Kvika kaupir GAMMA

Kvika banki og GAMMA hafa skrifað undir sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu um kaup á GAMMA fyrir 3.750 millj­ónir.

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku banka
Ármann Þor­valds­son, for­stjóri Kviku banka Mynd: Anton Brink

Kvika banki hf. og hlut­hafar GAMMA hafa und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu um kaup og sölu á öllu hlutafé GAMMA. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Kaup­hall­ar­innar.

Í til­kynn­ing­unni segir að félagið verði rekið áfram undir nafni GAMMA sem sjálf­stætt dótt­ur­fé­lag Kviku banka. Markmið Kviku með kaup­unum sé að styrkja bank­ann enn frekar á sviði eigna- og sjóða­stýr­ingar og erlendrar starf­semi.

Í árs­lok var eigið fé GAMMA 2.054 millj­ónir króna en eignir í stýr­ingu félags­ins námu 138 millj­örðum króna og sjóðir í rekstri fyr­ir­tæk­is­ins voru sam­tals 46. Í fyrra hagn­að­ist félagið um 626 millj­ónir, sem er tæp­lega fjórð­ungs­sam­dráttur frá því árinu áður. 

Stærstu eig­endur GAMMA eru Gísli Hauks­son og Agnar Tómas Möll­er, fram­kvæmda­stjóri sjóða GAMMA, en báðir eiga þeir 31 pró­senta hlut í fyr­ir­tæk­inu. Gísli er hættur störfum hjá fyr­ir­tæk­inu og sinnir nú eigin fjár­fest­ing­um. Þar að auki eiga Guð­mundur Björns­son, fram­kvæmda­stjóri rekstr­ar­sviðs fyr­ir­tæk­is­ins og eign­ar­halds­fé­lagið Straum­nes, sem er í eigu Fenger-barna, hvor sinn 10 pró­senta hlut. Valdimar Ármann, for­stjóri GAMMA, á einnig 5 pró­senta hlut í fyr­ir­tæk­inu. 

Í til­kynn­ing­unni segir að kaup­verð fyrir allt útistand­andi hlutafé GAMMA nemi 3.750 millj­ónum króna, m.v. stöðu félags­ins í árs­lok 2017 og stöðu árang­urstengdra þókn­ana sem eftir á að tekju­færa. Verði sú raunin munu 1162 millj­ónir renna til bæði Gísla og Agnars Tómasar, 375 millj­ónir til Guð­mundar og Straum­ness og tæpir 190 millj­ónir til Valdi­mars Ármanns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár