Salt Pay talið hæft til að fara með virkan eignarhlut í Borgun

Fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd Seðla­banka Íslands hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Salt Pay, með skráð aðsetur á Caymaneyjum, sé hæft til að fara með yfir 50 pró­sent virkan eign­ar­hlut í Borgun.

Fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd Seðla­banka Íslands hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að félagið Salt Pay Co Ltd., með skráð aðsetur á Caymaneyjum, sé hæft til að fara með yfir 50 pró­sent virkan eign­ar­hlut í Borgun hf.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Seðla­banka Íslands.

„Fjár­mála­eft­ir­litið leggur mat á hvort sá sem hyggst eign­ast virkan eign­ar­hlut sé hæfur til að fara með eign­ar­hlut­inn með til­liti til heil­brigðs og trausts rekst­urs fjár­mála­fyr­ir­tækis. Matið grund­vall­ast á við­miðum, sem fram koma í 2. mgr. 42. gr. laga um fjár­mála­fyr­ir­tæki, auk þess sem stofn­unin hefur hlið­sjón af við­mið­un­ar­reglum evr­ópsku eft­ir­lits­stofn­an­anna á fjár­mála­mark­aði frá 2016,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Fjár­mála­eft­ir­litið komst einnig að þeirri nið­ur­stöðu að félögin Salt Partners Ltd., með skráð aðsetur á Caymaneyjum, og VCK Invest­ment Fund Ltd., með skráð aðsetur á Bahama­eyjum, og Andre Street De Aguiar og Eduardo Cunha Monnerat Solon De Pontes væru hæf til að fara með yfir 50 pró­sent óbeinan virkan eign­ar­hlut í Borgun hf. Jafn­framt var það nið­ur­staðan að banda­ríski sjóð­ur­inn LTS Invest­ments Fund LP. væri hæfur til að fara með allt að 33 pró­sent óbeinan virkan eign­ar­hlut í Borgun hf.

Mat Fjár­mála­eft­ir­lits­ins grund­vall­að­ist á til­kynn­ingu Salt Pay Co Ltd. og tengdra aðila, fylgi­skjölum og ítar­legum upp­lýs­ingum sem stofn­unin afl­aði frá aðil­unum. Matið byggði einnig á upp­lýs­ingum sem stofn­unin afl­aði frá erlendu fjár­mála­eft­ir­liti, að því er fram kemur í til­kynn­ing­unni.

Í fréttum vegna sölu á hlut Lands­bank­ans

Borgun er búin að vera umtals­vert í fréttum und­an­farin ár, eftir að Lands­bank­inn seldi 31,2 pró­sent hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu til Eign­ar­halds­fé­lags­ins Borg­unar bak­við luktar dyr í nóv­em­ber 2014. ­Kaupin áttu sér þann aðdrag­anda að maður að nafni Magnús Magn­ús­­son, með heim­il­is­­festi á Möltu, setti sig í sam­­band við rík­­is­­bank­ann og fal­að­ist eftir eign­­ar­hlutnum fyrir hönd fjár­­­festa. Á meðal þeirra sem stóðu að kaup­enda­hópnum voru þáver­andi stjórn­­endur Borg­un­­ar.

Hópurinn fékk að kaupa 31,2 pró­­sent hlut­ Lands­bank­ans á tæp­­lega 2,2 millj­­arða króna án þess að hann væri settur í opið sölu­­ferli. Í fyrstu vörðu stjórn­­endur Lands­­bank­ans söl­una og það að hlut­­ur­inn hafi ekki verið boð­inn út í opnu sölu­­ferli. Það breytt­ist þó fljót­­lega, sér­­stak­­lega þegar í ljós kom að á meðal eigna Borg­unar var hlutur í Vísa Europe, sem var keyptur af Visa Inc. skömmu síð­­­ar. Þessi eign­­ar­hlutur var marga millj­­arða króna virði en hafði ekki verið metin þannig við söl­una á eign­­ar­hlut Lands­­bank­ans.

Enn fremur var ekki gerður neinn fyr­ir­vari í kaup­­­samn­ingnum um við­­­bót­­­ar­greiðslur vegna val­réttar Borg­unar vegna mög­u­­­legrar sölu Visa Europe til Visa Inc.

Þrír stærstu aðil­­arnir sem stóðu að Eign­­ar­halds­­­fé­lag­inu Borgun voru gamla útgerð­­ar­­fyr­ir­tækið Stál­­skip, félagið P126 ehf. (eig­andi er félag í Lúx­em­borg og eig­andi þess er Einar Sveins­­son), og félagið Pétur Stef­áns­­son ehf. (Í eigu Pét­­urs Stef­áns­­son­­ar). Ein­hver við­­skipti hafa síðan verið með hluti í Borgun frá því að Lands­­bank­inn seldi sinn hlut.

Í nóv­­em­ber 2016 birti Rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­un skýrslu um fjöl­margar eigna­­­sölur Lands­­bank­ans á árunum 2010 til 2016 og gagn­rýndi þær harð­­­lega. Á meðal þeirra er salan á hlut í Borg­un. Tíu dögum síðar var Stein­þóri Páls­­syni, banka­­stjóra Lands­­bank­ans, sagt upp störf­­um. Sú ákvörðun var rakin beint til Borg­un­ar­máls­ins.

Haukur Odds­son, sem var for­stjóri Borg­unar þegar kaupin áttu sér stað og er einn þeirra sem Lands­bank­inn stefndi í lok árs 2016, hætti störfum hjá Borgun í októ­ber 2017. Við starfi hans tók Sæmundur Sæmunds­son.

Arð­greiðslur hærri en kaup­verðið

Rekstur Borg­unar gekk ótrú­­lega vel næstu árin eftir kaup­in. Hagn­aður árs­ins af reglu­­legri starf­­semi var undir einum millj­­arði króna árið 2013. Árið 2016 var hann rúm­­lega 1,6 millj­­arðar króna. En hlut­­deildin í söl­unni á Visa E­urope ­skiptir auð­vitað mestu máli þegar virð­is­aukn­ing fyr­ir­tæk­is­ins er met­in. Hún skil­aði Borgun 6,2 millj­­örðum króna.

Nýju eig­end­­urnir nutu þessa. Sam­tals voru greiddir 7,7 millj­­­arðar króna í arð­greiðslur til eig­enda Borg­unar vegna áranna 2014-2016. Ef Lands­­­bank­inn, sem er nán­­­ast að öllu leyti í eigu íslenska rík­­­is­ins, hefði haldið 31,2 pró­­­sent hlut sínum í fyr­ir­tæk­inu hefði hlut­­­deild hans í umræddum arð­greiðslum numið 2,4 millj­­­örðum króna.

Í ljósi þess að hlutur Lands­­bank­ans var seldur í nóv­­­em­ber 2014 fyrir 2.184 millj­­­ónir króna voru arð­greiðsl­­­urnar sem runnu hafa til nýrra eig­enda að hlutnum frá því að hann var seldur og til loka árs 2016 218 millj­­­ónir króna fram yfir það sem greitt var fyrir hlut rík­­­is­­­bank­ans haustið 2014. Kaup­end­urnir eru því þegar búnir að fá allt sitt til baka auk 218 millj­­óna króna og eiga enn hlut­inn í Borg­un.

Á árinu 2017 hagn­að­ist Borgun um 350 millj­­ónir króna og eignir þess voru metnar á 31,7 millj­­arða króna í árs­­lok. Bók­­fært eigið fé á þeim tíma var 6,8 millj­­arðar króna.

Verri rekstur síð­ustu árin

Rekst­ur­inn versn­aði hins vegar til muna á árinu 2018 þegar Borgun tap­aði alls tæp­lega 1,1 millj­arði króna. Hreinar rekstr­ar­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins rúm­lega helm­ing­uð­ust á því ári, úr um 4,2 millj­örðum króna í rúm­lega tvo millj­arða króna. Í árs­reikn­ingi árs­ins 2018 sagði að tapið á því ári skýrist „fyrst og fremst af hratt minnk­andi tekjum af erlendum við­skiptum hjá selj­endum sem selja vöru og þjón­ustu ein­göngu yfir inter­net­ið. Auk þess má rekja lægri hreinar þjón­ustu­tekjur til auk­ins kostn­aðar umfram tekjur af inn­lendri færslu­hirð­ingu sem skýrist fyrst og fremst drætti í inn­leið­ingu á nýjum lögum um lækkun milli­gjalda. Að síð­ustu má nefna að hreinar þjón­ustu­tekjur hafa lækkað vegna nei­kvæðrar fram­legðar af stórum erlendum selj­enda sem félagið tók í við­skipti undir lok árs 2017.“

Í fyrra tap­aði Borgun svo 972 millj­ónum króna og rekstr­ar­tekjur voru 2,6 millj­arðar króna. Eignir fyr­ir­tæk­is­ins voru metnar á 22,4 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót og eigið fé þess var á þeim tíma 6,6 millj­arðar króna.

Lands­bank­inn stefndi og mál­inu ólokið

Í jan­úar 2017 stefndi Lands­bank­inn Borgun hf., fyrr­ver­andi for­­stjóra Borg­unar Hauki Odds­­syni, BPS ehf. og Eign­­ar­halds­­­fé­lag­inu Borgun slf. vegna þess að það væri mat bank­ans að hann hefði orðið af sölu­hagn­aði við sölu á 31,2 pró­sent hlut sínum í Borgun á árinu 2014.

Lands­bank­inn hefur ekki til­greint þá upp­hæð sem hann fer fram á að fá greidda vinni hann málið en í níu mán­aða upp­gjöri Íslands­banka, stærsta eig­anda Borg­un­ar, í fyrra kemur fram að mat Lands­bank­ans á tapi sínu á söl­unni sé um 1,9 millj­arður króna. Lands­bank­inn er nán­ast að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins. Því er tap hans tap skatt­greið­enda. Mats­menn sem lögðu mat á árs­reikn­ing Borg­unar fyrir árið 2013 við með­ferð máls­ins komust að þeirri nið­ur­stöðu að upp­lýs­ingar um til­vist val­réttar um kaup og sölu á eign­ar­hlut Borg­unar í Visa Europe Ltd til Visa Inc., skil­mála hans og mögu­legar greiðslur til Borg­unar á grund­velli hans hafi verið mik­il­vægar við gerð, fram­setn­ingu og þar af leið­andi end­ur­skoðun árs­reikn­ings Borg­unar árið 2013. Þá hefði Borgun átt að upp­lýsa um ­eign­ar­hlut sinn í Visa Europe Ltd. og að félagið væri aðili að Visa Europe Ltd. í árs­reikn­ingn­um.

Borgun hefði jafn­framt átt að gera grein fyrir val­rétt­inum þar í sam­ræmi við ákvæði alþjóð­legs reikn­ings­skila­stað­als og upp­lýsa um óvissu um hann í skýrslu stjórnar sam­kvæmt lögum auk þess sem að mats­menn telja að árs­reikn­ingur Borg­unar fyrir árið 2013 hafi ekki upp­fyllt allar kröfur laga um árs­reikn­inga og alþjóð­legra reikn­ings­skila­staðla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár