Prófkjörsbarátta Diljár Mistar kostaði rúmar 4,5 milljónir króna

Diljá Mist Ein­ars­dóttir náði miklum árangri sem nýliði í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík í sumar og hafn­aði í þriðja sæti. Hún varði 4,5 millj­ónum í próf­kjörs­bar­áttu sína sam­kvæmt upp­gjöri fram­boðs hennar.

Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins á nýliðadegi í þinginu fyrr í vikunni.
Diljá Mist Ein­ars­dóttir þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins á nýliða­degi í þing­inu fyrr í vik­unni. Mynd: Bára Huld Beck

Próf­kjörs­bar­átta Diljár Mistar Ein­ars­dóttur þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins kost­aði rúm­lega 4,5 millj­ónir króna, sam­kvæmt upp­gjöri fram­bjóð­and­ans, sem hún lét Kjarn­anum í té. Þar af fóru tæpar 2 millj­ónir króna í aug­lýs­ingar og tæp 1,8 milljón í rekst­ur­kosn­inga­skrif­stofu, auk þess sem starfs­manna­kostn­aður var 800 þús­und krónur.[links]

Fram­bjóð­endur í próf­kjörum stjórn­mála­flokk­anna hafa þrjá mán­uði frá próf­kjörs­degi til þess að ýmist skila inn upp­gjöri eða yfir­lýs­ingu um að kostn­aður þeirra við fram­boðs­bar­átt­una hafi verið undir 500 þús­und krónum. Prófkjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík fór fram í byrjun júní.

Dilja Mist seg­ist vera búin að skila inn upp­gjöri sínu til Rík­is­end­ur­skoð­unar og það er und­ir­ritað þann 10. sept­em­ber, en stofn­unin hafði þó ekki birt upp­gjör hennar á þar til gerðu vef­svæði síð­degis í gær.

Þar má nú nálg­ast upp­gjör eða yfir­lýs­ingar lang­flestra þeirra sem sótt­ust eftir efstu sætum í próf­kjörum Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en ekk­ert var þar þó að finna varð­andi fram­boð Diljar Mistar né Vil­hjálms Árna­sonar, sem laut lægra haldi í próf­kjörs­bar­áttu í Suð­ur­kjör­dæmi gegn Guðrúnu Haf­steins­dóttur.

Samkvæmt upp­gjöri fram­boðs Diljár Mistar fékk hún 2,5 millj­ónir í fram­lög frá alls 17 ein­stak­lingum. Þar af veittu Einar Sveinn Hálf­dán­ar­son faðir Diljár og Regína Gréta Páls­dóttir bæði 400 þús­und króna fram­lag til fram­boðs­ins.

Níu fyr­ir­tæki styrktu fram­boð Diljár Mistar um sam­tals 1,75 milljón, en þar af veittu End­ur­skoð­unar/lög­manns­stofan sf., sem er í meiri­hluta­eigu Einars Sveins og Takanawa ehf., sem er í fullri eigu Bolla Skúla­sonar Thor­orodd­sen, hámarks­styrk, sem er 400 þús­und krónur.

[adspot]

Dilja Mist lagði síðan sjálf rúmar 200 þús­und krónur til fram­boðs­ins til þess að mæta rekstr­ar­gjöldum sem voru umfram fengin fram­lög frá ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum.

Í samfloti með Guðlaugi Þór í baráttunni

Diljá Mist, sem hefur und­an­farin ár verið aðstoð­ar­maður Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra, náði þeim árangri sem hún stefndi að í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, en hún sótt­ist eftir og náði þriðja sæt­inu. Hún rak áber­andi kosn­inga­bar­áttu sem hófst með opnu­aug­lýs­ingum í dag­blöðum og fyrir kosn­ingar var mikið hringt út til sjálf­stæð­is­manna fyrir hennar hönd, í sam­starfi við Guðlaug Þór.

Guð­laugur Þór var einmitt sá fram­bjóð­andi í öllum próf­kjörum Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem varði mestu fé í bar­áttu sína, en hann sótt­ist eftir og náði fyrsta sæti í próf­kjör­inu í Reykja­vík. Hann varði rúmum 11 millj­ónum króna í slag­inn um fyrsta sætið gegn Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mál­ara­ráð­herra, sem sjálf setti 8,7 millj­ónir króna í bar­átt­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár