Umhverfismál hvergi betri en á Íslandi

Ísland vermir þriðja sætið af 152 löndum í mæli­kvarða um vel­sæld landa, en þar erum við sterk­ust í umhverf­is­málum og slök­ust í efna­hags­legum stöð­ug­leika.

Samkvæmt Boston Consulting eru umhverfismál hvergi jafngóð og á Íslandi.
Samkvæmt Boston Consulting eru umhverf­is­mál hvergi jafn­góð og á Íslandi. Mynd: Aðsend

Ísland er þriðja besta land í heimi, ef marka má mæli­kvarða Boston Consulting Group á sjálf­bærri hag­þróun landa. Samkvæmt mæli­kvarð­anum eru umhverf­is­mál einnig með besta móti hér á landi, en efna­hags­legur stöð­ug­leiki mjög slæmur miðað við önnur lönd. Þetta kom fram í kynn­ingu ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­is­ins á mæli­kvarð­anum sínum í gær.

Mæli­kvarð­inn, sem ber heitið SEDA, er byggður á sam­an­safn 40 hag­vísa, en sam­kvæmt Boston er hann öfl­ugt mót­vægi við mæl­ingar á lands­fram­leiðslu ef bera á saman almenna vel­sæld milli þjóða. Í nýút­gef­inni mæl­ingu skoð­aði fyr­ir­tækið 152 lönd og byggði á nýj­ustu gögnum í hverju landi fyrir sig.

Mæli­kvarð­inn er ein­göngu sam­settur af hlut­lægum gögnum sem til eru á hag­stofu sér­hvers lands og byggir ekki á gild­is­mati eða skynjun við­mæl­enda. Honum er skipt upp í tíu und­ir­flokka, en þeir eru eft­ir­far­andi:

  • Tekjur: Mældur í lands­fram­leiðslu á mann
  • Efna­hags­legur stöð­ug­leiki: Mælir verð­bólgu­stig og hvort hag­vöxtur sé stöð­ugur
  • Atvinna: Mældur með atvinnu­þátt­töku og atvinnu­leysi
  • Tekju­jöfn­uður: Mælir dreif­ingu tekna meðal íbúa
  • Borg­ara­sam­fé­lag: Mælir félags­lega sam­heldni, þátt­töku almenn­ings í stjórn­málum og kynja­jafn­rétti
  • Stjórnun: Mælir skil­virkni og gæði rík­is­stofn­ana, þar með talið ábyrgð, stöð­ug­leika og borg­ara­frelsi. 
  • Umhverf­is­mál: Mælir gæði umhverf­is­ins og stefnu­mótun í átt að við­haldi og verndar þess
  • Heil­brigði: Mælir aðgengi að heil­brigð­is­þjón­ustu, auk dánar-og sjúk­dóms­tíðni
  • Menntun: Mælir gæði mennta­kerf­is­ins og aðgengi barna að því
  • Innviðir: Mælir gæði vatns, sam­gangna og sam­skipta­tækni

Best í umhverfismálum, verst í stöðugleika

Af 152 löndum er Ísland í þriðja sæti list­ans, en ein­ungis Noregur og Sviss fá hærri ein­kunn yfir almenna vel­sæld. Verst stöndum við okkur í efna­hags­legum stöð­ug­leika, en þar vermum við 124. sætið, en í umhverf­is­flokknum erum við hins vegar á toppi list­ans.

Þrátt fyrir snarpa kreppu og mik­inn efna­hags­upp­gang í kjöl­farið er áhuga­vert hversu lítið SEDA-mæli­kvarði Íslands hefur breyst, en landið hefur hald­ist nokkurn veg­inn á sama stað frá árinu 2009.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár