Katrín á meðal tuttugu launahæstu þjóðarleiðtoga heims

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra er í 17. sæti yfir launa­hæstu þjóð­ar­leið­toga heims, sam­kvæmt úttekt banda­ríska dag­blaðs­ins USA Today. Þá er hún sam­kvæmt blað­inu fjórði launa­hæsti kven­leið­togi heims.

Katrín Jakosbsdóttir, forsætsiráðherra.
Katrín Jakos­bs­dóttir, for­sætsi­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra er í 17. sæti yfir launa­hæstu þjóð­ar­leið­toga heims­ins, sam­kvæmt úttekt banda­ríska dag­blaðs­ins USA Today. Hún er ein af fjórum konum á list­anum en list­inn miðar við þá ein­stak­linga sem telj­ast hand­hafar fram­kvæmda­valds­ins í hverju landi fyrir sig. Katrín er ofar á list­anum en for­sæt­is­ráð­herra Frakk­lands, Írlands og for­seti Gvatemala. Hins vegar eru for­sæt­is­ráð­herrar Dan­merkur og Sví­þjóðar með hærri laun en Katrín og sitja í 15. og 16. sæti. Morg­un­blaðið greindi fyrst frá þessu. 

Ein af fjór­um kon­um

Úttekt blaðs­ins miðar við laun hvers þjóð­ar­leið­toga á árinu 2018 og nema árleg laun leið­tog­anna allt frá 200.000 Banda­ríkja­dölum til rúm­lega 1,6 millj­ónir Banda­ríkja­dala en launin eru gefin upp miðað við gengi 13. apríl. Árslaun Katrínar sam­kvæmt list­anum voru 242.619 Banda­ríkja­dalir í fyrra eða rúmar 29 millj­ónir íslenskra króna. Í grein­inni segir að ef launum Katrínar væri deilt á alla Íslend­inga myndi hver Íslend­ingur fá í sinn hlut 73 sent. Jafn­framt er greint frá því að for­seti Íslands fái hærri laun en for­sæt­is­ráð­herra en að for­set­inn hafi tak­mörkuð völd og að hlut­verk hans sé að mestu leyti hátíð­legt.

Fyrir ofan Katrínu á list­anum eru for­sæt­is­ráð­herrar Dan­merkur og Sví­þjóðar. Lars Løkke Rasmus­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur er sagður vera með 249.774 Banda­ríkja­dali á ári í laun og Stefan Löfven, for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar með 244.615 Banda­ríkja­dali í laun á síð­asta ári. Hæst­laun­aði þjóð­ar­leið­tog­inn á list­anum er hins vegar Lee Hsien Loong for­sæt­is­ráð­herra Singapúr en hann var með 1.610.000 Banda­ríkja­dali í árs­laun á síð­asta ári sem er ígildi þess að hann hafi verið með rúmar 13 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun.

Þá er Carrie Lam, leið­togi kín­verska sjálf­stjórn­ar­hér­aðs­ins Hong Kong, launa­hæsta konan á list­anum en hún situr í öðru sæti með 568.400 Banda­ríkja­dali í árs­laun, eða sem nemur rúmum 55 millj­ónum íslenskra króna. Þá er þrír aðrir kven­leið­togar á list­anum að með­tal­inni Katrínu, það eru Angela Merkel Þýska­landskansl­ari og Jacinda Ardern, for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjáland, en þær skipa sjötta og sjö­unda sæti list­ans.

Í hópi áhrifamikilla kvenna sem stuðla að auknu kynjajafnrétti

[links]Í febr­úar var Katrín valin ein af tutt­ugu konum sem skarað hafa fram úr og barist fyrir jöfnum hlut kyn­systra sinna um allan heim, af við­skipta­tíma­rit­in­u CEO Mag­azine. Í umfjöll­un ­tíma­rits­ins ­var greint frá því að Katrín Jak­obs­dótt­ir hefði sterkar skoð­anir á rétt­indum kvenna og umhverf­is­mál­um.

Fjallað var um hvernig Katrín sé önnur konan hér á landi til að gegna emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra en hún er jafn­framt þriðja yngsta mann­eskjan til að gegna þessu valda­mesta emb­ætti á Ísland­i. Þá var hún sögð stefna að því að útrýma kyn­bundnum launa­mun á Íslandi innan fimm ára og að hún hyggst breyta lögum um ­fæð­ing­ar­or­lof hér á land­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár