrslu um fjöl­margar eigna­­sölur Lands­bank­ans á árunum 2010 til 2016 og gagn­rýndi þær harð­­lega. Á meðal þeirra er salan á hlut í Borg­un. Tíu dögum síðar var Stein­þóri Páls­syni, banka­stjóra Lands­bank­ans, sagt upp störf­um. Sú ákvörðun var rakin beint til Borg­un­ar­máls­ins.

[adspot]Skömmu eftir útkomu skýrsl­unnar ákvað Lands­bank­inn að stefna Borgun hf., Eign­ar­halds­fé­lag­inu Borgun slf., BPS ehf. og Hauki Oddssyni, þáver­andi for­stjóra Borgunar. Lands­bank­inn taldi að Borgun hefði átt að upp­lýsa um eign­ar­hlut sinn í Visa Europe Ltd. í árs­reikn­ingi 2013.

Haukur Oddsson hætti störfum hjá Borgun í októ­ber 2017. Við starfi hans tók Sæmundur Sæmunds­son. Hann hætti störfum eftir að Salt Pay tók yfir Borgun í síð­asta mán­uði. Nýir for­stjórar Borg­unar eru þeir Eduardo Pontes og Marcos Nunes.

Arðbær rekstur sem súrnaði á síðustu árum

Rekstur Borg­unar gekk ótrú­lega vel næstu árin eftir kaupin. Hagn­aður árs­ins af reglu­legri starf­semi var undir einum millj­arði króna árið 2013. Árið 2016 var hann rúm­lega 1,6 millj­arðar króna. En hlut­deildin í söl­unni á Visa Europe skiptir auð­vitað mestu máli þegar virð­is­aukn­ing fyr­ir­tæk­is­ins er met­in. Hún skil­aði Borgun 6,2 millj­örðum króna.

Nýju eig­end­urnir nutu þessa. Sam­tals voru greiddir 7,7 millj­­arðar króna í arð­greiðslur til eig­enda Borg­unar vegna áranna 2014-2016. Ef Lands­­bank­inn, sem er nán­­ast að öllu leyti í eigu íslenska rík­­is­ins, hefði haldið 31,2 pró­­sent hlut sínum í fyr­ir­tæk­inu hefði hlut­­deild hans í umræddum arð­greiðslum numið 2,4 millj­­örðum króna.

Á árinu 2017 hagn­að­ist Borgun um 350 millj­ónir króna og eignir þess voru metnar á 31,7 millj­arða króna í árs­lok. Bók­fært eigið fé á þeim tíma var 6,8 millj­arðar króna.

Á árunum 2018 og 2019 fór rekst­ur­inn hins vegar að versna til muna. Sam­an­lagt tap á þeim árum nam um tveimur millj­örðum króna og á fyrri hluta árs­ins 2020 var tapið, líkt og áður sagði, 635 millj­ónir króna.

Yfirmat á að liggja fyrir um miðjan október

Mál Lands­bank­ans hefur mallað áfram í dóms­kerf­inu þrátt fyrir breyttar rekstr­ar­for­sendur Borgunar og nýtt eign­ar­hald á fyr­ir­tæk­inu. Matsmenn sem skip­aðir voru í því skil­uðu inn mats­gerð til hér­aðs­dóms 22. októ­ber í fyrra.

[links]Þar kom fram að mats­menn­irnir töldu meðal ann­ars að upp­lýs­ingar um til­vist val­réttar um kaup og sölu á eign­ar­hlut Borgunar í Visa Europe Ltd til Visa Inc., skil­mála hans og mögu­legar greiðslur til Borgunar á grund­velli hans hefðu verið mik­il­vægar við gerð, fram­setn­ingu og þar af leið­andi end­ur­skoðun árs­reikn­ings Borgunar árið 2013.

Borgun hefði jafn­framt átt að gera grein fyrir val­rétt­inum í árs­reikn­ingi 2013 í sam­ræmi við ákvæði alþjóð­legs reikn­ings­skila­stað­als og upp­lýsa um óvissu um hann í skýrslu stjórnar.

Í nýlegum árs­hluta­reikn­ingi Lands­bank­ans, sem er í eigu íslenska rík­is­ins, segir enn fremur að mats­menn­irnir telji að „árs­reikn­ingur Borgunar fyrir árið 2013 hafi ekki upp­fyllt allar kröfur laga um árs­reikn­inga og alþjóð­legra reikn­ings­skila­staðla eins og þeir voru sam­þykktir af Evr­ópu­sam­band­inu á þeim tíma.“

Lands­bank­inn lagði mats­gerð­ina fram við fyr­ir­töku í hér­aðs­dómi 9. des­em­ber 2019. Við fyr­ir­töku máls­ins 24. jan­úar 2020 lagði Borgun og annar stefndi, sem er ekki sér­stak­lega nefndur í árs­hluta­reikn­ingi Lands­bank­ans, fram beiðni um dóm­kvaðn­ingu yfir­mats­manna. Í reikn­ingnum segir að hér­aðs­dómur Reykja­víkur hafi dóm­kveðið yfir­mats­menn 29. júní 2020 og að yfir­mat skuli liggja fyrir eigi síðar en 15. októ­ber 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár