Ótrúlegra en lygasaga

Yfir­maður leyni­þjón­ustu danska hers­ins situr nú í gæslu­varð­haldi, grun­aður um að hafa lekið upp­lýs­ingum, sem varða öryggi Dan­merkur, til fjöl­miðla. Slíkt getur kostað tólf ára fang­elsi.

Lars Findsen
Lars Findsen Mynd: EPA

Margir Danir trúðu vart sínum eigin augum og hafa lík­lega þurft að lesa tvisvar eða þrisvar upp­slátt­ar­fréttir dönsku net­miðl­anna síð­ast­lið­inn mánu­dag, 10. jan­úar, til að trúa því að þeir læsu rétt. Nefni­lega því að Lars Findsen yfir­maður leyni­þjón­ustu danska hers­ins væri kom­inn í fang­elsi, grun­aður um að leka mik­il­vægum trún­að­ar­upp­lýs­ingum. Hann hafði ásamt þremur öðrum hátt­settum emb­ætt­is­mönnum úr Leyni­þjón­ustu lög­regl­unnar og Leyni­þjón­ustu hers­ins verið hand­tek­inn, með leynd, 8. des­em­ber síð­ast­lið­inn.

Nöfn hinna hand­teknu voru ekki gefin upp þegar hand­tök­urnar fóru fram. Fjöl­miðlar vissu reyndar þann sama dag að ein­hverjir tengdir leyni­þjón­ust­unum hefðu verið hand­teknir en fæsta trú­lega grunað að einn þeirra væri stærsti fisk­ur­inn í leyni­þjón­ustu­fiska­búri hers­ins (orða­lag Politi­ken), áður­nefndur Lars Findsen. Þremur, sem hafa stöðu grun­aðra, var sleppt eftir yfir­heyrslur en Lars Findsen úrskurð­aður í gæslu­varð­hald. Nafn hans var svo, eins og áður sagði gert opin­bert síð­ast­lið­inn mánu­dag. Í til­kynn­ingu Leyni­þjón­ustu lög­regl­unnar kom fram að hinir grun­uðu væru taldir hafa lekið við­kvæmum trún­að­ar­upp­lýs­ingum. Refsing við slíku getur kostað 12 ára fang­elsi.

Í Danmörku starfa tvær leyni­þjón­ustur: Leyni­þjón­usta lög­regl­unnar, PET, og Leyni­þjón­usta hers­ins, FE. PET sinnir því sem flokk­ast undir inn­an­rík­is­mál en FE málum sem varða her­inn og öryggi dönsku þjóð­ar­innar á alþjóða­vett­vangi. Sérstök stofnun, TET, sinnir eft­ir­liti með báðum þessum leyni­þjón­ustum.

Harðorð fréttatilkynning

Þann 24. ágúst 2020 sendi eft­ir­lits­stofn­unin, TET, frá sér frétta­til­kynn­ingu. Þar kom fram að leyni­þjón­usta hers­ins, FE, hefði safnað, og látið öðrum í té, veru­legt magn upp­lýs­inga, eins og það var orðað, um danska rík­is­borg­ara. Athygli vakti hve frétta­til­kynn­ingin var harð­orð, þótt hún væri stutt. Danska varn­ar­mála­ráðu­neytið sendi sömu­leiðis frá sér til­kynn­ingu þennan sama dag, þar sem fram kom að fimm hátt­settir starfs­menn FE hefðu verið sendir í leyfi. Einn þess­ara fimm var yfir­maður FE, Lars Findsen. Einn fimm­menn­ing­anna var fljót­lega hreins­aður af öllum grun um að hafa gert eitt­hvað mis­jafnt.

Varn­ar­mála­ráðu­neytið sendi síðar þennan sama dag, 24. ágúst 2020, frá sér aðra til­kynn­ingu. Þar var greint frá því að í skýrslu TET hefðu komið fram alvar­legar ásak­anir um mis­bresti í starf­semi leyni­þjón­ustu hers­ins. FE.

Samvinnan við NSA

Danskir frétta­menn sökktu sér niður í þetta mál til að finna út hvað fælist hefði í til­kynn­ingum ráðu­neyt­is­ins og eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar. Og komust fljótt á sporið. 27. ágúst síð­ast­lið­inn greindi danska útvarpið, DR, frá náinni sam­vinnu Leyni­þjón­ustu hers­ins og National Security Agency (NSA) einni stærstu, ef ekki stærstu, leyni­þjón­ustu Banda­ríkj­anna. FE hafði heim­ilað NSA aðgang að flutn­ings­línum tölvu­gagna (ljós­leið­ara) en sá aðgangur gerir NSA mögu­legt að fylgj­ast með sím­tölum, sms skila­boðum og tölvu­pósti. Sem sé öllum raf­rænum send­ingum og sam­skiptum dönsku þjóð­ar­innar.

Þótt FE hafi heim­ild danskra stjórn­valda til sam­vinnu við erlendar leyni­þjón­ustur nær þessi galopni aðgangur NSA að sam­skipta­upp­lýs­ingum langt út fyrir þau mörk. Stjórn­mála­skýr­andi DR, sagði að þetta mál yrði lík­lega mesti skandall í sögu danskrar leyni­þjón­ustu, á síð­ari tímum. Nú virð­ist ljóst að þetta verði ekki síð­asti skandall­inn.

Haustið 2020 hóf sér­stök nefnd undir for­ystu þriggja lands­rétt­ar­dóm­ara, skipuð af dönsku leyni­þjón­ust­unni PET, umfangs­mikla rann­sókn sem beind­ist að báðum leyni­þjón­ust­unum. Nefndin starf­aði með mik­illi leynd, nánar um nið­ur­stöður hennar aftar í þessum pistli.

Ritstjórar boðaðir á fund

Fyrsta og tólfta des­em­ber í fyrra, rúmum 15 mán­uðum eftir áður­nefnda frétta­til­kynn­ingu eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar, voru rit­stjórar dag­blað­anna Berl­ingske, Jót­land­s­pósts­ins og Politi­ken, ásamt frétta­rit­stjóra danska útvarps­ins, DR, boð­aðir á fund yfir­manna leyni­þjón­ust­anna. Síðar voru rit­stjóri Weekendavisen og fleiri boð­aðir á sams­konar fund. Rit­stjór­arnir voru undr­andi á þessu fund­ar­boði og ekki síður fund­ar­efn­inu. Þeim var til­kynnt að fjöl­miðlar gætu sætt hörðum refs­ingum fyrir að segja frá leyni­legum upp­lýs­ingum sem varða þjóðar­ör­yggi, sbr. grein 109 í dönsku refsi­lög­gjöf­inni. „Það var bein­línis haft í hót­unum við okkur,“ sagði einn rit­stjór­anna eftir fund­inn. Síðar voru átta blaða­menn boð­aðir á fund hjá yfir­mönnum leyni­þjón­ust­anna, fund­ar­efnið það sama, greina frá hugs­an­legum afleið­ingum þess að birta leyni­legar upp­lýs­ingar.

Skýrsla rannsóknarnefndarinnar

Fyrir rúmum mán­uði, nánar til­tekið 13. des­em­ber, skil­aði rann­sókn­ar­nefndin sem fyrr var getið skýrslu sinni. Nefndin hafði þá starfað í tæpa 15 mán­uði. Í skýrsl­unni voru emb­ætt­is­menn FE, hreins­aðir af öllum ásök­unum. Hvít­þvegnir. Einn þeirra emb­ætt­is­manna sem var til rann­sóknar var yfir­maður FE, Lars Findsen. Nöfn þeirra sem rann­sóknin beind­ist að voru ekki gerð opin­ber.

Þegar nefndin skil­aði skýrslu sinni voru liðnir fimm dagar frá því að Lars Findsen var hand­tek­inn. Nafn hans kom fyrst fram í dags­ljósið 10. jan­úar eins og áður sagði.

Í hópi hæst settu embættismanna

Lars Findsen er 57 ára. Hann lauk laga­prófi frá Hafn­ar­há­skóla árið 1990 og hóf þá störf í dóms­mála­ráðu­neyti Dan­merkur. Árið 2002 varð hann yfir­maður Leyni­þjón­ustu lög­regl­unnar, PET. Fimm árum síðar, 2007, tók hann við starfi ráðu­neyt­is­stjóra varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins sem hann gegndi til árs­ins 2015. Þá tók hann við yfir­manns­starf­inu í Leyni­þjón­ustu hers­ins og sat í því emb­ætti til 24. ágúst 2020, en var þá sendur í leyfi eins og fram er komið.

Í sept­em­ber árið 2009, þegar Lars Findsen var ráðu­neyt­is­stjóri, reyndi varn­ar­mála­ráðu­neytið að hindra útgáfu bók­ar­innar „Jæger i krig með eliten“ sem fyrr­ver­andi her­maður í Írak og Afganistan hafði skrifað. Ástæða þess að ráðu­neytið vildi koma í veg fyrir útgáfu bók­ar­innar var, að sögn Søren Gade varn­ar­mála­ráð­herra sú, að í henni kæmi ýmis­legt fram sem gæti gagn­ast óvinum Dan­merkur og Nato. Dag­blaðið Politi­ken lét hins vegar prenta bók­ina og lét hana fylgja prentút­gáfu blaðs­ins 15. sept­em­ber 2009. Á fundi með frétta­mönnum sagði ráð­herr­ann að bókin hefði þegar verið gefin út á arab­ísku. Síðar kom í ljós að léleg arab­ísk þýð­ing bók­ar­innar hefði verið unnin í danska varn­ar­mála­ráðu­neyt­inu. Søren Gade varn­ar­mála­ráð­herra sagði af sér nokkrum mán­uðum síðar. Lars Findsen sat áfram en í mik­illi emb­ætt­is­manna­hringekju árið 2015 flutt­ist hann úr ráðu­neyt­inu í yfir­manns­stól FE, og gegndi því starfi þangað til hann var sendur heim í ágúst 2020.

Á sér ekki hliðstæðu

Danskir fjöl­miðlar lýsa þessu máli sem stærsta njósn­askandal í sögu Dan­merkur. Mál sem eigi sér enga hlið­stæðu. Að æðsti yfir­maður leyni­þjón­ustu hers­ins skuli sitja í gæslu­varð­haldi grun­aður um að leka mik­il­vægum upp­lýs­ingum sem varðað geta öryggi danska ríks­ins er lygi­legra en svæsn­asta lyga­saga sagði frétta­skýr­andi Berl­ingske. Ekki hefur verið upp­lýst hvað það er nákvæm­lega sem Lars Findsen er grun­aður um.

Lars Findsen hefur verið úrskurð­aður í gæslu­varð­hald til 4. febr­úar næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár