Sér dreift eignarhald fyrir sér sem leið til sátta um sjávarútveg

Fram­bjóð­andi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík viðrar í dag hug­mynd um að þrengja að hámarks­afla­hlut­deild þeirra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja sem kjósa að vera ekki skráð á hluta­bréfa­markað.

Friðjón R. Friðjónsson frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Friðjón R. Frið­jóns­son fram­bjóð­andi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Mynd: Skjáskot/RÚV

Friðjón R. Frið­jóns­son, fram­bjóð­andi í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, segir í grein í Morg­un­blað­inu í dag að ein leið til að auka sátt um sjáv­ar­út­vegs­mál á Íslandi væri að skrá fleiri sjáv­ar­út­vegs­fé­lög á hluta­bréfa­markað og um leið þrengja að hámarks­afla­hlut­deild þeirra félaga sem ekki væru skráð á markað.

Samkvæmt hug­mynd Friðjóns væri gengið út frá því að sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki sem „lúta aðhaldi og gagn­sæis­kröfu aðal­l­ista Kaup­hall­ar­innar“ mættu halda 12 pró­senta hámark­inu eða jafn­vel hækka það. Um leið segir Friðjón að setja þyrfti „skýrar reglur um hvað telj­ist tengdir aðilar“ og jafn­vel setja kvaðir um að hluti bréfa félag­anna þurfi að vera í dreifðri eign sam­kvæmt fyr­ir­fram­skil­greindu lág­marki.

„Þannig yrði eina leiðin fyrir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki til að ná veru­legri stærð­ar­hag­kvæmni að vera í dreifð­ari eign­ar­að­ild en nú er og lytu þau þá síður duttl­ungum eða ákvörð­unum ein­staka eig­enda,“ skrifar Friðjón.

Hann segir að sjáv­ar­út­vegur á Íslandi eigi að vera stolt lands og þjóðar.

„Til að svo megi verða þurfa að verða breyt­ingar. Atburðir síð­ustu daga og miss­era sýna það ber­sýni­lega. Við þurfum að vera opin fyrir breyt­ingum, opin fyrir að bæta und­ir­stöðu­at­vinnu­veg­inn og opin fyrir að gera Ísland betra,“ skrifar Friðjón, sem er mið­stjórn­ar­maður í Sjálf­stæð­is­flokknum og fram­kvæmda­stjóri ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­is­ins KOM, í grein sinni.

Viðreisn og fleiri lögðu fram frumvarp um skráningarskyldu

Hug­myndir um dreift eign­ar­hald sjáv­ar­út­vegs­fé­laga með það að augna­miði að auka sátt um atvinnu­grein­ina og nýt­ingu auð­lind­ar­innar í sam­fé­lag­inu eru ekki nýjar af nál­inni.

[adspot]

Á þessu kjör­tíma­bili hefur þing­flokkur Við­reisnar auk þing­manna Pírata og Sam­fylk­ingar lagt fram frum­varp sem fól í sér að sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki sem hefðu meira en 1 pró­sent af heild­ar­afla á sínum höndum þyrftu að skrást á hluta­bréfa­markað. Ef fyr­ir­tæki réðu yfir 8-12 pró­sentum heild­ar­afla­hlut­deildar gætu ein­stakir hlut­hafar og aðilar honum tengdir ekki farið með meira en 10 pró­sent hluta­fjár eða atkvæð­is­réttar.[links]

Segja má að hug­myndin sem Friðjón útlistar í Morg­un­blað­inu í dag gangi nokkuð skemur en frum­varp Við­reisnar og ann­arra, en hugs­unin er í grunn­inn svipuð — að tryggja aukið gagn­sæi í grein­inni með skrán­ingu á markað.

Skömmu eftir að Namib­íu­málið svo­kallað kom upp á yfir­borðið í nóv­em­ber 2019 sagði Magnús Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hall­ar­innar, að fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi gætu haft mikið gagn af skrán­ingu á markað.

„Þessi tog­steita milli myndi ég segja, og sem hefur verið við líði í nokkuð lengi milli sjáv­ar­út­veg­ar­ins og almenn­ings, ég held að skrán­ing á markað og dreifð eign­ar­að­ild almenn­ings að þessum fyr­ir­tækjum verði svona grund­völlur sáttar um grein­ina,“ sagði Magnús í sam­tali við Vísi í nóv­em­ber 2019.

Einungis tvö sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki eru skráð á hluta­bréfa­markað á Íslandi í dag, en það eru Brim og Síld­ar­vinnslan í Nes­kaup­stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár