Appelsínugul viðvörun – Þórólfur boðar staðbundnar aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu

Sótt­varna­læknir mun gera til­lögur um hertar en stað­bundnar aðgerðir til heil­brigð­is­ráð­herra vegna fjölg­unar smita af kór­ónu­veirunni síð­ustu daga. Hann nefnir vín­veit­inga­staði sér­stak­lega í því sam­bandi. Til skoð­unar er að hafa öld­ur­hús lokuð um helg­ina.

Þórólfur Guðnason ætlar að leggja til staðbundnar aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu þar sem smit síðustu daga hafa komið upp.
Þórólfur Guðnason ætlar að leggja til stað­bundnar aðgerðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem smit síð­ustu daga hafa komið upp. Mynd: Lögreglan

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir að sú aukn­ing sem orðið hefur í smitum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu síð­ustu daga sé ekki óvænt en þó ákveðin von­brigði. Á meðan veiran er í sam­fé­lag­inu megi eiga von á sveiflum í fjölda smita, sér­stak­lega á meðan far­ald­ur­inn er útbreiddur erlendis. Á fundi almanna­varna í dag minnti hann á að veiran væri óút­reikn­an­leg og því væri mik­il­vægt að bregð­ast hratt við og „slá á þennan far­aldur sem er í upp­sigl­ingu“. Sagði hann við­búið að herða þurfi aðgerðir ef ástand far­ald­urs­ins versnar og sömu­leiðis að slaka á aðgerðum þegar betur gengur.

„Nú er app­el­sínugul við­vörun á höf­uð­borg­ar­svæð­inu,“ segir Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra en á síð­asta fundi var kynnt til sög­unnar lita­kerfi, sam­bæri­legt því og Veð­ur­stofan notar til að vara við veðri.

32 hafa greinst með veiruna síð­ustu tvo sól­ar­hringa. Ungt fólk er þar í meiri­hluta.

Smit sem greinst hafa síð­ustu daga tengj­ast vín­veit­inga­stöðum, háskólum og nokkrum vinnu­stöðum og verður hertum aðgerðum beint sér­stak­lega að þeim, að sögn Þórólfs sem er með minn­is­blað til heil­brigð­is­ráð­herra í und­ir­bún­ingi.

Ekki eru óyggj­andi merki um að smit sem greinst hafa meðal nem­enda og starfs­fólks Háskóla Reykja­víkur og Háskóla Íslands hafi átt sér stað innan veggja þeirra stofn­ana.

Aukning í sýk­ingum kalli á stað­bundnar og mark­vissar aðgerðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem smitin hafa verið að grein­ast. Sagði hann ljóst að fólk sem sæki vín­veit­inga­staði sé lík­legt til að smit­ast og smita aðra. Minnti hann á að erlendis væri víða verið að beita harð­ari aðgerðum en hér á vín­veit­inga­stöðum „og við þurfum að skoða það betur sér­stak­lega í ljósi þess að vín­veit­inag­staðir virð­ast eiga stóran þátt í þeirri bylgju sem við erum í núna,“ sagði Þórólfur en ítrek­aði að þessu væri ekki beint sér­stak­lega að stöð­unum sem slíkum heldur fólk­inu sem þá sækir.

[links]Víðir sagði að ekki væri grunur um brot á sótt­vörnum á þeim vín­veit­inga­stöðum sem tengj­ast smitum sem talin eru rakin til síð­ustu helgar.


Þá sagði Þórólfur brýnt að skerpa vel á sótt­varn­ar­að­gerðum á vinnu­stöðum og í skólum og munu til­lögur þar um einnig verða í minn­is­blaði Þórólfs. Einnig þurfi að skerpa á vernd við­kvæmra hópa, s.s. á sam­býlum og öldr­un­ar­heim­ilum.

Nýr stofn af veirunni er nú kom­inn til sög­unnar. Hann greind­ist fyrst í ferða­mönnum sem komu hingað til lands í ágúst og áttu að vera í sótt­kví og svo ein­angrun. Í skoðun er hvort eitt­hvað hafi farið úrskeiðis þar, sagði Þórólfur. Að minnsta kosti sjö inn­an­lands­smit eru af þeim stofni.

Að sögn Þórólfs hefur það því miður verið að ger­ast und­an­farið að fólk með sjúk­dóms­ein­kenni hafi farið til vinnu. Hann ítrek­aði því enn og aftur mik­il­vægi þess að vera heima, hafa sam­band við heilsu­gæslu og biðja um sýna­töku, ef ein­kenni sem benda til COVID-19 láta á sér bera. Ein­stak­lings­bundnar aðgerðir vega að mati Þórólfs mun þyngra en boð og bönn stjórn­valda.

„Við erum að gefa út sterkar við­var­anir,” sagði Víðir í lok fund­ar­ins. „Við erum ekk­ert að grín­ast með þetta. Við höfum séð það svart­ara, við getum unnið þetta saman, og við munum örugg­lega gera það.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár