Borgin eignast og endurselur 19 íbúðir af 81 í nýju fjölbýli í Laugarnesi

Borg­ar­ráð hefur sam­þykkt kaup­samn­inga um 19 íbúðir í nýju fjöl­býl­is­húsi á Kirkju­sandi, auk rýmis fyrir leik­skóla, sem áætlað er að fáist afhent í vor. Tíu íbúðir verða seldar til Félags­bú­staða, en ekki liggur fyrir hvernig hinum níu verður ráð­stafað.

Það styttist í að húsið sem um ræðir verði fullklárað.
Það stytt­ist í að húsið sem um ræðir verði full­klárað. Mynd: Hallgerðargata.is

Borg­ar­ráð Reykja­vík­ur­borgar sam­þykkti á fimmtu­dag kaup­samn­inga vegna 19 íbúða í nýju fjöl­býl­is­húsi sem risið er við Hall­gerð­ar­götu 1 á Kirkju­sandi, og einnig kaup­samn­ing vegna rýmis undir leik­skóla sem til stendur að verði í hús­inu. Alls er 81 íbúð í þessu nýja húsi, sem senn verður full­búið.

Íbúð­irnar, sem borgin kaupir af félag­inu Hall­gerð­ar­gata ehf., syst­ur­fé­lagi verk­taka­fyr­ir­tæk­is­ins Reir Verk sem byggir húsið, eru á bil­inu 42,1-73 fer­metrar á stærð og greiðir borgin á bil­inu 19-33 millj­ónir fyrir hverja og eina íbúð.

Það er óra­vegu frá mark­aðsvirði íbúða í nýjum fjöl­býl­is­húsum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en á vef sem settur hefur verið upp til þess að kynna íbúðir í þessu til­tekna húsi til sölu sést að 42,3 fer­metra íbúð á fyrstu hæð kostar 47,9 millj­ónir króna, en ein­ungis 17 íbúðir í hús­inu eru enn óseldar.

Þetta lága kaup­verð borg­ar­innar er byggt á samn­ingum sem gerðir voru árið 2017, í kjöl­far þess að borgin efndi til útboðs á sölu bygg­ing­ar­réttar og kaupum á íbúðum og leik­skóla­hús­næðis á lóð­inni, en upp­hæð­irnar í samn­ingum voru innan marka hámarks­bygg­ing­ar­kostn­aðar almennra íbúða sem sett voru í þágild­andi reglu­gerð um stofn­fram­lög ríkis og sveit­ar­fé­laga, hús­næð­is­sjálfs­eign­ar­stofn­anir og almennar íbúðir.

Árið 2020 var samn­ing­ur­inn á milli borg­ar­innar og selj­anda upp­færður og verðið hækkað í takt við upp­færða reglu­gerð þar að lút­andi, en félagið sem er að byggja húsið taldi að umsamið kaup­verð væri undir kostn­að­ar­verði/fram­leiðslu­verði íbúða í hús­inu og sagði að erfitt hefði verið að fá banka til að fjár­magna verk­efnið af þeim sökum.

Samkvæmt kaup­samn­ing­unum sem borg­ar­ráð sam­þykkti á fimmtu­dag mun Reykja­vík­ur­borg alls greiða 448,4 millj­ónir króna fyrir íbúð­irnar 19 og svo 440,2 millj­ónir króna fyrir leik­skól­ann, sem á að verða afhentur í apríl næst­kom­andi. Fyr­ir­hugað er að leik­skól­inn, sem verður í um 740 fer­metra rými á jarð­hæð, verði ung­barna­leik­skóli fyrir börn á aldr­inum 12-36 mán­aða.

Ekki fleiri en 10 íbúðir verða seldar til Félagsbústaða

Reykja­vík­ur­borg ætlar að fram­selja allar íbúð­irnar 19 og gerir ráð fyrir því, sam­kvæmt þeim gögnum sem lögð voru fyrir borg­ar­ráð, að 10 íbúðir verði seldar til Félags­bú­staða og að níu íbúðum verði „ráð­stafað síðar“.

Þegar fjallað var um málið í borg­ar­ráði í gær lét Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir borg­ar­ráðs­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins bóka að hún teldi að allar íbúð­irnar 19 ættu að renna til Félags­bú­staða.

Samkvæmt samn­ingum við félagið sem er að byggja húsið er ekki mögu­legt að svo verði, en í þeim er sér­stak­lega kveðið á um að íbúðir sem fram­seldar verði til Félags­bú­staða verði ekki fleiri en tíu tals­ins. Í samn­ing­unum var einnig til­tekið að borg­inni væri einnig heim­ilt að fram­selja íbúðir til leigu­fé­laga sem rekin væru án hagn­að­ar­sjón­ar­miða.

Liggur ekki fyrir hvernig íbúðirnar verða seldar – eða á hvaða verði

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til borg­ar­innar um það hvort fyrir lægi hvernig íbúð­unum níu sem til stendur að ráð­stafa síðar yrði ráð­stafað. Einnig spurði blaða­maður hvort til stæði að eign­irnar yrðu seldar á því verði sem borgin greiddi fyrir þær eða hvort til­boða yrði leitað í eign­irnar.

Samkvæmt svari frá Reykja­vík­ur­borg er „hvorki búið að ákveða hvernig íbúð­unum 9 verður ráð­stafað né sölu­verð“ og einnig „liggur á þessu stigi ekki fyrir hvert fyr­ir­komu­lag söl­unnar verður“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár