Ríkið hefur ekki greitt Íslenskri erfðagreiningu neitt fyrir skimanir

Íslensk erfða­grein­ing hefur ekk­ert fengið greitt frá íslenskum yfir­völdum fyrir skimanir sínar gegn veirunni. Kári Stef­áns­son for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins verð­mat fram­lag fyr­ir­tæk­is­ins til sam­fé­lags­ins á þrjá millj­arða króna í Kast­ljósi á mið­viku­dags­kvöld.

Alma Möller landlæknir og Kári Stefánsson forstjóri ÍE á upplýsingafundi almannavarna.
Alma Möller land­læknir og Kári Stef­áns­son for­stjóri ÍE á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna. Mynd: Lögreglan

Íslensk erfða­grein­ing hefur ekki fengið greitt frá íslenska rík­inu vegna skimunar fyrir kór­ónu­veiru, en þetta stað­festir heil­brigð­is­ráðu­neytið í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans.[links]

Kári Stef­áns­son for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins sagði í Kast­ljósi á mið­viku­dags­kvöld að hann teldi kostnað Íslenskrar erfða­grein­ingar vegna skim­ana síð­ustu þrjá mán­uði hafa numið um þremur millj­örðum króna.

Hug­myndin um að Íslensk erfða­grein­ing færi að skima fyrir veirunni kvikn­aði hjá fyr­ir­tæk­inu sjálfu þann 6. mars, þegar kór­ónu­veiran var byrjuð að ganga manna á milli hér inn­an­lands. Þá bauðst fyr­ir­tækið til þess að aðstoða heil­brigð­is­yf­ir­völd í bar­átt­unni.

[adspot]

Þann sama dag ræddi Kári við mbl.is og sagði að fyr­ir­tækið vildi leggja sitt á árarnar til að kom­ast að því hvernig veiran væri að breið­ast út í íslensku sam­fé­lagi.

„Við erum ekki að berja okk­ur á brjóst yfir því. Við erum ósköp ein­fald­lega að gera það sem okk­ur finnst eðli­legt og sjálf­sagt að gera,“ sagði Kári.

Síðan hófst reyndar nokk­urt þras um hvort leyfi þyrfti frá Vís­inda­siða­nefnd til þess að fram­kvæma skiman­irnar, en nið­ur­staðan varð sú að þess þyrfti ekki.

Hafa tekið rúm 39 þúsund sýni

Í kjöl­farið byrj­aði fyr­ir­tækið að skima þjóð­ina og hefur til þessa tekið rúm­lega 39 þús­und sýni úr ein­kenna­lausum ein­stak­lingum vítt og breitt um landið, og eru enn að. Í heild­ina hafa rúm­lega 60 þús­und COVID-19 sýni verið tekin á Íslandi.

Alls hafa 179 þeirra sýna sem Íslensk erfða­grein­ing hefur tekið reynst jákvæð, og því hafa tæp 10 pró­sent allra þeirra 1.805 smita sem greinst hafa hér á landi greinst vegna skim­ana fyr­ir­tæk­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár