Styrkir verða veittir til að greiða laun á uppsagnarfresti og hlutabótaleiðin framlengd

Rík­is­stjórnin hefur ákveðið að lengja gild­is­tíma hluta­bóta­leið­ina og reglur um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu verða ein­fald­aðar.

Hluta­bóta­leiðin verður fram­lengd með óbreyttu sniði út júní, en hún átti að gilda til 1. júní. Eftir það verður hún í boði með breyttu sniði – hámarks­greiðslur úr opin­berum sjóðum verða þá 50 pró­sent af greiddum launum í stað 75 pró­sent – og nán­ari skil­yrðum út ágúst.

Þá verður fyr­ir­tækjum sem orðið hafa fyrir umfangs­miklu tekju­tapi gef­inn kostur á að sækja um stuðn­ing úr rík­is­sjóði vegna greiðslu hluta launa­kostn­aðar á upp­sagn­ar­fresti til að tryggja rétt­indi launa­fólks og koma í veg fyrir fjölda­gjald­þrot fyr­ir­tækja. Auk þess verða settar verða ein­fald­ari reglur um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu fyr­ir­tækja sem miða að því þau geti kom­ist í skjól með ein­földum hætti.

Frá þessu greindi Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra á blaða­manna­fundi í Safna­hús­inu við Hverf­is­götu í dag.

Þrjár aðgerðir

Í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins kemur fram að þessar þrjár til­lögur hafi verið sam­þykktar í morgun á rík­is­stjórn­ar­fundi og að mark­mið þeirra sé að draga úr þeim skaða sem umfangs­miklar upp­sagnir og fjölda­gjald­þrot valda.

[adspot]Hluta­bóta­leið verður fram­lengd án breyt­inga með 25 pró­sent lág­marks­starfs­hlut­falli út júní en lág­markið hækkar í 50 pró­sent í júlí. Leiðin verður í boði til 31. ágúst. Sækja þarf um fram­leng­ingu leið­ar­innar og skil­yrði fyrir þátt­töku verða end­ur­skoðuð. Um 35 þús­und manns eru að nýta sér hluta­bóta­leið­ina í dag.

Þá verða settar tíma­bundið ein­fald­ari reglur um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu fyr­ir­tækja. „Byggt verður á núgild­andi grunn­reglum en breyt­ingar miða að því að fyr­ir­tæki geti kom­ist í skjól á ein­faldan hátt á meðan verið er að meta stöðu þeirra og uns meiri vissa fæst um fram­tíð­ar­horfur. Breyt­ingar lúta m.a. að skil­yrðum fjár­hags­legrar end­ur­skipu­lagn­ingar, beiðni og umfjöllun um hana, tíma­frestum, heim­ildum til ráð­staf­ana og rift­unar- og van­efnda­heim­ildum við­semj­enda.“

Að lokum verður fyr­ir­tækjum gef­inn kostur á að sækja um stuðn­ing úr rík­is­sjóði vegna greiðslu hluta launa­kostn­aðar á upp­sagn­ar­fresti. Stuðn­ing­ur­inn verður í formi greiðslu að hámarki 633 þús­und krónur á mán­uði í allt að þrjá mán­uði auk orlofs og ein­skorð­ast við fyr­ir­tæki sem orðið hafa fyrir að lág­marki 75 pró­sent tekju­falli og sjá fram á áfram­hald­andi tekju­fall að minnsta kosti út þetta ár. Stjórn­völd áætla að um fjórð­ungur fyr­ir­tækja hafi orðið fyrir slíku tekju­tapi. Hámarks­hlut­fall stuðn­ings rík­is­ins verður 85 pró­sent. í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að starfs­menn skuli eiga for­gang til starfs þegar starf­semi hefst að nýju og halda til­teknum áunnum rétt­indum. „Sett verði nán­ari skil­yrði, til að mynda um rekstr­ar­hæfi fyr­ir­tækis, fyrir aðild að þessu úrræði og um end­ur­kröfu­rétt. Leiðin er í boði frá 1. maí til 30. sept­em­ber.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár