„Djúpstæð“ vonbrigði þjóðarinnar verður að taka alvarlega

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir þing­maður Við­reisnar segir að far­sæl­ast sé að boða sem fyrst til kosn­inga.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Svona er póli­tíkin og hún mun hafa sinn gang næstu daga, vikur og mán­uði. Að mínu mati er æski­leg­ast að boða til kosn­inga eins fljótt og auðið er.“

Þetta segir Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, á Facebook síðu sinni. Hún segir djúp­stæð von­brigði þjóð­ar­innar með það hvernig stjórn­völd hafi brugð­ist við í málum sem hafa verið í brennid­epli verði að taka alvar­lega. „Síðustu dagar sýna okkur afdrátt­ar­laust að þol­in­mæði sam­fé­lags­ins gagn­vart kyn­ferð­is­legu ofbeldi og hvernig kerfið með­höndlar slík brot og eft­ir­mála þeirra er á þrotum. Kerfi sem ein­kenn­ist af leynd­ar­hyggju og stendur vörð um ofbeld­is­menn en ekki fórn­ar­lömb er mein­gallað og djúp­stæð von­brigði þjóð­ar­innar með við­brögð stjórn­valda í þessum málum er eitt­vað sem við verðum að taka mjög alvar­lega. Verkefni stjórn­mál­anna er að breyta úreltum kerfum og upp­ræta sterka til­hneig­ingu ákveð­inna hópa til að standa vörð um sér­hags­muni fram yfir almanna­hags­muni,“ segir Þor­gerður Katrín.

Þing­flokkur Við­reisnar hefur þegar sent frá sér yfir­lýs­ingu um að best sé að boða til kosn­inga sem fyrst, í ljósi stöð­unnar sem upp er komin í stjórn­mál­unum.

Eins og kunn­ugt er sleit Björt fram­tíð sig frá rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu seint í gær­kvöldi.

Ástæðan var trún­að­ar­brestur, í tengslum við með­mæla­bréf sem Benedikt Sveins­son, faðir Bjarna Bene­dikts­sonar, skrif­aði vegna umsóknar Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar, dæmds barn­a­níð­ings, um upp­reista æru.

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra lét Bjarna vita af með­mælum föður hans í júlí. Aðrir vissu ekki af þessum upp­lýs­ingum.

Frétta­stofa RÚV vís­aði því til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál, þegar dóms­mála­ráðu­neytið neit­aði að afhenda upp­lýs­ingar um þá sem vott­uðu góða hegðun í umsóknum um upp­reista æru. Í nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar, sem ekki lá fyrir fyrr en í þessum mán­uði, kom fram að afhenda mætti upp­lýs­ingar um þá sem votta góða hegðun.

Dóms­mála­ráðu­neytið hyggst birta upp­lýs­ing­arnar á vef ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnarkreppa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár